Dýraverndarinn - 01.02.1947, Blaðsíða 14
8
DtRAVERNDARINN
Til lesenda.
Með þessu blaði hefst 33. árg. Dýravernd-
arans, og um leið tek ég undirritaður við rit-
stjórn hans, eins og lesendur hafa séð.
Dýraverndunin hefur verið mér áhugamál,
síðan ég var á barnsaldri. Mannúðarleysi gagn-
vart dýrunum hefur mér alltaf þótt meðal
þess versta, sem ég hef orðið var við í fari
manna, en skilningur á þeim og þeirra lífi
og samúðin með þeim meðal þess hezta og
fegursta. En um langt skeið hef ég lítið liafl
saman við dýr að sælda, eins og flestir horg-
arbúar.
Svo var ég nú i vetur beðinn að takast á
hendur ritstjórn Dýraverndarans, og fannsl
mér þá í fyrstu, svo sem það væri mér ókleift
með öllu sökum annarra starfa, sem voru og
eru mér meira en nóg. Ég gat samt ekki feng-
ið mig til þess að hafna þessu samstundis, og
þegar ég fór að hugleiða þetta frekar, þyrpt-
ust að ótal endurminningar, eldri og yngri,
um atvik, sem ég lief verið vitni að eða heyrt
getið um og um dýrin, sem ég hef kynnzt, flest-
um á yngri árum, og mörg þeirra voru þá
meðal minna heztu vina, og ég fann það um
lcið, að ég gat ekki skorazt undan þvi að vinna
málstað þeirra gagn, ef ég væri til þess fær,
en það mun þetta blað hráðlega lciða í ljós.
Varð ég því við fyrrnefndum tilmælum.
Efni til birtingar í blaðinu er vcl þegið
framvegis eins og hingað til, sams konar efni
og verið hefur, ritgerðir og hvatningargrein-
ar um dýraverndun og bætta meðferð á skepn-
um, og ádeilur fyrir illa meðferð á þeim. Ef
ádeilurnar eru hundnar við vissa atburði eða
ákveðna menn, verður að fylgja þeim fullt
nafn höfundar, heimilisfang o. s. frv., en gela
þó ef til vill, ef sérstaklega stendur á, komizt
að í hlaðinu undir dulnefni. Nafnlausar grein-
ar af þessu tagi eru jafnan tortryggilegar.
Sögur af dýrum, hæði sannar og frumsamd-
ar, verða vel þegnar, sömuleiðis kvæði og vís-
ur, yfir höfuð að tala hvert það efni, er
snertir dýrin á einn eða annan hátt, sem er
vel samið, og ritstjóra virðist þess vert að
koma fyrir almenningssjónir.
DÝRAVERNDARINN
kemur að minnsta kosti út átla sinnuin á ári, mán-
uðina: febrúar, marz, apríl, maí, september, október,
nóvember og desember.
Ætlunarverk Dýraverndarans er að vinna að upp-
eldis- og menningarmáli allra þjóða, en það er sú
siðbót, sem fram kemur í verndun málleysingja og
miskunnsemi við munaðarlausa.
Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra
góðra manna, ungra og gamalla.
Þeir, sem útvega fimm kaupendur að Dýraverndar-
anum, eða fleiri, fá 20% i sölulaun.
Afgreiðslu og innlieimtu „Dýraverndarans“ annast
Hjörtur Hanssön, Bankastræti 11 (miðliæð), pósthólf
56(5, Reykjavík, og ber að senda honum allar greiðslur
hlaðsins og tilkynningar um nýia kaupendur. — Ar-
gangur „Dýraverndarans“ kostar nú 10 krónur. —
Það, sem til er af eldri árgöngum, er selt mjög lágu
verði, eða kr. 5,00 árg.
Gott er og að fá sem mest af myndum með
greinum og sögurn og kvæðum, en gæta verða
sendendur þess, að nægilegar skýringar fylgi
þeiin. Enn fremur er mjög æskilegt, að fá
myndir af höfundunum, þegar því verður við
komið.
Ég vona fastlega, að þeir stuðningsmenn
blaðsins, sem að undanförnu Itafa öðru hverju
senl þvi eitt eða annað til birtingar, láti það
framvegis njóta sama stuðnings og áður.
Kveð ég svo lesendur virðingarfyllst
Sigurður Helgason.
Efni til birtingar í blaðinu skal senda rit-
stjóranum. Utanáskrift:
Sigurður Helgason,
Njálsgötu 80
Reykjavík.
Minningarspjöld:
Hin fögru minningarspjöld Minningarsjóðs Jóns
ólafssonar, fyrrum bankastjóra og minningarspjöld
Dýraverndunarfélags fslands. fást í skrifstofu Iljart-
ar Hanssonar, Bankastræti 11, — árituð og send, ef
óskað er. — Sími: 43(51.
Ritstjóri: Sigurður Helgason.
Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands,
Félagsprentsmiðjan h.f.