Dýraverndarinn - 01.04.1954, Side 8
24
DÝRAVERNDARINN
9. gr.
Hvert land skal hafa rétt til að gera skrá yfir
þær fuglategundir, staðfugla og farfugla, sem ein-
staklingar mega halda föngnum, og skal þar kveða
á um þær aðferðir, er leyfilegar eru við föngun-
ina, og sömuleiðis um það, við hvaða aðstæður
megi flytja fuglana til og geyma þá fangna. Hvert
land skal setja reglur um verzlun með slíka fugla
og gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess
að takmarka hana.
10. gr.
Aðilar að samþykktinni skuldbinda sig til að
rannsaka og gera viðeigandi ráðstafanir til að
varna tortímingu fugla af völdum úrgangsolíu frá
skipum eða annarri saurgun vatns, eða af völd-
um vita, rafmagnsstrengja, skordýraeiturs eða
annars eiturs, svo og vegna hliðstæðra orsaka.
Þeir skulu leitast við að glæða hjá börnum og
almenningi skilning á nauðsyn þess að vernda og
friða fugla.
11. gr.
Til þess að bæta úr afleiðingum þess, að hent-
ugum varpsvæðum fyrir fugla fækkar sem óð-
ast fyrir aðgerðir manna, skuldbinda aðilar sam-
þykktarinnar sig til þess að hvetja til þess þegar
í stað og stuðla að því með öllum viðeigandi ráð-
um, að bæði á sjó og landi verði friðlýst ákveðin
svæði af hentugri stærð og á hentugum stöðum,
þar sem fuglar geti orpið og komið upp ungum
sínum óáreittir og þar sem farfuglar geti einnig
hvílzt og aflað sér ætis í friði.
Samþykkt þessa skal fullgilda, og skal hún
haldast í gildi meðal allra ríkja, er undirrita hana.
Fari svo, að eitthvert þeirra segi henni upp, skal
sú uppsögn aðeins taka til hlutaðeigandi ríkis og
ekki taka gildi fyrr en að ári liðnu frá því, er upp-
sögnin var tilkynnt aðilum samþykktarinnar.
Þær þjóðir, sem ekki hafa undirritað samþykkt-
ina, skulu hafa rétt til að gerast aðilar að henni,
þegar er þær æskja þess.
Þau ríki, er voru aðilar að samþykktinni fró
1902, en hafa ekki fullgilt þessa samþykkt, skulu
framvegis vera bundin af ákvæðum samþykktar-
innar frá 1902.
f 'i
DÝRAVERNDARINN
Útgefandi: Dýraverndunarfélag fslands.
Ritstjóri: Sigurður Helgason,
Brávallagötu 12, Reykjavík. (Sími 5732).
Afgreiðslu og innheimtu annast:
Hjörtur Hansson,
Bankastræti 11 (miðhæð), pósthólf 566, Reykjavík.
Ber að senda honum andvirði blaðsins og tilkynn-
ingar um nýja kaupendur.
Prentaður í Prentsmiðju Jóns Helgasonar.
,____________________________________________J
TIL ATHUGUNAR
Þess er getið í grein Þorsteins Einarssonar, íþróttafull-
trúa, hér að framan, og auk þess var frá því sagt á sínum
tíma hér í blaðinu, að ísland hefði gerzt aðili að alþjóða-
samtökum til fuglaverndunar og að 5 manna nefnd hefði
verið skipuð (24. apríl, 1948) til að koma fram fyrir hönd
íslands í þessum málum.
Nefndin var skipuð þessum mönnum:
Dr. Finnur Guðmundsson, náttúrufræðingur, skipaður
formaður; Agnar Kofoed-Hansen, flugvallarstjóri; Kristinn
Stefánsson, læknir; Sigurður E. Hlíðar, yfirdýralæknir,
skipaður samkv. tilh.. Dýraverndunarfél. fslands, og Þor-
steinn Einarsson, íþróttafulltrúi, skipaður samkv. tilhl. Hins
íslenzka náttúrufræðifélags.
Þessari sömu nefnd var og falið að semja frumvarp til
nýrra laga um friðun fugla hér á landi, eins og Þorsteinn
Einarsson hefur gert grein fyrir hér að framan. Laga-
frumvarp nefndarinnar var samþykkt á síðasta alþingi með
litlum breytingum.
Þessi nýju friðunarlög verða nú smám saman birt hér
í blaðinu, eins og lofað hefur verið.
Or bréfi til Dýraverndarans.
Ég þakka ynnilega allar þær mörgu ánægjustundir, sem
Dýraverndarinn hefur veitt mér, frá því að ég gjörðist
kaupandi að honum, og óska honum og því góða málefni,
sem hann berst fyrir og öllum sem að honum standa,
er vinna af ást og einhug að bættum kjörum hinna
mállausu vina okkar, alls góðs á þessu nýja ári —
og ætíð.--------Málefnið er stórt og göfugt. Vinátta við
dýrin, umhyggja fyrri líðan þeirra og skilningur á kjör-
um þeirra er virkur þáttur í fegurð Iífsins og eitthvert
fegursta aðalsmerki hvers manns, sem slíkum eiginleikum
er gæddur. Seint eða aldrei verður of miklu fórnað í þágu
slikra eiginda — og aldrei verður of hörðum tökum tekið
á varmennskunni gagnvart dýrunum — ónærgætninni,
skilningsleysinu og harðúðinni. Að vinna gegn slíku er
barátta í þágu Ijóss og kærleika og á skilið öruggan og
einhuga stuðning allra, sem vilja vel og unna því góða
og fagra. (7. febr. 1954). J. ó.