Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1928, Síða 5

Dýraverndarinn - 01.11.1928, Síða 5
JDÝRAVERNDARINN 51 sjálfur eins og auömjúkur og iörandi smásveinn. Skammri stund eftir þetta seildist hann til mín og þreifaði um hægri hönd mína. Hann var aö leita sátta viö mig. Þrettán eöa fjórtán vetrum síöar varö mér reik- aö um Klapparstíg, milli Laugavegar og Hverfis- g'ÖtU. 1 i Jón beykir var þar viö iöjustöð sína að bylta tómuin tunnum og sótti starfiö af ákafa. Sumar tunnumar voru einbytnur, og var þeitn hvolft á opiö. Þær hvíldu á staurum og steinum, og voru því víða smugur undir þær. Þegar Jón bylti einbytnu, sem var utarlega í röö- inni, mælti hann fyrir munni sér og þó svo hátt, að eg mátti vel heyra: — Enn gefst mér færi á að liðsinna vesalingum — og ótvíræð gleði var í rödd hans. Eg varð forvitinn. Vék eg mér því til hans og spurði, hvað honum bæri nú að höndum. Andlit hans var snortið meðaumkunar- og gleði- brosi, og hann sýndi mér, að undir tunnunni væri kattaraumingi. með þrjá kettl’nga, nýgotna. Undrun vakti mér, hve glaður Jón gat crðið við þessa sýn. -—• Mamnia er komin heim til mín fyrir fjölda- mörgum árum, mælti hann, og um andlitið lék barnslegt gleðibros. Við höfum nægtir alls. Guð hefir blessað okkur. Og nú er hann að senda okk- ur þenna háÞdrepna kattarvesaling, til þess að reyna, hvort við kiósum fremur að vera tómlát og mannúðarlaus en þakklát börn hans. En kettinum skulum við hiúkra eins vel og við getum. Eg vil feginn vera kattapabbi, hve nær sem drottni þókn- ast — hvort sem kettirnir eru á fjórum fótum eða tveimur. Svc hló gamli maðurinn óblöndnum gleðihlátri. Og hann kallaði á mömmu til að gleðjast með sér. II. BINDINDI. Af litlu hefi eg jafnan haft að láta. Fæst mun hafa náð meðalmensku hjá mér, en margt farið ])ar neðar. Og þetta er mér ljóst fyrir löngu síðan. En þó að þessu sé svo farið, þá bý eg yfir þeirri von, að fæstir nenni að leggja sig í að fyllast vand- lætingu eða viðbjóði, segði eg nú frá tveimur af þeim atvikum, sem orðið hafa á leið minni og mér finnst, að enn séu i fylgd með mér. Svo bar undir haustið 1888, að eg vann að slát- urstörfum í kauptúni einu. Þar var margt fé fellt og starfið sótt nokkuð af kappi. Eg gekk jafnt að flestum þeim verkum, sem unn- in eru við slátrun, og kom þar, að eg skar féð. öðruhvoru. Dag einn, sem eg gegndi þessu starfi, var í fjár- rjettinni grá ær, nokkuð roskin. Henni fylgdi lamb, eins að lit og hún, sýnilega síðborið. Annað var eigi frábrugðið um háttu þessara kinda, en það, að þær fylgdu livor annari, hversu sem féð barst um réttina. Þegar leið að nóni, kom sá, er sótti féð í réttina, með gráa lambið. Ærin ætlaði að brjótast út á eftir því, en þess var henni varnað. Og lambið var leitt á afvikinn stað, þangað sem skorið var. En þá hófst sú sókn ,er flestir, sem viðstaddir voru, veittu athygli. Ærin gerði hverja tilraun af annari, að hefja sig til stökks yfir rjettarvegginn. Og jafnsnemma jarm- aði hún, hátt og mikið. Lambið brauzt um í höndum þess, er með það fór, og jarmaði slíkt er það mátti. Gamall og reyndur maður, sem þar var staddur, sagði, að ærin og lambið væri að biðja sér lífs. Á það féllust flestir þeir, sem þetta sáu og heyrðti. Og að því var komið, að lambinu yrði sleppt aftur inn í réttina. En sá, er sláturstörfunum stýrði, virti þetta að engu og skipaði, að skera lambið þegar í stað. Því var fleygt niður og fætur þess gripnir. Eg ætlaði að taka yfir snoppuna á ])ví. En áður en eg fengi því fram komið, jarmaði það, titrandi og sárt. Og jarmur ærinnar kvað við eigi síður átakanlega og harmi lostinn. Þess er ekki að dyljast, að mér féllust hendur. Eg kastaði skurðarhnífnum, reisti lambið á fætur og lét það aftur inn í réttina til móður sinnar. Mér fannst, að eg væri að byrja að vinna níð- ingsverk. Og eg veit eigi betur, en að sú tilfinn- ing liíi enn með mér. Síðan þetta var, hefi eg eigi getað fengið mig til að skera nokkura sauðkind. En út af þessu hefir tveim sinnum borið. I fyrra

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.