Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 27.05.1915, Qupperneq 14

Dýraverndarinn - 27.05.1915, Qupperneq 14
3° DÝRAVERNDARINN ekkert væri um aö vera. En úr því aö þetta eru einu sinni lög, hvort sem þau álítast réttlát eöa ranglát, þá er þaö samt ekki rétt aö þau séu svona herfilega fótumtroöin átölulaust, og mig furöar stórlega á því, aö eigendur aö eyjum þessum, sem hafa svo stórkostlega tekjugrein af þessum fugli, skuli ekki vernda betur rétt sinn en þeir gera. Ef þeim væri þaö mikið áhuga- mál, aö lög þessi væru ekki virt að vettugi, þá trúi eg ekki öðru en þeir gætu séö svo til, að þau kærnu aö fyllri notum og stuðlaö þannig aö því, aö sá fugl, sem á annað l^orö er friö- helgur, geti verið óhindraður af byssukjöftum fugladrápar- anna. Varpeigendur þarna úti í eyjunum þyrftu aö vakna —- og ættu aö vaka vel. * * * Þaö er ekki of mikiö sagt, þótt sagt sé, aö þaö er hrejn- asta háöung að sjá suma mjólkurvagnahestana af Seltjarnar- nesi og Álftanesi; mér virðast þeir öllu horaöri en úr Mos- fellssveitinni, þótt þar sé ekki úr háum sööli að detta fyrir sumum. Þeir hestar, sem eru í þessum stööugu vetrarferöum á hverjum degi, þyrftu þó aö vera í góöum holdum, vegirnir eru þá vanalega verri en á surnrin og snjókyngi stundum með afbrigöum, aö eg ekki tali um flutningatækin sjálf, vagnana og aktýgin, alt er karbætt og stagað ; ef kjálki brotnar, þá eru vanalega negldar utan á hann fjórar spengur úr tveggja þuml- unga plönkum, til aö gera það alt þyngra og erfiðara; ekki er svo sem verið að hugsa um að fá sér nýja vagnkjálka þegar í stað. Nei, það er svo kostnaðarsamt. Best að hvað sé eftir öðru; það á svo einstaklega vel saman: kvikhoraöur hestur dragandi á eftir sér helmingi þyngri vagnáhöld en þurfa að vera. Miskunsemi og hagsýni haldast þar í hendur — og koma fram í mörgum myndum, þegar það er skepna, sem er annars vegar og á i hlut. * * * Sumir reiðmenn hafa þann ljóta sið, að spenna svo fast keðjuna á beislinu sínu, að hún skerst inn í kjálkabörðin á hestinum, og eftir því sem fastara er tekið í taumana, eftir því kreppir meira aö hestinum, svo hann þolir ekki viö og

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.