Dýraverndarinn - 01.12.1966, Síða 19
Tvær groðar ^jafir
Þann 21. september síðastliðinn barst Sambandi
dýraverndnnarfélaga íslands góð gjöf, tvö þúsund,
krónur, frá Guðrúnu Sigurðardóttur, Flókagötu 61
i Reykjavik. Þessi gjöf á að renna til byggingar
hjúkrunarstöðvar handa dýrum. Gjöfin er þakksam-
lega þegin, og vel væri, að sem allra flestum væri
það eins ljóst og gefandanum, hver nauðsyn er á, að
slíkri stofnun verði komið upp, því að sannarlega
er það ekki íslenzku þjóðinni samboðið, að hér
skuli ekki slík hjúkrunarstöð hafa verið reist fyrir
löngu og starfrækt af rausn og myndarskap.
Þá hafa Dýraverndaranum borizt þúsund krónur
að gjöf frá frú Jóhönnu Rókstad. Sú gjöf barst gjald-
kera blaðsins þann 14. september síðastliðinn. Jó-
hanna Rokstað er dóltir Ingunnar heitinnar Ein-
arsdóttur, sem var einn fremsti forgöngumaður að
stofnun Dýraverndunarfélags íslands og Dýravernd-
arans og lagði á sig ferðalög og fyrirlestrahald fyrir
málstað dýranna. Gefur frú Jóhanna gjöfina til
minningar um móður sína. Jóhanna og bóndi lienn-
ar, Emil Rokstad, hafa og látið sig miklu skipta
dýraverndunarmálin, bæði með starfi og gjöfum,
svo sem lesa má í sögu Dýraverndarans og samtak-
anna, sem birt var hér í blaðinu árið 1964.
Stjórn Sambands Dýraverndunarfélags íslands
þakkar hjartanlega báðar þessar gjafir.
sterkur og auk þess kann hann vel til moldarverka.
Hann getur elt sléttuhundana ofan í þeirra neðan-
jarðarhíbýli, eina bótin, að hann er frekar svifa-
seinn og auk þess það stór, að hann verður að liafa
mikið fyrir því að fylgja sléttuhundunum eftir, því
að hann þarf að víkka öll þeirra jarðgöng. Það er
því tiltölulega sjaldgæft, að hann valdi líftjóni í
þorpunum.
Þegar hættan er liðin hjá, gera verðirnir aðvart.
Og þá gengur mikið á. Út um hverjar dyr streyma
„börn“ og fullorðnir, unz allir þorpsbúar eru komn-
ir í eina þvögu. Þeir æpa, skrækja, geyja, hoppa og
hendast, og oft komast þeir í slíka æsingu, að Jieir
velta um sjálfa sig eða hver um annan.
O, jú, jú, — J)að er lff og fjör í byggðum sléttu-
hundannal
(Eftir Alverdens pattedyr og Dyrevennens
ungdomsblad.)
Sigríður Einarsdóttir frá Bœ með hccnuunga.
„Ég hef aldrei átt svona seinþroska börn"
dýraverndarinn
95