Dýraverndarinn - 01.05.1981, Page 21
Þetta skeður líka í vatninu. Hornsílið byggir hreiSur til varn- Þannig hagar náttúran þessu. Gorillur berja sér á brjóst meS
ar hrognum sínum og karlfiskurinn biegir kynbræSrum sín- knýttum hnefum, fuglarnir syngja og við mennirnir setjum
um frá meS broddunum og er þá oft mjög hugdjarfur. upþ rimlagirðingu.
Frá Dýraverndunarfélagi Akureyrar
Dýraverndunarfélag Akureyrar
hefur óskað eftir því við bæjar-
stjórn, að félaginu verði veitt land-
spilda undir dýragrafreit. Hefur
verið tekið jákvætt undir þessa
málaleitan og skipulagsnefnd falið
að finna heppilegan stað.
„Við vonumst eftir að landsvæði
fáist undir grafreitinn, því við í
stjórninni teljum það mikið nauð-
synjamál, höfum raunar beðið svars
í tvö ár," sagði Maríus Helgason,
formaður Dýraverndunarfélagsins, í
samtali við blaðið. Sagði Maríus, að
eins og væri ættu dýraeigendur ekki
aðra möguleika en grafa dýrin í
garða sína þegar þau væru öll, ell-
egar þá á víðavangi, og margir
sæju ekki aðra leið en kasta þeim á
haugana.
DÝRAVERNDARINN
„Þetta þykir mönnum sárt, því
sem betur fer þykir flestum vænt
um dýrin sín. Hér er því ekki ein-
göngu á ferðinni hagsmunamál dýr-
anna, heldur er þetta einnig mann-
úðarmál gagnvart þeim sem eiga
dýrin.
Það hefur verið rætt um land
norðan útivistarsvæðisins í Kjarna
eða sunnan kirkjugarðsins. Ég held
að það fyrrnefnda verði heppilegra.
Ef þetta verður að veruleika, þá
mun félagið sjá um að girða garð-
inn og skipuleggja hann eins og
hvern annan kirkjugarð. Ég veit
ekki betur en þetta verði þá fyrsti
dýragrafreiturinn á landinu," sagði
Maríus Helgason.
Stjórn Dýraverndunarfélags Ak-
ureyrar hefur einnig haft þá reglu,
að senda blöðum á Akureyri stutt-
orðar ábendingar til birtingar um
dýraverndunarmál. Eru nokkrar
þeirra hér í blaðinu, því að í raun
réttri eiga þær erindi til okkar allra.
— Er ekki kominn tími til að kaupa á
hann ól?
17