Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.08.1932, Blaðsíða 10

Dýraverndarinn - 01.08.1932, Blaðsíða 10
38 DYRAVERNDARINN fóru fram harÖar umræÖur. Eftir hálfa klukkustund tóku sig þrír storkar út úr hópnum, pabbinn og tvcir aÖrir, flugu aftur aÖ breiÖrinu og drápu unga- móöurina umsvifalaust. Þegar þessari hörmulegu at- höfn var lokið, sá fólkiÖ í húsinu, aÖ ekkillinn tók einn af ungununt úr hreiðrinu og lagði varlega frá sér niður á jafnsléttu. En þá urðu áhorfendurnir heldur cn ekki forviða, ])ví að unginn reyndist ekki vera storkur, heldur kalkúnn. Móðirin hafði orðið ber að ótrygð og hegningin var liflát. Þorpshúar vóru uppnæmir út af þessum hörmu- lega atbur'öi á storkaheimilinu, og þaö var ekki fyrr en eftir margar klukkustundir, að upp komst hvernig í öllu lá. Það kom á daginn, a'Ö smástrák- ur hafði klifrað upp að hreiÖrinu, rétt eftir að kvenfuglinn haföi orpiö, og skift á einu egginu og kalkúnseggi. Ungarnir höföu komiö út úr eggjun- um eftir fyllingu tímans, og í byrjun hafÖi karl- fuglinn ekki orðið neins var. En þegar heim kom úr aflaferðinni, hafði hann alt i einu séð, að hann átti ekkert i kalkúnsunganum, og afleiðingin varð þessi hryllilega harmsaga, —mjögaömannadæmum. En fleiri slíkar sögur eru til um storkana, og sýna þær, að ]íeir taka afarhart á öllu lauslæti. 1 bókinni „Jylland og de danske Öer“ eftir Horace Marryats (hún kom út um 1860) er getið um svip- að dæmi og þetta, nema hvað þá var það ugluegg, sem strákur liafði laumað í hreiðrið. Og i bók Stan- levs biskups um fuglana er þessi síiga: — Franskur læknir í Smyrna vildi endilega ná i storkaegg, en ]>að var miklum vandkvæðum bund- ið vegna þess, að Tyrkir hafa helgi á storkunum og baniia að ræna ])á. Þess vegna fór læknirinn um nótt og rændi storkahreiður og lét hænuegg i staðinn.f Eftir dálítinn tíma var hreiðrið fult af kjúklingumd og ])ótti storkahjónunum þetta einkennilegir afkom-f endur. Storkapabbi yfirgaf ])á hreiðrið og sást ekkií í nokkura daga. En svo kom hann aftur heim, með heilan herskara af storkum, sem slógu hring um hreiðrið og kærðu sig kollótta um það, ])ó að fjöldi fólks væri kominn til að horfa á hvað nú mundi ske. — Storkamamma var kölluð fram, til þess að standa fyrir máli sinu. Var ])að löng og itarleg yfir- hevrsla, rifrildi og vængjasláttur, en að lokum réðst allur hópurinn á storkamömmu og reif hana og tætti í sundur. Síðan flaug allur skarinn á burt og skildi eftir ungana. Hefir enginn storkur síðan dirfst að leggja þetta hreiður undir sig. (Lesbók Mbl.) Vorvísur. I Iæst á fjöllum glóir gull, gaukar bjölju þeyta; l)ikar höllum barmafull blómin völlu skreyta, Ejöllin sindra í sólargljá sjónar-lindum nærri; innar tindum eru að sjá aðrar myndir stærri. Páll Guðmundsson, Hjálmsstöðum. Sporður. Gott er að eiga geymdar í hugarfylgsnum sínunt endurminningar um góða vini og ánægjuríkar sam- verustundir. Og finst mér að þar gildi sama, hvort slíkar minningar eru bundnar við rnenn eða mál- leysingja; hvorttveggja getur verið jafn hugþekt og unaðslegt. Endurskin gó'Öra samfunda og ánægju- legra samverustunda eru — ef svo mætti að orði kveða — eins og ljósblik á genginni æfil)raut manna, sem alt af er jafn gaman að líta til og dvelja við í huganum. Slík ljósblik gera lifið bjartara, glæða áhuga og gefa mönnum þrótt til að fjölga þeim. Eg hefi oft skemt mér í huganum við endur- minningarnar frá samverustundum okkar Sporðs, og þá miklu ánægju, sem eg náut i svo ríkum mæli oft og mörgum sinnum, er ég sat honum á baki. Hann var um sína daga talinn einn af beztu rcið- hestum i Rangár])ingi, a'Ö dómi Guðmundar Guð- finnssonar, fyrrum héraðslæknis, og rnargra fleiri, sem þektu hann. En héraðslæknar okkar kynnast öðr- um mönnuin betur helztu reiðhestum héraðsins, kost- um þeirra og dugnaði,

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.