Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.08.1932, Blaðsíða 7

Dýraverndarinn - 01.08.1932, Blaðsíða 7
DÝRAVERNDARINN 35 .... Ástmar að brjótast um í skaflinum .... um dögum li'Snum var hirt úr hvamminum, og íór eg þá út fyrir tún og sló nokkura daga hjá svokölluðum Hamri. Svo var þaö einn dag, aÖ eg var að slá hjá Hamrinum, aÖ þoka var á, og sást lítiÖ frá, enda sást ekki heim aÖ bænum þótt bjart hefÖi veriÖ, því holt bar á milli. VörÖ- ur hafði legiÖ hjá ntér, en fór nú aÖ smá- gelta og leggur síÖan á staÖ heim. Eg veitti þessu enga sérstaka athygli, en heyrði þó aÖ hann var að smágelta, eins og sumir hundar gera, ef þeir sjá mannaferð í íjarska. Eftir nokkura stund kemur kona mín til mín og spyr mig um, hvort Ástmar litli hafi ekki komið þangað til mín. En eg segi það ckki vera. Segir hún að drengur- inn hafi gengið út fyrir skammri stundu, en búist viÖ að eg væri nær bænum að slá og hann hefði því séð mig og farið til mín,' enda var ekki eins mikil þoka heima. Nú urðum vð bæð hálfhrædd um drenginn og fórum að kalla. En fáurn ekkert svar annað en að Vörður geltir öðru hvoru syðst í túninu, en ekki sáum við hann. Alt í einu kernur hann í kasti til okkar, flaðrar upp unt okkur geltandi og lætur sem óður sé. Síðan tekur hann stökk frá okkur og stefnir suður og of- an í hvamm. Okkur dettur nú í hug, að hann sé að segja okkur til drengsins og hlaupum á eftir Verði. Þegar við komum á hvammsbarminn, sjá- um við drenginn og Vörð á eyri rétt í flæðarntál- inu. Stefnir drengurinn beint á ána, en Vörður flaðr- ar upp urn hann, og hvernig sem drengurinn reynir að sneiða ltjá honum, þá er Vörður jafnan í fang- inu á honum, svo barnið kemst ekkcrt áfrant. Mik- ið var Vörður kátur, þegar ég tók drenginn og bar hann heim. Þegar við höfðurn jafnað okkur eftir hræðsluna, fórum við fyrst að sinna Verði og þakka honum fvrir hvað vel hann gætti drengsins, þvi það tel ég engan vafa, að drengurinn mundi hafa verið kominn í ána, ef Vörður hefði ekki tafið fyrir hon- um og visað okkur á leið til að finna hann. Eftir þetta var Vörður vanur að láta okkur vita, á likan hátt, ef drengurinn íór eitthvað frá bænum. Var þá venjulegast, að hann fylgdi drengnum eftir, en þvældist jafnan fyrir honum, svo hann átti erfitt um gang. Gelti hann þá svo hátt sem hann gat, til að láta okkur vita um ferðalag drengsins. f siðasta sinn, sem ég man, að Vörður héldi upp- teknum hætti með að gæta drengsins, var þegar Ást- mar var á sjötta ári. Þá hafði ég farið að smala fé í hríðarveðri og ófærð. Vildi Ástmar litli fylgj- ast með mér, en var synjað þess. Ég þurfti þó stutt að fara, til þess að ná fénu. Vörður lagði á stað með mér, en eítir litla stund heyri ég hann gelta í andstæðri átt. Hleyp ég þá á hljóðið og fer að athuga, hvað um sé að vera. Er þá Ástmar litli þar að brjótast um í skafli, en kemst litið, því að bæði var skaflinn djúpur og svo hitt, að Vörður var jafnan fyrir framan hann. Ekki skal getum að því leitt, hvað af hefði hlot- izt i þetta sinn, ef Vörður hefði ekki gætt Ástmars litla, en í flæðarmálinu við Blöndu tel ég hann ótví- rætt hafa bjargað lífi drengsins. Margar fleiri sögur gæti ég sagt af Verði og fleiri dýrum, en læt þetta nægja að sinni. Er þó það sá minsti þakklætisvottur sem hægt er að sýna Verði frá okkar hálfu, að „þess sé getið, sem gert er“. Balaskarði, 24. apríl 1932. Ingvar Pálsson. Frækinn hundur. Frá því er skýrt í erlendu blaði, að hundur hafi stokkið úr japanskri flugvél, er var á flugi yfir sjó — og synti hundurinn i land. Flugvélin var í 100 metra hæð. (Alþýðubl.)

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.