Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1928, Page 6

Dýraverndarinn - 01.11.1928, Page 6
52 DÝRAVERNDARINN sinn dró eg um barka á dauÖvona pestarkind. Og í síðara skit'ti var'Ö eg að beita sama hætti viÖ lim- lesta kind og holsærÖa, aÖ dauða komna. Veturinn 1890 tók eg að fást við að skjóta rjúp- ur. Og haustið eítir, þegar foreldrar mínir og eg vorum flutt að Búðum, lagði eg mig eftir rjúpna- veiðum. Nokkuru eftir veturnætur, urðu heiðalönd orpin áfreða og fönnum. Rjúpur flýðu því af hálendi og héldu sig í Búðahrauni, og eg fór að fást við að skjóta þær. Eitt sinn varð eg venju framar veiðisæll. En eg þóttist þurfa að fara sparlega með skotfæri. Lagði eg mig því eftir að komast svo í færi við rjúp- urnar ,að eg mætti ná mörgum með sama skoti. Mig har að allvíðri laut. Þar var fjöldi rjúpna. Nú reið á að ná mörgum í sama skoti, og eg leit- aði færis svo sem hezt mætti vera. Og skotið reið af. Allur hópurinn flaug, — nema íjórar rjúpur, sem eftir urðu. Engar voru þær dauðskotnar, held- ur brutust um og hyltust á ýmsar hliðar, hlóðugar, limlestar og holsærðar. Hjá mér hófst nú elting. Loks gat eg náð þeim öllum, með eigi lítilli fyrirhöfn — og sviít þær lífinu. í rökkurhyrjuu kom eg heim með hýsna væna hyrði af rjúpum. Skömmu síðar sagði eg frá veiðiför minni í eld- húsinu, og greindi nákvæmlega, hversu eg hefði orð- ið að eltast við þessar fjórar rjúpur í lautinni. A sögu mína hlýddu heimamenn okkar. En þar var hvorugt foreldra minna. Sá var háttur föður míns á þeim árum, að ganga löngum um gólf í rökkrinu og stundum nokkura hríð eftir að ljós voru kveikt. Þuldi hann ])á oft- ast fyrir munni sér, eða raulaði, ljóð eftir sum af skáldum Rómverja fornu. Þegar eg í þetta sinn kom í stofuna til foreldra minna, gekk faðir minn þar um gólf. En nú bar hann sér ekki í munni latúiu. Hann söng Óhræsið og Grátitlingurinn, nokkuð við raust, endurtók kvæðin og að auki einstakar vísur úr báðurn þei-11. En um annað varð eg engra hátthrigða var hjá honum. Eftir kvöldverð hað hann mig að tala við sig í svefnhúsi foreldra minna. Þegar hann hafði skanrma stund rnælt, var eg orðinn þess vísari, að hann myndi hafa heyrt sögu mína i eldhúsinu af rjúpnadrápinu þá um daginn. Saman fer, að eg man ekki með vissu nú orðið, allt, sem hann talaði við mig, og hitt, að eg tel litlu máli skifta, að leitast við að greina öll orð hans þá. En viðræðu okkar lauk á þá leið, að eg hét hon- um því, að ráðast ekki á rjúpur framar á þeim vetri. Og eg held, að eg megi fara með, að lyktar- orð hans væri þessi: — Drottinn mun leggja okkur ærin ráð til, ]ió að þú gerist eigi sá níðingur, alls kostar þarflaust, að myrða þessa munaðarleysingja, sem hjargþrota leita sér nú griða og öryggis í námunda við híhýli manna. Nokkurum kvöldum fyrir andlát föður mins (19. desember 1891) sat eg á máli við hann. Eg mátti skilja af orðum hans, að þess hefði hann orðið áskynja, að þá væri orðið fjölskipað rjúpum í hrauninu. Það, sem af var þeim vetri, hafði hvorki eg né aðrir á heimili okkar komið nærri ])ví, að skjóta rjúpur. Þetta var fööur mínum vitanlegt. F.11 svo var þó sem hann léti sér það ekki nægja. Hann minnti mig á heit mitt urn þetta efni veturinn áður. Svo ræddi hann litla stund um meðferð 'dýra og skyldur mannsins, sem væri æðsta skepna guðs á jörðinni, við þau. Hann hrýndi fyrir mér, hve ófagurt væri og ranglátt, að ráða nokkura skepnu af lífi með kæruleysi eða harðýðgi. Sjálfsögð nauð- syn, óhjákvæmileg skylda og ókorpinn drengskap- ur yrði að ráða þar úrslitunum. En til mín gerði hann eina kröfu. Eg yrði að heita því, sagði hanu, að ráðast aldrei á rjúpur með skothríð og blóðsúthellingum, og raunar enga skepnu, nema fyllsta nauðsyn krefði. Mér var eigi ljóst, hvert dægrið orðið gæti síð- ast hjá föður mínum, eins og þá var komið. Og eg hét þessu. Mér vitanlega hefir mig aldrei hent það síðan, að vinna á nokkurri skepnu með skoti, hvorki rjúp- um né öðrum. Þó brá út af þessu eitt sinn. A oíanverðum vetri 1898 bar mig þar að, sem hross hafði fest annan aft'.rfót í holklaka. Fóturinn

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.