Alþýðumaðurinn - 10.01.1951, Side 12
12
ALÞÝÐUMAÐURINN
Miðvikudagur 10. janúar 1951
Alþýðuflokksfélögin
á Ákureyri
halda
Spilakvöld
að Hótel Norðurlandi föstudaginn
12. janúar 1951 kl. 8.30 e. h.
Spiluð verður félagsvist. Verð-
laun veitt. Dansað til kl. 1.
Félagsmenn eru beðnir að hafa
með sér spil og blýant.
Alþýðjulokksfélag Akureyrar.
Kvenfélag Alþýðuflokksins.
Félag ungra jafnaðarmanna.
Ritstjóraskipti
;
| við Samvinnnna
j Haukur Snorrason, blaðamaður,
j hefir nú látið af ritstjóm Samvinn-
j unnar frá sl. áramótum að telja, og
flytzt útgáfa ritsins jafnframt héðan
suður til Reykjavíkur. Við ritstjórn
Samvinnunnar tekur nú Benedikt
Gröndal, sem verið hefir fréttastjóri
Alþýðublaðsins undanfarin ár. Læt-
ur hann af því starfi um leið.
Leiðrétting
í síðasta árgangi Alþýðumannsins
ruglaðist númeraröð á tveimur tbl.
í desembermánuði. Stóð á blöðun-
um að þau væru 49. og 50. tbl., en
átti að vera 44. og 45. tbl. Eru kaup-
endur beðnir að athuga þetta, þeir
sem halda blaðinu saman.
Æskaljrðsstartsemi,
íþröttir ofl vínveitingar
Alþýðublaðið, 5. janúar sl., skýr-
ir frá því, að því sé kunnugt um, að
áfengisvarnarnefnd Reykjavíkur
hafi aflað sér þeirra upplýsinga, að
stórfelldar vínveitingar hafi átt sér
stað á vegum nokkurra íþróttafélaga
í höfuðborginni frá 3. ágúst til 6.
desember á sl. ári. Er kjarni fréttar
Alþýðublaðsins þessi:
„Vínveilingar 67 kvöld á 5 rnán-
uðum! Upplýsingar lögreglustjóra
munu bundnar við fjögur íþróttafé-
lög í Reykjavík, Í.R., K.R., Ármann
og Fram, en þrjú þessi félög hafa
einkum frjálsar íþróttir á stefnu-
skrá sinni og eitt knattspyrnu. Hefir
Alþýðublaðið fregnað eftir örugg-
um heimildum, að Í.R. hafi haft vín-
veitingar á skemmtunum í tveimur
samkomuhúsum, Tívoli og Tjarnar-
café, 14 kvöld á umræddu tímabili,
6 kvöld í ágúst, 1 kvöld í september,
3 kvöld í nóvember og 4 kvöld í des-
ember. Frjálsíþróttadeild K.R. hefir
haft vínveitingar 18 kvöld á sama
tímabili, einnig í Tívoli og Tjamar-
café, 12 kvöld í ágúst og 6 kvöld í
nóvember. Ennfremur hefir skíða-
deild K.R. haft vínveitingar í Breið-
firðingabúð 2 kvöld í nóvember. Ár-
mann hefir haft vínveitingar í sam-
komusal mjólkurstöðvarinnar 16
! kvöld á mnræddum fimm mánuðum,
3 kvöld í september, 5 kvöld í októ-
ber, 6 kvöld í nóvember og 2 kvöld
í desember. Fram hefir haft vínveit-
ingar að Hótel Borg 17 kvöld á sama
tímabili, 5 kvöld í september, 5
kvöld í október, 5 kvöld í nóvember
og 2 kvöld í desember.“
Auk þessa upplýsir Alþýðublað-
ið, að skíðadeild Æskulýðsfylking-
arinnar (ungkommar) hafi fengið
vínveitingaleyfi.
Höfuðorsök þessarar hneisu telur
blaðið munu vera þá, að íþróttafé-
lögin muni neydd til vínveitinganna
af hálfu forráðamanna samkomu-
staðanna, en getur þess þó, að a. m.
k. eitt íþróttafélaganna hafi ráð á
eigin samkomustað, svo að þetta geti
ekki verið ástæðan í því tilfelli. S.l.
i sunnudag bætir Alþýðublaðið enn
við fréttir sínar af þessu ómenning-
armáli. Þar segir svo:
„Félag ungra Framsóknarmanna í
Reykjavík er aðili að vínveitingun-
um á vegum íþróttafélaganna, og er
hlutur þess í málinu sýnu lakari en
þeirra. Rekur F.U.F. samkomusal
mjólkurstöðvarinnar að Laugavegi
162 í félagi við Glímufélagið Ár-
mann, og mun ágóðinn skiptast jafnt
á milli félaganna. Hafa þessi tvö fé-
lög öll ráð á þessum samkomusal, en
hafa þar samt stórfelldar vínveiting-
ar um hönd. Hin íþróttafélögin eru
hins vegar knúin til að afla vínveit-
ingaleyfa til að fá skemmíistaðina
leigða. Mun það að vonum vekja
mikla athygli, að æskulýðsfélag eins
stj órnmálaflokksins skuli afla sér
fjár til starfsemi sinnar með því að
halda skemmlanir, þar sem það veit-
ir vín í stórum stíl ótilneytt með
öllu.“
Hér er á ferðinni ljótt mál. Ekk-
ert sýnir ef til vill betur, hve al-
menningsálitið er helsjúkt með þjóð
vorri í áfengismálunum en að slíkt
og þvílíkt geti átt sér stað, að nokkr-
um heilvita manni finnst geti farið
saman æskulýðsstarfsemi, hvort sem
hún er stiómmálalegs eðlis eða ann-
ars, íþróttir og vínveitingar!
Asíaiftarverð
A Iþýðum. hækkar
Svo sem kaupendum Alþýðum. er
kunnugt, hefir áskrifíarverð blaðsins
haldizt óbreytt, kr. 15.00, síðan Al-
þýðum. var stækkaður 1945. Sökum
stórlega hækkaðs prentkostnaðar og
pappírsverðs verður ekki hjá því J
komizt að hækka verð blaðsins !
nokkuð, þótt illt sé, og hefir það
verið ákveðið kr. 20.00 árg. frá 1. i
janúar 1951 að telja.
Um 500 hestar af töðu
eyðilögðust af eldi og
vatni í Kaupangi
Á gamlaárskvöld kom upp eldur í
súgþurrkunarklefa við heyhlöðu í
Kaupangssveit og læsti sig eftir
timburstokki inn í heyhlöðuna. Kom
slökkvilið Akureyrar á vettvang og
slökkti eldinn, áður en tjón yrði
verulegt á húsum, en samkvæmt at-
hugun matsmanna á heyskemmdum
munu þarna hafa eyðilagzt af eldi
og vatni um 500 hestar af um 700,
sem í hlöðunni voru, en það mun
svara til um 40 þús. kr. að verðgildi,
eins og gangverð var á töðu sl. sum-
L
MILDRED PIERCE
Spennandi og áhrifamikil ame-
rísk kvikmynd.
Aðalhlutverk:
Joan Crawford
Jack Carson
Zachary ScoU.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Harðbakur
Fx-amhald af 1. síðu
að Harðbakur sé einn alvandaðasti
togarinn, sem nú gengur að veiðum
hér við land.
Svo sem fyrr getur er togarinn nú
að veiðum, og mun ráðgert, að hann
sigli til Englands með afla sinn.
Sæmundur Auðunsson er skip-
stjóri Harðbaks, eins og fyrr er frá
sagt, Alfreð Finnbogason 1. stýri-
maður og Hallur Helgason 1. vél-
stjóri. Gunnar Auðunsson, bróðir
Sæmundar, hefir tekið við skip-
stjórn Kaldbaks.
Enda þótt mikil átök yrðu um það
á sínum tíma í bæjarstjórn Akureyr-
ar, hvort bærinn, og þar með Ú. A.,
j ætti að standa að kaupum hins nýja
! togara hingað í bæinn, þá mun nú
| sá ágreiningur gleymdur og allir
! bæjarbúar fagna því innilega, að
j þessum nýja áfanga í atvinnu- og út-
gerðarmálum bæjarins skuli vera
náð. Sjálfsagt er þó að minna á, að
enn hefir Ú. A. fulla þörf fyrir, að
bæjarbúar minnist þess, að hluta-
bréfskaup eru vel þegin. Á þann hátt
er enn betur tryggt, að góð byrjun
öðlizt góðan framgang um langan
tíma.
ar. Sést á þessu, hve gífurlegt tjón
bóndans, Árna Ásbjörnssonar er,
þvi að illgerlegt mun, að afla töðu-
birgða í skarðið.
Ekki varð tjón á gripum.
Algerlega er ókunnugt enn um or-
sakir íkviknunar þessarar.