Ægir - 01.05.1991, Qupperneq 29
5/91
ÆGIR
253
SkipastóUinn
Áriö 1990 fjölgaði skipum í
íslenska fiskiskipaflotanum fjórða
árið í röð, fjölgunin var heldur
meiri en árið áður, en minni en
fyrri árin, eins og sést á stöplariti
hér til hliðar. Samtals fjölgaði
skipum um 23 á árinu, en árið
1989 varð fjölgunin 9, 54 árið
1988 og 83 árið 1987. Samtals
hafa því bæst 178 skip við flotann á
þessum fjórum.árum, eftir tímabil
fækkunar frá árinu 1975. Hafa ekki
í annan tíma verið fleiri skip í
íslenska fiskiskipaflotanum. Alls
taldi flotinn 997 skip í árslok 1990,
samkvæmt skipaskrá Fiskifélags
íslands. Sú fjölgun skipa, sem átti
sér stað var öll smábátar 10 rúm-
lestir eða minni, eins og á síðasta
ári, en þeim fjölgaði um 50, á
meðan fækkun varð um 18 skip
stærri en 10 rúmlestir. Þessi
fækkun er vegna þess að við endur-
nýjun skipa, hafa veiðiheimildir
tveggja eða fleiri skipa verið sam-
einaðar fyrir eitt nýtt skip. Sé litið á
aðra stærðarflokka í heild, þá
verður fækkun í minni stærðar-
flokkunun en fjölgun eða óbreyttur
fjöldi í þeim stærri, þar sem nýju
skipin eru almennt stærri en þau
sem fara úr flotanum. Rétt er að
taka fram að á skrá eru allnokkur
skip, sem eftir var að úrelda um
áramót á móti skipum sem komin
voru í flotann, þar á meðal er einn
skuttogari. í raun fjölgaði skipum
því minna, en að framan greinir.
Rúmlestatala flotans lækkaði um
590 brúttórúmlestir og var 120.156
brúttórúmlestir um áramótin. Þetta
er, eins og stöplarit hér til hliðar
sýnir, í fyrsta skipti síðan fyrir
1970, sem rúmlestatala flotans
minnkar á milli ára, en mjög hefur
dregið úr stækkuninni undanfarin
ár.
Þær tölur, sem að framan greinir
eru nettótölur, en hér fer yfirlit yfir
þær breytingar, sem áttu sér stað.
Á árinu voru skráð alls 64 ný
fiskiskip, samtals 1.579 brúttórúm-
lestir. Afþessum skipum eru 60 ný-
smíðar, tvö skip voru flutt inn
notuð og einn opinn bátur var
dekkaður. Auk þess var einni lítilli
ferju breytt í fiskiskip.