Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1981, Blaðsíða 22

Dýraverndarinn - 01.05.1981, Blaðsíða 22
Blaðaúrklippur um málefni dýranna HVENÆR LÉTTIR ÞEIM SKUGGA? Edda Bjarnadóttir skrifar' „Velvakandi. „Maðurinn er æðsta skepna jarð- arinnar," stendur í bibíunni, en það hefur hvarflað að sumum, þ. á m. Kjarval okkar blessuðum, að hval- urinn slagi hátt upp í manninn, eða sé honum jafnvel fremri á ýms- um sviðum. Hvalurinn pínir ekki né drepur náunga sinn. Það gerir maðurinn aftur á móti. Hann kvel- ur einnig önnur dýr að nauðsynja- lausu. Hvalveiðar eru engin nauð- syn, en þjáningar fórnarlambanna ómældar. tlvar eru mörkin? Þrátt fyrir einlæga sannfæringu fjölda fólks um að hvalveiðar séu siðleysi er haldið áfram að ráðskast með alla stofna allra hvalategunda og fullyrt, að það sé skynsamlegt að veiða eins mikið og stofnarnir framast þola. Hvar eru mörkin Það eru margar eyður í vitneskju manna um hvalinn, þetta gæflynda risadýr, prýði hafsins og augnayndi sæfara. Hvalaútgerðin var langt komin með að útrýma öllum stærstu hvalategundum heims og sjálfri sér í leiðinni, þegar Alþjóða- hvalveiðiráðið var stofnað. Þá var tekið til við að friða í dauðans of- boði til þess að bjarga fjármunum. Alþjóðahvalveiðiráðið friðar ekki hvali af siðferðilegum, mannúðar- né fagurfræðilegum ástæðum. 18 Forsmáir gildi manngöfgandi en óarðbœrra verðmæta Alþjóðahvalveiðiráðið hefur al- drei látið í ljós hvernig siðferðilega sé hægt að réttlæta dráp hvala. Það hefur bersýnilega engan áhuga á lif- andi hvölum. Svona algjört neyslu- sjónarmið er fram úr hófi ein- strengingslegt og það sem verra er, það forsmáir gildi manngöfgandi en óarðbærra verðmæta. Þegar sumrar á íslandi halda fjögur svört skip til hafs með skut- ulbyssur í stafni. Hvalvertíð hefst. Hvenær léttir þeim skugga, sem hún er á yndislegasta tíma ársins?" Morgunbl. 31. 5. '81. VAR VÍSAÐ ÚR LANDI OG GREIDDU 100 KR. í SEKT Mál Hollendinganna tveggja, sem gripnir voru á Keflavíkurflug- velli á föstudagsmorgun með 116 andaregg í fórum sínum, lauk með dómssátt í gær og var þeim gert að greiða hæstu sekt sem lög kveða á um. Greiddu Hollendingarnir 100 krónur hvor í sekt, og var þeim jafnframt vísað úr landi og fóru þeir utan í gærmorgun. Voru Hollendingarnir lýstir „per- sona non grata" og fá þeir ekki að koma til landsins næstu fimm árin og gildir það sama um hin Norður- löndin, þeir fá ekki að koma þangað heldur. „Svona sektir eru til þess eins fallnar að laða eggjaþjófa til lands- ins," sagði Árni Reynisson, fram- kvæmastjóri Náttúruverndarráðs í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann var spurður álits á lyktum máls eggjaþjófanna hollensku. „Þessi sekt er hlægileg og mér vitanlega hefur ekki staðið til að breyta þessu. Að vísu stendur yfir endurskoðun á lögum um fugla- veiðar og fuglavernd og líklega verður þetta eitthvað lagað í þeirri endurskoðun, en málið er það að við búum við 50% verðbólgu, en upphæðir sektanna eru bundnar í lögum, og verða þær hlægilegar á örfáum árum. Þær verða algerlega óvirkar og þýðingarlausar," sagði Árni Reynisson. Morgunbl. 21. 6. '81. LEIÐBEININGAR TIL ÖKUMANNA UM AKSTUR FRAM HJÁ BÚFÉNAÐI Enginn veit hversu margt búfjár er drepið eða slasað árlega á vegum landsins. En þessi slys fara ört vax- andi með aukinni umferð og enn- fremur fyrir aukna aðsókn búfjár- ins að vegafláum, síðan farið var að græða þá með sáðgresi. Fyrir þetta verður ekki tekið fyrr en all- ir aðalvegir verða friðaðir með girð- ingum, en það á langt í land. Margar ljótar sögur eru sagðar um fórnardýrin, einkum limlesta stórgripi. Oft eru sauðkindur einn- ig limlestar, en sem betur fer, munu þær í fleiri tilfellum drepast. Sjaldnast gefur slysavaldurinn sig fram, og mun ástæðan nokkurn veginn augljós. DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.