Alþýðumaðurinn - 10.01.1951, Side 9
ALÞÝÐUMAÐURINN
9
Miðvikudagur 10. janúar 1951
Erindi
Friðjóns
Skarphéðinssonar
1. desember 1950.
Framhald af 4. síðu.
þeim efnum, sem hér var fyrir 50—
100 árum. Þótt vér séum furðu fá-
menn þjóð og af þeirri ástæðu megi
undur kallast, að vér getum staðið á
eigin fótum, þá hefir þjóðin með
sigrum sínum í þeim efnum einum,
sein ég nú hefi getið, sannað tilveru-
rétt sinn, meðan hún ekki bregzt
skyldum sínum. Hér að auki kemur
svo það, að vér eigum merkilegt
tungumál, sem oss hefir auðnazt að
varðveita, og bókmenntir gamlar og
nýjar, sem hver stórþjóð væri stolt
af, ef hún ætti slíkar. Einnig af
þessu, og þó ef til vill fyrst og fremst
af þessu, eigum vér skilyrðislausan
rétt að guðs og manna lögum á því
að vera sérstök þjóð, frjáls og óháð.
Þennan rétt vom ber oss að varð-
veita. Fyrir honum eigum vér að
berjast, ekki með vopnum, heldur
með daglegum athöfnum vorum
hvers og éins, þegnskap og skyldu-
rækni hver á sínu sviði. Mönnum
kann að þykja óþarft eða lítt við-
eigandi að bera á borð siðferðis-
prédikanir slíkar sem þessar og of
mikið sé að því gert. Það má vera
að svo sé. En mér er nær að halda,
að það væri hollt hverjum og einum,
ungum og gömlum, að stefna sjálf-
um sér fyrir dóm sinnar eigin sam-
vizku og prófa, hvort hér er í nokkru
ábótavant. Flestir munu það vera,
sem ekki eru því glámskyggnari,
sem komast að raun um, að betur er
hægt að gera, og af meiri trú-
mennsku hægt að vinna að þjóðern-
islegu, efnalegu og stjórnarfarslegu
sjálfstæði voru.
Merkur maður hefir sagt, að sá
sé þegnskaparmaður og góður son-
ur þjóðar sinnar, sem einlæglega
kostar kapps um það, vitandi vits
eða óafvitandi, að þjóðfélag hans
græði á viðskiptum við sjálfan hann,
að hann veiti því meira en hann
þiggur af því. Þetta er oss hverjum
og einum hollt að hugleiða og í
þessu er meðal annars fólgin trúnað-
arskylda þjóðarinnar við sjálfa sig.
Friðjón Skarphéðinsson.
Auglýsið í Alþýðum.
(
Erlingur Friðjónsson
ábyrgðarmaður Alþýðumannsins
1931—1945.
Lausn jólagetraunar
Alþýðuniannsins
í jólablaði Alþýðumannsins var
spurt um 5 kvæði, er birt voru, eftir
hverja þau væru og í hvaða bókum.
Heitið var 200 kr. fyrir rétta lausn.
Þeir Magnús Óskarsson, Þórunnar-
stræti 124, Akureyri, og Stefán
Yngvi Finnbogason, Brekkugötu 29,
Akureyri, sendu réttar ráðningar.
Skiptu þeir, samkvæmt eigin ósk,
verðlaununum með sér.
Lausnin er þessi:
Órar, höf. Kristjón Einarsson, í
bók hans Villtur vegar.
Nœturljóð, höf. Kári Tryggvason,
í ljóðabók hans Yfir Ódáðahraun.
Haustljóð, höf. Heiðrekur Guð-
j
i inundsson, í ljóðabók hans Arfur ör-
! eigans.
i Á götunni, höf. Böðvar Guðlaugs-
son, í Ijóðabók hans Klukkan slær.
Ævintýri, höf. Bragi Sigurjóns-
son, í Ijóðabók hans Hver er kom-
inn úti?
r
Agæt sala Kaldbaks
Sl. mánudag seldi togarinn Kald-
bakur afla sinn, 3428 kits, í Eng-
landi fyrir 12.716 sterlingspund.
Togarinn Svalbakur selur í dag í
Aberdeen. Er hann með fullfermi. —
Jónas Þorsteinsson, 1. stýrimaður
Svalbaks, var með skipið í veiðiför-
inni og gekk mjög vel. Hann sigldi
og skipinu út.
Álþýðumaðurinn
kemur væntanlega ekki út fyrr en
annan þriðjudag hér frá.
TILKYNNING
Nr. 1, 1951.
Fjárhagsráð hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á benzíni
og olíum:
1. Benzín .............. pr. líter kr. 1.51
2. Ljósaolía .......... pr. tonn kr. 1050.00
3. Hráolía ............. pr. líter kr. 0.63
Ofangreint verð á benzíni og hráolíu er miðað við afhendingu
frá „tank“ í Reykjavík eða annarri innflutningshöfn, en ljósaolíu-
verðið við afhendingu á tunnum í Reykjavík eða annarri innflutn-
ingshöfn. Sé hráolía og benzín aflient í tunnum, má verðið vera
2% eyri hærra hver líter af hráolíu og 3 aurum hærra hver líter
af benzíni.
í Hafnarfirði skal benzínverð vera sama og í Reykjavík. í Borg-
arnesi má benzínverð vera 5 aurum hærra hver lítri, og í Stykkis-
hólmi, ísafirði, Skagaströnd, Sauðárkróki, Siglufirði, Akureyri,
Húsavík, Þórshöfn, Norðfirði og Eskifirði má verðið vera 7 aur-
um hærra hver lítri. Ef benzín er flutt á landi frá einhverjum fram-
angreindra staða, má bæta einum eyri pr. lítra við grimnverðið á
þessum stöðum fyrir hverja 15 km. sem benzínið er flutt og má
reikna gjaldið, ef um er að ræða helming þeirrar vegalengdar eða
meira.
Á öðrum stöðum utan Reykjavíkur, sem benzín er flutt til sjó-
leiðis, má verðið vera 11 aurum hærra en í Reykjavík.
Verðgæzlustjóri ákveður verðið á hverjum sölustað samkvæmt
framansögðu.
í Hafnarfirði skal verðið á hráolíu vera hið sama og í Reykja-
vík. I verstöðvum við Faxaflóa og á Suðurnesjum má verðið vera
3% eyri hærra pr. líter, en annars staðar á landinu 4% eyri pr.
Iíter, ef olían er ekki flutt inn beint frá útlöndum. í Hafnarfirði
skal verðið ó ljósaolíu vera hið sama og í Reykjavík, en annars
staðar á landinu má það vera kr. 70.00 hærra pr. tonn, ef olían er
ekki flutt beint frá útlöndum.
Söluskattur á benzíni og ljósaolíu er innifalinn í verðinu.
Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 7. janúar 1951.
Reykjavík, 6. janúar 1951.
Verðlagsskrifstofan.
Endurskoðnnar- og bðkbalds-
skrifstofu
opna ég um miðjan þennan mánuð í Hafnarstræti 101 (áður
Ryelshús).
Annast öll störf, sem venja .er að fela löggiltum endurskoðend-
um.
'Vil sérstaklega benda skattgreiðendum á, að ég veiti aðstoð við
skattaframtöl.
Viðtalstími er aðeins kl. 6—7 e. h., en aðrir tímar eftir sam-
komulagi.
Símanúmer er 1966 — heimasími 1239.
Akureyri, 4. janúar 1951.
Baldur Guðlaugsson,
lögg. endurskoðandi.