Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1927, Síða 12

Dýraverndarinn - 01.04.1927, Síða 12
t>ÝRAVÉRNt>ARINti 3* um og viðurkent er um allan heim að skilji skap- lyndi þeirra til hlítar, eru Arabar, enda eru ótal sögur skrásettar um vitsmuni og ágæti arabiskra hesta, og hverng þeir liafa launað húsbóndanum dáleika lians.“ 111 meðferð á hestum. Oft má sjá illa.meöterð á hestum hjer i höfub- staðnum. Kom í vetur fyrir atvik, skemtilegt og leiðmlegt í senn. Maður var með hest fyrir vagni og hatðt of þungt á. Rar þar að rnann, er sá hvern- íg ástatt var. 'ialar hann við ökumann og segir honum, að við svo búið megi ekki standa, — hest- urinn dragi of þungt hlass. Okumaður brást reiður við, og kvað honum ekki koma það neitt við. Hinn hatði engtn orð, en rekur ökumanni löðrung og spenmr hestinn frá vagnínum. Ökuntaður hatði hægt um sig. — hyrir kemur það og, að hestar sjást standa fyrir vögnum langa-lengi, meðan þeir, sem með þá fara, er einhverju öðru að sinna. Aðgætnir menn taka eftir því, að hestar þessir er ualt af við og við að taka upp fæturna til að hvíla þá. Ber slíkt vott unt þreytu eða fótaveiki. Ilt er það, að þetta skuli eiga sjer stað, og eru þeir menn þarfir, er grípa fram í, þegar svona stendur á, og hlutast til um að bót sje ráðin á þessu böli „þarfasta þjóns- ins“. En helst þyrftu þessir menn að hafa lögreglu- vald, eins og drepið var a i grein i sept.-okt.-hefti síðasta árgangs. Ef þeir hefðu lögregluvald, væri ekki hægt að segja með sanni, að þeim kærni ekk- ert við, hvernig með dýr væri farið. Gætu þeir þvi gengið að starfi sínu með meiri festu og öryggi, og þyrftu, ef til vill, siður að taka til handanna, sem er í raun rjettri alt af neyðarúrræði. Viljurn vjer árjetta það, sem sagt var i áðurnefndri grein urn dýralögreglu. Lögreglu þessa þyrfti helst að stofna í öllum kauptúnum landsins. í sveitum ættu hrepp- stjórar að hafa þetta lögregluvald. Hugmynd þessi er góð, og í raun rjettri nauðsynlegt, að hún kom- ist i framkvæmd. Væntum vjer þess, að hún verði tekin til athugunar á næsta aðalfundi Dýravernd- unarfjelagsins, og eitthvað gert til þess að koma henni fram. Samúð með dýrum er ennþá fjarri þvi að vera komin á það stig, að hún sé orðin eðli ntanna samgróin. Væri svo, væri heldur ekki þörf á þessu blaði. Þess vegna verður að hafa gát á því, hvernig menn haga sjer gagnvart dynun. Það verður að mynda utan um þau einskonar skjaldborg rnanna, sem eru reiðubúnir og hafa vald til að hefjast handa, þegar nauðsyn krefur. Þaö verður að starfa fyrir dýraverndunarmálið í orði, — en ekki siður í verki. Lögreglukötturinn. Hjer kemur góð saga um kisu, ný af nálinni frá París. Húsfreyjan i gistihúsi einu, Chalons-sur-Marne, var í burtu, og á tneðan braust ungur maður inn í svefnherbergi hennar og hnuplaði öllu lauslegu. En áður hann kæmist á brott með þýfi sitt, heyröi hann að húsfreyja gekk upp stigann og var því nauðugur einn kostur að fela sig undir rúminu. Til allrar ógæfu fyrir manninn kom kötturinn nteð henni. En hann sjer það sem á gólfinu leyn- ist, þótt húsmóðirin ltorfi liátt. Þegar hann kom auga á innbrotsþjófinn, gleyntdi hann allri gest- risni og vanalegri kurteisi, en setti klærnar á kaf í lærið á honum og mjálmaði eins hátt og hljóðin leyfðu. Húsfreyjan rann á kattarkallið, og ræninginn komst í hendur lögreglunnar, sem viðurkennir, að hún hefði ekki getað gert það betur en kisa. (Úr ritinu „Saga“, mars-ágúst 1925). NÆSTA BLAÐ „Dýraverndarans“ kemur út um næstu mánaða- mót, maí-júní. Ritstjóri: Grétar Fells. Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands.

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.