Dýraverndarinn - 01.05.1981, Side 12
eðlilega minnkað, en er þó enn
stærstur.
í haust er leið urðu talsverð
blaðaskrif og umræður um hrein-
dýraveiðarnar og birtust ljótar sög-
ur í blöðum um hvernig að þeim
væri unnið. Vafalaust mun ýmis-
legt hafa verið missagt og orðum
aukið í þeirri umfjöllun en þó virð-
ist mér ljóst að úrbóta sé þörf í
þessu efni. Mun ég hér á eftir lýsa
hugmyndum um hvernig þoka
mætti málum þessum til betri veg-
ar.
1. Tryggt verði að hreindýraveið-
arnar fari fratn á vegum sveitar-
stjórnar og hreindýraeftirlitsmanns
á hverjum stað.
Ráðuneytið mun raunar ætlast
til að svona sé að málum staðið, sbr.
reglugerð um hreindýraveiðar, en
talsverður misbrestur mun vera á
því í framkvæmd. Hér í Borgar-
fjarðarhreppi hefur þessi háttur
verið hafður á frá því að leyfi
fékkst fyrst til veiða árið 1974 og
gefist mjög vel. Fjórir til sex menn
hafa unnið að veiðunum undir for-
ystu hreindýraeftirlitsmannsins og
hafa þeim að sjálfsögðu verið
greidd þokkaleg laun fyrir. Hagn-
aður hefur alltaf orðið af veiðun-
um að undanskildu einu ári þegar
millj. var skipt milli bænda í Borg-
arfirði í hlutfalli við landverð jarða
í fasteignamati.
2. Ráðinn verði maður í fullt starf
til þess að hafa eftirlit með veið-
unum.
Hreindýraeftirlitsmaður Fljóts-
dalshrepps hefur nú yfirumsjón
með hreindýrum auk þess sem
hann á einnig að fylgjast með störf-
um hreindýraeftirlitsmanna, sem
starfa í hverju sveitarfélagi á Aus:.-
urlandi. Hér mun vera um illa
launað aukastarf að ræða og aug-
ljóst er að til þess að það verði
meira en nafnið eitt, veitir ekki af
manni í fullu starfi. Tveir yrðu að-
alþættir í starfi eftirlitsmannsins: í
fyrsta lagi að fylgjast með hreindýr-
unum allt árið og gera tillögur um
veiðar og skiptingu veiðileyfa og í
öðru lagi að hafa umsjón og eftir-
lit með veiðunum.
3. Sett verði ný lög um hreindýr og
hreindýraveiðar.
Núgildandi lög um hreindýr eru
að stofni til frá 1940, og þá sett
eingöngu til að kveða á um alfrið-
un þeirra. Breyting var gerð á lög-
unum 1954 og ráðherra þá veitt
vald til að heimila veiðar, telji eft-
irlitsmaður hreindýra að stofninum
stafi ekki hætta af. Mennamálaráð-
herrar hafa gefið út reglugerðir
með stoð í fyrrnefndum lögum. Nú-
verandi reglugerð sem að stofni til
hefur verið óbreytt síðustu árin, er
góð svo langt sem hún nær, en
æskilegt væri að löggjafinn mark-
aði skýrar stefnuna í þessum mál-
um og tæki þá mið af þeirri reynslu
sem fengist hefur síðan 1954 að
veiðar voru leyfðar á ný.
Viðurlög við brotum á lögunum
þyrfti að þyngja. Ekki er líklegt að
núgildandi hámarkssekt, eitt hundr-
að nýkróna, hafi mikið varnaðar-
gildi.
Magnús Þorsteinsson,
Höfn, Borgarfirði eystra.
8
DÝRAVERNDARINN