Dýraverndarinn - 01.12.1966, Blaðsíða 2
\<>a I fc' 1111 <1 iii* Sambands
dýraverndnnarféla^a Islands
Sambandið hélt aðalíund 27. nóvember s. 1. Var
hann allfjölsóttur, og ríkti þar mikill og ánægjuleg-
ur áhugi á starfsemi Sambandsins og hinna einstöku
félaga. Stjórn þess var öll endurkosin í einu hljóði.
Samþykktar voru eftirfarandi tillögur:
Aðalfundur Sambands dýraverndunarfélaga ís-
lands, haldinn í Reykjavík 27. nóvember 1966, sam-
þykkir að beina þeim tilmælum til Alþingis, að sem
fyrst verði bann við sinubrennum eftir 1. maí látið
ná til alls landsins.
Einnig felur fundurinn stjórn SDÍ að láta gera
smárit til fræðslu um skaðsemi sinubrennslu og
dreifa því fyrir n. k. vor í skóla og til þeirra, sem
bezt gætu liðsinnt um að sinubrennslu verði hætt
eftir 1. maí.
Aðalfundur Sambands dýraverndunarfélaga ís-
lands, haldinn í Reykjavík 27. nóvember 1966, sam-
þykkir að beina þeim tilmælum til ríkisstjórnar ís-
lands, að lög um hvalveiðar verði endurskoðuð með
tilliti til þess að felld verði inn í lögin ákvæði, sem
banni rekstur hvala á land og að deyðing hvala,
skurður og nýting hvalfangs sé aðeins leyfilegt þeim,
sem leyfi liafa til reksturs hvalstöðva og starfrækslu
hvalveiða innan íslenzkrar lögsögu.
Aðalfundur Sambands dýraverndunarfélaga ís-
lands, haldinn í Reykjavík 27. nóvember 1966, felur
stjórn SDÍ að láta semja og annast útgáfu og dreif-
ingu smárita (fræðslurita) um fuglafriðun og veiði-
tíma, flutninga búfjár og varnir við óhreinkun sjáv-
ar af völdum olíu.
Aðalfundur Sambands dýraverndunarfélaga ís-
lands, haldinn í Reykjavík 27. nóvember 1966, sam-
þykkir að skora á alla sláturleyfishafa að beita hljóð-
lausum byssum við aflífun dýra.
Aðalfundur S. D. í. beinir þeim tilmælum til
stjórnar S. D. í., að hún sendi bréf til þeirra gangna-
foringja og fjallskilastjóra, sem sjá um smölun á
þeim afréttum, þar sem gangnakofar eru. Séu þeir
í bréfi þessu hvattir til þess að sjá um, að þannig
sé gengið frá dyrum og lnirðum þessara kofa, að ör-
uggl sé, að sauðfé komist þar ekki inn. — Mætti
benda á dyragorma og annan þann útbúnað, sem
kippir hurðum að stöfum. — Geta mætti þess í
bréfinu, að s. 1. haust fundust 17 kindur í svonefnd-
um Hálskofa við Snæfell, sem allar höfðu orðið
hungurmorða.
Aðalfundur Sambands dýraverndunarfélaga ís-
lands, haldinn 27. nóv. 1966, samþykkir að senda
viðkomandi yfirvöldum í Kanada bréf, þar sem lýst
sé yfir eindreginni andúð sambandsins á veiðum
selkópa við strendur Kanada, svo sem þær hafa
verið framkvæmdar.
Aðalfundur SDÍ, haldinn 27. 11. 1966, skorar á
væntanlega stjórn að beita sér af alefli fyrir þ\'í,
að útflutningur hrossa verði einungis leyfður með
flugvélum og gripaflutningaskipum.
Aðalfundur SDÍ, haldinn 27. 11. 1966, beinir
þeirri áskorun til væntanlegrar stjórnar, að hefja
skipulega upplýsingastarfsemi um baráttumál sam-
takanna, — bæði í blöðum, útvarpi og sjónvarpi.
Svo og að skipuleggja fjársöfnun um land allt til
stuðnings fyrirhugaðri hjúkrunar- og lækningastöð.
Aðalfundur SDÍ, haldinn 27. 11. 1966, felur vænt-
anlegri stjórn að afla sem víðtækastra upplýsinga
um aðbúð og líðan íslenzkra hesta erlendis og gera
þær ráðstafanir til úrbóta, sem mögulegar reynast.
Allar þessar tillögur voru samþykktar með at-
kvæðum allra fundarmanna. Annars voru á fundin-
um mikiar umræður, en engar deilur. Stjórnin
gerði rækilega grein fyrir viðleitni sinni til að fá
aukið fé til slarfsemi samtakanna og þá ekki sízt
til hjúkrunar- og geymslustöðvar handa dýrum, en
frá því máli hefur verið sagt aftur og aftur hér í
blaðinu og stjórnin nýlega hafið áróður fyrir því
við ríkisstjórnina, þó að engin endanleg svör hafi
þar fengizt. Mun enn hertur róðurinn og einstakir
J^ingmenn úr öllum stjórnmálaflokkum fengnir til
að flytja málið á Aljaingi, ef ríkisstjórnin lætur það
vindir höfuð leggjast. Þá var látin í ljós sú skoðun
78
DÝRAVERNDARINN