Tímarit lögfræðinga - 01.04.1986, Page 62
Stjórnsýsludómstólar
Meðal hugmynda um endurbætur í stjórnsýslu og verkefnaskiptingu
stjórnvalda og dómstóla sem áleitnastar hafa verið á undanförnum
áratug er stofnun stjórnsýsludómstóla sem fái það hlutverk aðallega
að skera úr ágreiningi borgaranna við yfirvöld og leysa úr ágreiningi
á sviði stjórnsýsluréttar. Nokkuð hefur þess gætt að stjórnvöldum
væri falið úrskurðarvald af þessu tagi hér á landi án þess að úr því
hafi orðið heilsteypt stjórnsýsludómstólakerfi eins og er víða erlend-
is, t.d. í Finnlandi, Svíþjóð og Frakklandi. 1 Danmörku hafa hugmynd-
ir manna í þessu efni fallið í þann farvég að úrlausnum stjórnsýslu-
dómstóla ætti að mega skjóta til hæstaréttar. Þessa hugmynd mætti
nýta hér á þann hátt að fela sýslumönnum úrlausn tiltekinna stjórn-
sýsluréttarmála með áfrýjunarrétti beint til Hæstaréttar. 1 öðrum
tilvikum gætu mál sætt endurskoðun í viðkomandi ráðuneyti eins og
hér er lagt til í liðum 7.6 og 7.7. I þeim tilvikum þyrfti að setja skýr-
ar reglur um að hve miklu leyti eigi að vera hægt að leita til dómstóla
um frekari endurskoðun.
Um 10. Gjaldheimta
Mér virðist að ýmsu leyti varhugavert að ganga lengra í að flytja
innheimtu ríkissjóðstekna frá sýslumönnum en þégar hefur verið
gert, en þessi stefna mundi þó virðast miklu síður varhugaverð ef
stjórn gjaldheimtanna yrði tengd umboðsstjórn ríkisins með þeim
hætti sem hér er lagt til. Vert er að íhuga, áður en lengra er haldið á
þessari braut, að innheimta ríkistekna hefur frá upphafi verið meðal
kjarnaþátta sýslumannsembættanna. Ríkisvaldið á mikið undir því að
innheimtu tekna þess sé vel fyrir komið, og það getur verið varhuga-
vert frá sjónarmiði hins almenna borgara að innheimtan verði um of
ópersónuleg og vélræn.
Um 11. Ríkislögmenn
Samkvæmt lögum nr. 51/1985 annast ríkislögmaður m.a. flutning
mála sem ríkið er aðili að. Dómsstarfalausir sýslumenn ættu að geta
farið með störf í umboði ríkislögmanns á hliðstæðan hátt og með saka-
mál sem áður er getið.
Sýslumenn í Reykjavík — sýslumenn og ráðuneyti
1 Reykjavík (og nágrenni) mætti fela lögreglustjóra að verulegu
leyti sömu störf og sýslumönnunum annars staðar eða safna þessum
56