Dýraverndarinn - 01.05.1981, Side 16

Dýraverndarinn - 01.05.1981, Side 16
Börnin skrífa Akranesi, 30. 11. ’80 Kæri Dýraverndari! Ég óska eftir að verði meira um barnaefni í Dýraverndaranum, t. d. framhaldssaga um dýr, leikir eða jafnvel gátur. Ég óska eftir svari sem fyrst. Með fyrirfram þökk, Sigríður Þ. Reynisdóttir, Kirkjubraut 58, 300 Akranesi. Blaðið þakkar Sigríði á Akranesi bréfið og vissulega munum við taka þessar ábendingar hennar til gaum- gæfilegrar athugunar. „Grímur geitskór" sendir blað- inu eftirfarandi sögu, en tekur þó fram að hann hafi ekki samið hana. Sagan heitir Lappi i Lalli og Lappi voru bestu vinir. Lappi var einhver fallegasti hund- urinn í Flórens, og Lalli, eigandi hans, var lítill, haltur drengur. Þeir áttu heima hjá mömmu Lalla og systkinum hans í litlu húsi í skugga stórrar dómkirkju. Þau voru öll glöð og kát, nema þegar þau voru svöng, en það var oft, því að þau voru bláfátæk. Móð- ir Lalla vann mikið, Systkini hans unnu líka, og Lalli vann eins mikið og hann gat. En hann gat ekki mik- ið, af því að hann var haltur. Hann sat löngum á tröppum stóru dóm- kirkjunnar og horfði á fólkið, sem kom og fór. Einn morguninn, þegar hann sat þar í sólskininu, nam ókunnur herramaður staðar og horfði á hann. - En hvað hundurinn þinn er fallegur, drengur minn, sagði hann vingjarnlega. — Lappi er ljómandi, sagði Lalli. Þér ættuð að sjá hann á sunnudög- um, þegar nýbúið er að baða hann. - Hve gamall er hundurinn? - Hann er þriggja ára. - Kann hann að gera nokkuð skrýtið? - Ég held nú það, sagði Lalli. Lappi kann margar listir. Viljið þér sjá hann leika eitthvað af þeim? - Já, mig langar mikið til þess, sagði herramaðurinn. Lappi lék nú ýmsar listir, dans- aði á afturfótunum, lagðist niður og lést vera dauður, sat uppréttur og betlaði með framlöppunum o. s. frv. Ókunni maðurinn klappaði samí an lófunum. - Lappi þinn er mesti listahund- ur, sagði hann. Viltu koma heim til mín með hann og láta hann skemmta litlu, veiku barni, sem ég á? Lalli brosti og sagðist vilja það. Maðurinn sagði honum að koma í stóra gistihúsið eftir hádegið. Svo fékk hann honum tvær krónur og kvaddi hann. Lalli hljóp heim og hélt fast ut- an um krónurnar. - Þetta gaf hann mér, af því að Lappi lék fyrir hann, sagði Lalli og fékk mömmu sinni peningana. Nú getur þú keypt þér skóna, sem þig vantar, og kaffið, sem þér þykir svo gott að drekka á morgnana, og margt fleira. Tvær krónur var mikí ill auður í augum Lalla í þá daga. II Eftir hádegið trítluðu þeir Lappi og Lalli upp að gistihúsinu. Þeim var fylgt inn í fallega stofu með gylltum veggjum og flossætum. Ókunni maðurinn sat þar á stól, og lítill, fölleitur drengur lá þar á legubekk. Hann talaði útlent mál, sem Lalli skildi ekki. Það sá Lalli, að honum þótti gaman að sjá listir Lappa, því að hann klappaði sam- an lófunum og brosti. Drengurinn gaf þeim góðgæti. Lalli og Lappi borðuðu það með bestu lyst. Ókunni maðurinn gaf Lalla loks fimm krónur og sagði honum, að nú mættu þeir fara heim. Á heimleiðinni var Lalli alltaf að hugsa um, hve gaman það væri, ef herramaðurinn kæmi á hverjum degi til dómkirkjunnar. Vesalings Lalli hafði ekki skilið það, sem ó- kunni drengurinn hafði kallað á eftir honum. Þegar hann var að fara með Lappa, hafði drengurinn sagt: 12 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.