Tímarit lögfræðinga - 01.04.1980, Qupperneq 13
erfðalög og hegningarlög. í skránni er einungis getið sérprenta,
þegar ekki var hægt að nálgast efnið eftir öðrum leiðum. Spjald-
skrár Landsbókasafns voru athugaðar, ef vera kynni að einhverjar
breytingar hefðu verið gerðar á flokkun, t.d. eldra efni endurflokk-
að. íslenzk bókaskrá 1974 og 1975 var einnig lögð til grundvallar.
Ekki voru aðrir efnisflokkar yfirfarnir.
7) Skrá Háskólabókasafns
Allt efni, sem þar var flokkað í 340 (lögfræði) og ekki var áður
komið í skrá Landsbókasafns, var athugað. Unnið var að flokkun
á íslenskum ritum í safninu, svo að í skránni er aðeins nokkur hluti
þess efnis, sem safnið á í þessum efnisflokki.
8) Eftirtalin samnorræn lagatímarit, árbækur og ritraðir:
NIR (Nordisk tidskrift för immaterialrátt och angránsande ámnes-
omráden). (Sth.) (frá 1972)
Nordisk administrativt tidsskrift. (Kbh.)
Nordisk forsikringstidsskrift. (Sth.)
Nordisk juristmode. Forhandlingerne. (Kbh. og víðar)
Nordisk kriminalistisk ársbok. (Sth.) (útg. til 1962)
Nordisk tidsskrift for international ret. (Kbh.)
Nordisk tidsskrift for kriminalvidenskab. (Kbh.)
Scandinavian studies in criminology. (Oslo) (útg. frá 1965)
Scandinavian studies in law. (Sth.) (útg. frá 1957)
Tidsskrift for rettsvitenskap. (Oslo)
Nú hefur verið gerð grein fyrir takmörkun skrárinnar. Líklegt er,
að einhvers efnis verði saknað. Bæði er, að margir lögfræðingar geta
ritstarfa sinna ekki nákvæmlega í Lögfræðingatali og eins hitt, að
sumt af því efni, sem þar var getið, fannst ekki í þeim söfnum, sem
leitað var í. Á þetta þó eingöngu við um fjölritað efni svo og fáeinar
tímaritsgreinar og kafla í erlendum ritum. Hvað fjölfaldað efni varð-
ar var stundum erfitt að átta sig á, hvort telja skyldi það útgefið, þar
sem það fær oft litla útbreiðslu. Gildir þetta t.d. um sumt fjölritað efni,
sem kennarar lagadeildar dreifa til nemenda sinna. Var reynt að miða
við, að rit hefðu a.m.k. titilsíðu og kápu. Hugsanlegt er, að þessi regla
hafi einhvers staðar verið brotin.
Þess ber og að geta að öllum blaðagreinum var sleppt og enga ritdóma
er að finna í skránni utan tvo, sem birtust í lagatímaritunum, og fylgja
þeir ritdæmdum verkum.
7