Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 27.05.1915, Side 10

Dýraverndarinn - 27.05.1915, Side 10
2Ó DÝRAVERNDARINN DÝRAVERNDUNABFÉLA6IÐ. Dýraverndunarfélagiö okkar hérna er alt of fámennt enn þá, til þess aö þaö geti sýnt af sér verulegt gagn, margir hafa látiö það í ljósi, aö þeir vildu koma, og aö nauösynlegt væri að efla þann félagsskap, en þó hefir það dregist að sýna vilj- ann í framkvæmdinni, sumir hafa jafnvel látið sér svo barna- leg ummæli um munn fara, aö þeir vildu ekki koma í Dýra- verndunarfélagið, fyr en það væri búið að fá sér lög samþykt af alþingi, svo að hver og einn félagsmaöur hefði rétt til að taka með valdi dýrin af þeim mönnum, sem illa færu með þau. Að fá þannig lög frá alþingi okkar, sem að visu væri mjög æskilegt,, er þó ekki framkvæmanlegt nema aö menn myndi með sér félagsskap til aö fá það í gegn, og eftir því sem félags- skapurinn er öflugri, mannfleiri og víðtækari, eftir því hlýt- ur það að fara, hve fljótt okkur tekst að fá þjóðarfulltrúana á okkar band. Því ætti enginn, sem ber velvildarhug til dýranna, að láta það undir höfuð leggjast að ganga í Dýraverndunarfélagið eða í þær deildir, sem stofnaðar kynnu aö verð út um landið. Að taka málstað hins mállausa og vernda rétt hans á sem flestum sviðum, er fallega gert og sæmir hverjum góðum dreng og konu, og ekki hvað síst er hér verkefni fyrir ung- lingana og börnin, að vinna hér fyrir góðan málstað. Eg hef heyrt menn oft kasta því fram, að réttur smælingj- anna í þjóðfélaginu sé brotinn, að þeir séu kúgaðir af auð- valdinu og undirokaðir af valdhöfunum. Þetta kann að vísu að vera satt, en þó er eg sannfærður um það, að cinskis manns réttur er þó eins þrælslega brotinn eins og réttur málleysingj- anna. Við mennirnir — þótt við sitjum lágt í mannfélagsstiganum og okkur finnist við ekki ná rétt okkar gagnvart okkar yfir- boðurum og við séum kreistir af klóm auðkýfinganna — þá höfum við þó þá stóru og miklu náöargjöf fram yfir dýrin — og það er málið — svo við getum látið í ljósi hugsanir okkar yfir því misrétti, sem við þykjumst beittir. Þegar við sjáum hestinn barinn, hundinn laminn fyrir sak- leysi og kettinum hent út á klakann, þá getur maður ekki ann- að en tekið efti'r bænarsvipnum, sem oft er á svip dýranna, en

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.