Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 27.05.1915, Blaðsíða 15

Dýraverndarinn - 27.05.1915, Blaðsíða 15
DÝRAVERNDARINN 31 sýnist sem hann logi allur i fjöri. Þessa list og þenna ljóta leik leika helst hestabraskararnir, þegar þeir eru aS sýna hvað hesturinn, sem þeir vilja selja, sé ljómandi fjörugur, en kaup- andi veröur stundum flatur fyrir þessari brellu seljanda og kaupir háu veröi áburðarhest, sem reiöhestur væri. Þaö er ljót sjón aö sjá mann koma á hlaupamóðum hesti, löörandi um munninn í blóði, en slíkt hefur þó oft sést, og þá að er gáð, er orsökin vanalega sú, að keðjan er of fast spent eða járnmélið slæmt og ryðgað. Góðir reiömenn gá að þvi æfinlega áður en þeir stíga á bak: Hvort hnakkgjöröin sé mátulega föst. Hvort hnakkurinn muni ekki meiða. Hvort kverkólin sé ekki of föst. Að keðjan sé eklci þrælslega spent, og Að járnmélið sé ekki ryögað og lásarnir opnir. * * * Vorið er komið og fuglarnir farnir að búa til hreiður sin og verpa eggjum sinum; þeir syngja og tísta, hver með sínu nefi, skaparanum lof og dýrð fyrir góða veðrið og yfir bólinu sínu og eggjunum, en svo koma smalarnir og gangandi ferða langar, sem rekast á dyngjurnar þeirra og róta öllu og rífa alt í sig. Það er í fylsta máta harðýðgislegt að reka fuglinn úr hreiðri sínu og láta greipar sópa ; að minsta kosti ættu foreldrar, sem einhverntíma hafa staðið yfir moldum barna sinna, að gæta varhuga við og vera þar ekki framarlega í flokki. Fugl- arnir berja sér hörmulega yfir eggjamissi sínum, hjarta þeirra svellur og svíöur af sárum harrni, og vé vitum ekki nema ein- hverjir þeirra falli i valinn og deyi úr sorg. Annars skal eg minna á fuglafriðunarlögin frá þinginu 1913. Með þeim lögum eru flestallir fuglar friðaðir, ásamt eggjum þeirra. Fyrir hvert friðlýst egg, sem tekið er, skal borga 1 krónu sekt, nejna arnaregg 10 krónur. Því er heppilegast að láta alt eggjarán liggja milli hluta og lofa vesalings sumargestunum okkar að vera í friði með afkvæmi sín. Allir foreldrar ættu i þessu efni, sem svo mörgu öðru, að ganga á undan og áminna börn sín að gera fuglunum ekki niein með eggjaráni. JÓH. ÖGM. ODDSSON.

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.