Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.01.1931, Blaðsíða 14

Dýraverndarinn - 01.01.1931, Blaðsíða 14
8 DÝRAVERNDARINN r'eggí.Hann huggaði sig við það, að gamli timburmað- urinn kæmi aítur. Og það var svo skrítið, að þegar skipið kom til Englands, lá fyrir bréf til skipshunds- ins, frá Noregi. Það var ekkert um að villast. Utaná- skriftin var greinileg. Og þeir brostu i kampinn, skip- verjarnir, — bréf til skipshundsins! En þeim var vorkunn. Þeir vissu ekki, hvað þeim hafði farið á milli, timburmanninum og I'eggí. Bréfið var þó ekki frá timburmanninum sjálfum, heldur frá tólf ára gömlum snáða, sem hann átti. Stýrimaðurinn las það fyrir Peggí. Þeir vóru einir í klefa stýrimannsins og Peggí lét fara vel um sig á legubekknum. „Elsku Peggí. Pabbi hefir sagt mér svo margt fallegt um þig, þó að þú sért bara hundur. Og hann hefir lika sagt okkur, að þú værir raunbetri en flest- ir kunningjar hans. Hvers vegna komst þú ekki heim til okkar með honum pabba? Við hefðum séð um það, að þér liði vel, og við hefðum orðið vinir. Pabbi er oft að tala um þig og óska þess, að þú værir kom- inn hingað. Gaman þætti mér að því að fá mynd af þér. Líði þér nú vel og kærar kveðjur frá pabba og Tuma.“ Peggi hafði hallað undir ílatt og hlustað á, með- an stýrimaðurinn var að lesa bréfið. Skildi hann orðin? Það er spurning, sem ekki verður svarað, en vita skulum vér þaö, að meira býr i hunds heila og sál, en vér mennirnir skynjum. Stýrimaðurinn tók nú mynd af Peggí, skrifaði Tuma bréf fyrir Peggi og lét hann sjálfan sleikja frímerkið, og þar með var Peggi búinn að svara Tuma, — myndin af Peggí var látin í bréfið. •— ■— Þegar gamli timburmaðurinn kom á skipið aftur, ætlaði alt um koll að keyra hjá þeim kunningjunum, — honum og Peggi. Þeir höfðu svo margt um að tala, að endalokin urðu þau, að Peggí sofnaði hjá sínum bezta vini. Og þeir sváfu báðir yfir sig morg- uninn næsta. ÞaS skifti litlu máli. Þeir vóru í höfn og það var sunnudagur, og það var ekki til þess ætl- azt, að unnið væri í skipinu þann dag. Síðar um daginn fékk Peggí að fara með timbur- manninum í land og var þá i fyrsta skifti skrýddur glæsilegu hálsbandi, sem timburmaðurinn hafði kom- ið með að heiman. Hálsbandið var með silfurplötu, þar sem á var letrað nafnið „Pegg í“, svo að all- ir mætti lesa. Og þó aö hálfgerð óþægindi væri að þessu virðingarmerki öðru hverju, þá vóru þau eng- an vegin sambærileg við upphefðina, sem i þvi var fólgin, að bera það um hálsinn. Hálsl)andið hélt Peggí litli, að væri einkennisbúningur sinn, — hann vissi það ekki, greyið litla, að það var sett um háls honum til þess, að á þvi mætti sjá, hvar hann ætti heima, ef hann skyldi villast eitthvað frá félögum sínum, skipverjunum. En þrátt fyrir hálsbandið kom þruman. Peggí týndist. Það var leitað að honum, eu hann fanst hvergi. Skipið varð að fara úr höfn, og varla þarf írá þvi aö skýra, að mjög var l’eggi harmaður. Timburmaðurinn naut ekki svefns i margar nætur, og svo mun verið hafa um marga hina skipsmenn- ina, þó ekki bæri á. Matsveinninn sagði, að það vissi á allskonar óhöpp, er skipshundurinn gengi á land. Og það var ekki íjarri þvi, að skipshöfnin tryði á það. En alt gekk sinn vana-gang. Alt var i sama horii á skipinu, — annað en það, að Peggi var þar ekki lengur. Þeir vóru að geta sér til ýmislegs um afdrif hans .... til dæmis að einhver Spánverjinn heíði náð í hann og soðið af honum súpu handa gestum sínum. Og þeir vóru að segja það sín á milli, ao gaman skyldi þeim þykja það að hafa þann þrjót á milli handa sinna. Þeir komu til min, í Sjómannastofuna, áður en skipið fór frá Valencia og báðu mig að reyna að hafa upp á hundinum, •—- hvað sem það kostaði. Eg gerði það fyrir þá, að hefja leit að Peggí. Og loks, þegar alt annað var árangurslaust, datt mér í hug að leita til hunda-lögreglunnar, og þar fann eg Peggí.------Hann hafði farið á land, eins og hann var vanur, til þess að heilsa upp á kunningja sína og ættingja. Þá hafði einhver orðið til þess að stela af honum hálsbandinu, og þegar hann var að reyna að stöðva ræningjann, var hann snaraður sjálfur og honum varpað inn í búr á vagni, þar sem fyrir var fjöldi af hunda-ræflum. Það var í fyrsta skifti, sem Peggi ók i bifreið, og hann hefði gilt það einu, þó að hann hefði aldrei i bifreið komið. Peggí var fluttur á lögreglustöðina, með öllum hinum hundunum. „Ef enginn sækir ]jig, áður en vikan er liðin, þá verður þú drcpinn,“ — hafði hann sagt, hunda-lögreglustjórinn. Peggí skildi þetta og hann var ákaflega hræddur, því að jafnvel er það svo, að hundarnir eru hræddir við að deyja. Eg kom þangað inn, sem Peggí var, og eg held að eg hefði þekt hundinn þann í hópi þúsunda. Mér er nær að ætla, að hann hafi einnig kannazt við mig. Hann starði á mig vonar-augum og veifaði rófunni. — Þegar eg spurðist fyrir um það, hvort eg rhætti

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.