Dýraverndarinn - 01.05.1981, Side 25
Þessi mynd mun vera tekin á samkomu hvaljriðunarmanna á Lœkjartorgi fyrir
nokkru síðan. - Ljósm. A. K.
vogi hefur skapað vandamál og var
það rætt á fundi heilbrigðisnefndar
Kópavogs nýverið. Bragi Árnason,
formaður nefndarinnar, reifaði mál-
ið en síðan tók Ásgeir Pétursson
bæjarfógeti til máls og ræddi um
hundahald á stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Fógeti sagði að kvartanir hefðu
borist frá íbúum bæjarins og hefðu
sum málin verið leyst en önnur
ekki. Þá voru ræddar hugmyndir
um hvort æskilegt væri að reglu-
gerð um hundahald yrði rýmkuð og
þá settar strangar reglur um skrán-
ingu og skráningargjald hunda og
krafist vottorðs um hreinsun og að
heimilt yrði að gera lögtak hjá
hundaeiganda vegna gjalda.
Ásmundur Guðmundsson, yfir-
lögregluþjónn í Kópavogi, taldi
mál þessi mjög erfið. Ekki væri
hægt að fara inn á heimili og taka
dýr þótt töluvert af kvörtunum
hefðu borist.
Fógeti lagði mikla áherslu á það
í máli sínu að eftir að undanþágur
til hundahalds voru rýmkaðar í ná-
grannasveitarfélögunum, Garðabæ,
Seltjarnarnesi og Mosfellssveit,
hefði orðið aukning á hundahaldi
í hinum sveitarfélögunum, Kópa-
vogi og Reykjavík. Slíkt leiddi til
þess að erfiðara væri nú að halda
uppi gildandi reglum en áður var.
Fógeti greindi frá því að hann
mvndi á næstunni leggja fyrir heil-
brigðisnefnd áætlun um fram-
kvæmd samþykktar um hundahald
í Kópavogi frá árinu 1975. - ]. H.
Dagbl.
HUNDAHALD LEYFT MEÐ
ÁKVEÐNUM SKILYRÐUM
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum þann 30. júní
sl., með 6 atkvæðum gegn 5, að
DÝRAVERNDARINN
leyfa hundahald í bænum með á-
kveðnum skilyrðum. Á fundi þess-
um var samþykkt að lögreglusam-
þykkt fyrir Hafnarfjarðarkaupstað
jafnframt tillaga frá þeim Einari Þ.
Mathiesen og Árna Gunnlaugssyni
urn heimild til hundahalds með á-
kveðnum skilyrðum. Fyrir var í
lögreglusamþykkt heimild til leyfis
fyrir hundi til lögreglu, hjálpar-
sveita og blindra, en ekki ann-
arra.
Samþykkt sú sem gerð var, er á
þá leið að einstaklingum er heim-
ilt hundahald með vissum skilyrð-
um. Skilyrðin eru m. a. þau að skrá
verður hundinn og verður hundur-
inn alltaf að bera skrásetningar-
númer. Þá ber hundaeigendum að
greiða árlega leyfisgjald vegna
hundsins. Hundaeigendum er skylt
að hafa hundinn ábyrgðartryggðan
og skal hundurinn aldrei ganga
laus á almannafæri, öðruvísi en í
taumi og fylgd með aðila sem vald
hefur á hundinum.
Þá er óleyfilegt að fara með hund
inn í sjúkra- og skólahús, matvöru-
verslanir eða aðra staði þar sem
matvara er um hönd höfð. Við brot
á skilyrðum sem sett eru skal við-
komandi hundur fjarlægður og ef
um minniháttar brot er að ræða er
eiganda gefinn kostur á að leysa
hundinn út aftur. Ef brotið hins
vegar er alvarlegt eða ítrekað, aftur-
kallast leyfið.
Þeir sem greiddu atkvæði með
hundahaldi voru: Árni Gunnlaugs-
son, Andrea Þórðardóttir, Einar Þ.
Mathiesen, Jón Bergsson, Lárus
Guðjónsson og Eiríkur Skarphéð-
insson. Þeir sem á móti voru eru:
Árni Grétar Finnsson, Stefán Jóns-
son, Guðmundur Guðmundsson,
Þorbjörg Samúelsdóttir og Gunn-
laugur Jónsson.
Morgunbl. 8. 7. ’81.
SKEPNAN ALLTAF í RÉTTI
Hér á landi ríkir sú regla að eig-
endur dýra sem ekið er á úti á veg-
um, fá þau bætt að fullu. Þetta
21