Tímarit lögfræðinga - 01.04.1980, Qupperneq 14
EFNISFLOKKUN
Eftir að efnisumfang var að mestu ráðið, lá fyrir að ákveða gerð
eða uppbyggingu skrárinnar. Var ákveðið að nota efnisorð líkt og
Friðjón Skarphéðinsson hafði notað við sína skrá. Þegar talsvert efni
hafði verið flokkað, kom í ljós, að miðað við efnisramma þann, sem
þegar var búið að setja, vantaði gömlu skrána efnisflokka. Því var
eftir talsverða athugun horfið að því ráði að styðjast að mestu við
danska flokkaða efnisorðaskrá yfir lagabókmenntir, Dansk juridisk
bibliografi. Sú skrá bygg'ir á mörgum aðalefnisflokkum, sem síðan
greinast mismikið innbyrðis. Þar sem augljóst var, að þessi skrá yrði
aðeins brot af þeirri dönsku, þótti ekki ástæða til jafn ítarlegrar flokk-
unar og þar er notuð.
Við þýðingar á dönsku fagheitunum á íslensku var reynt að styðj-
ast við áður gerða skrá, einnig við þýðingar, sem til voru á lögfræði-
flokknum samkvæmt flokkunarkerfi Dewey. Mikið gágn var einnig að
riti Björns Þ. Guðmundssonar: Lögbókin þín og að riti Gunnars G.
Schram: Stjórnarskrá íslands. Þar að auki var leitað til sérfróðra
manna í lögfræði.
I skránni eru alls 27 aðalefnisflokkar og 52 undirflokkar.
TILHÖGUN SKRÁRINNAR
Skráin skiptist í flokkaða efnisorðaskrá og nafnaskrá.
Flokkuð efnisorðaskrá
Þessi hluti skrárinnar hefur hlaupandi tölumerkingu frá 1 upp í 618.
Það veldur því, að hvert rit eða grein fær aðeins eina færslu í skránni.
Ef hins vegar er fjallað um tvö eða fleiri efni, er aftast í víkjandi efn-
isflokki (aðal- eða undirflokki) tilvísun til þess, hvar éfnið sé einnig að
finna. Ekki eru hafðar tilvísanir milli undirefnisorða innan sama aðal-
efnisflokks. Innan hvers efnisorðs er spjöldum raðað í stafrófsröð
eftir skírnarnöfnum íslenskra höfunda, eftirnöfnum erlendra höfunda
og titlum titilskráðra rita. Auk þess ræður tímaröð, þegar um mismun-
andi útgáfur sömu verka er að ræða. I flokknum Dómasöfn — dóms-
úrlausnir ræður tímaröð á eftir stafrófsröð.
Þar sem í þessa skrá eru teknar tímaritsgreinar, tímarit, bókakafl-
ar og sjálfstæð rit varð að haga skráningu í samræmi við það.
Ski-áningu greina er þannig háttað, að getið er höfundar eða höf-
unda, ef fleiri eru en einn. Síðan koma eftirtalin atriði: Titill, undir-
titill, ef hans er getið, heiti tímarits, tölusetning árgangs og tölublaðs,
8