Stúdentablaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 11
HASKOLINN
11
Valgeir Valdimarsson skrifar
Eins og flestum er eflaust kunnugt, hefiir
háskólanemum staðið til boða frá 1992
að fá styrk til að stunda hluta af námi sínu
í háskólum annarra ríkja innan EES og fá það
mctið að fullu við Háskólann. Þctta er í sam-
ræmi við yfirlýst markmið Erasmus-áætlun-
arinnar um að styrkja evrópskt samstarf á há-
skólasviðinu og auðvitað líka hið óyfirlýsta
markmið ESB að leyfa Þjóðverjum að kynnast
vinum sínum í Evrópu í þeirri von að þeir hætti
að koma í óvæntar „heimsóknir” óboðnir.
Styrkurinn er í ár um 16.000 kr. á mánuði en
auk þess er greiddur ferðakostnaður allt að um
50.000 kr. og allt að um 37.000 kr. vegna
tungumálanáms. Styrkþegar eru og aðstoðaðir
sérstaklega ef þeir eru fatlaðir eða eiga börn.
Erasmus-áæduninni var formlega lokið síðasta
vor en var von bráðar endurreist scm ein af
þremur stoðum Sókrates-áætlunarinnar sem
tekur gildi á skólaárinu 1997-98. Sú er mun
víðtækari og mctnaðarfyllri og mun auk
Erasmusar beinast að grunn- og framhalds-
skólum (Comcnius), tungumálakennslu (Ling-
ua), fjarkennslu, o.fl.
Stjórnsýslulegar breytingar
Brcytingarnar á Erasniusi mcð tilkomu Sókra-
tesar verða fýrst og fremst stjórnsýslulcgar, og
munu líklega ekki hafa rnikil áhrif á stúdcnta-
skipti háskólanema. Veigamesta breytingin er að
ESB hættir að styrkja alþjóðlcg samskiptanet
einstakra skora og deilda eins og hingað til en
mun þess í stað semja við einstaka háskóla í
hcild. Þóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Alþjóðaskrifstofú: „Breytingar snúa aðallega að
deildunum og yfirstjórn. Það verða áfram sömu
tækifæri fyrir nemendur. Nú munum við sækja
um styrki á grundvclli heildstæðrar stefnu fyrir
Háskólann allan en ekki aðcins fyrir einstök
samstarfsnet innan deilda og skora. Þetta kallar
á að Háskólinn og deildir hans taki á sig meiri
ábyrgð en áður og nauðsynlegt cr að móta
ákveðna stefnu í Evrópusamstarfsmálum. Starf-
ið verður eftir sem áður að byggjast á kcnnur-
um, persónulegum tengslum þeirra og áhuga
einstaklinga til þcssa samstarfs.”
Helsta breytingin fyrir stúdenta mun eflaust
verða tilkoma evrópskra námsbrauta á meistara-
stigi. Hugmyndin með þcim er að deildir sem
taka þátt í slíku samstarfi þrói með sér náms-
brautir sem svara einhverri ákveðinni
“cvrópskri” þörf. Viðskipta- og hagfræðideild
er nú að undirbúa meistaranám í viðskiptafræði
innan ramma Erasmusar. Ingjaldur Hannibals-
son, dósent í viðskipta- og hagfræöideild: „Við
gerum ráð fyrir að geta hafið kennslu til
meistaragráðu haustið 1997. Þetta veröur
tveggja ára nám, 40-60 einingar, þar sem fyrsta
árið vcrður kennt hér heima en hið scinna
erlendis. Svo yrði ritgerðin skrifuð hér.”
Viðskipta- og hagfræðideild er ekki aðili að
ncinu samstarfsneti ennþá en hefiir átt samstarf
við háskólann í Sicnna á Italíu. Nokkrir
nemendur þaðan hafa þó farið crlendis sem
Erasmus-fríhlaupar (fríhlaupi - beygt eins og
liðhlaupi). Enginn erlcndur skiptincmi er í
deildinni nú en þeir voru hér tveir fyrir tveimur
árum og einn í fyrra. „Við eigum í viðræöum
við Verzlunarháskólann í Arósum um að gerast
aðilar að þeirra samskiptaneti en í því neti eru
ýmsir áhugaverðir skólar, t.d. í Barcelona, Brist-
ol, Southampton, Göttingen og Poitiers.” Um
kosti samstarfsins segir Ingjaldur: „Eg tel að
hin nýja Erasmus-áætlun eigi eftir að hafa mjög
mikil áhrif í deildinni. Það væri t.d. algerlega
óhugsandi að bjóða upp á meistaragráðuna án
hcnnar. Mikilvægt er einnig að nemcndur fái
reynslu af því að búa crlendis, sérstaklega á tím-
um aukinna viðskipta og samskipta milli landa.”
Samkvæmt tölum frá Alþjóðaskrifstofu fengu
137.599 evrópskir stúdentar Erasmus-styrk á
skólaárinu 1994-95. Síðan Háskólinn varð
þátttakandi í Erasmus-áætluninni hafa íslenskir
Háskólinn á tímum
Sókratesar
Svo virðist sem Háskóli íslands stefni
hraðbyri inn í Evrópusambandið
(ESB). Meb jyildistöku EES-
samningsins árið 1992 varð
Háskólinn þátttakandi í
Erasmus-áœtlun ESB ojj síðan
þá hafa tæplejja þrjú hundruð
íslenskir stúdentar farið utan á
vejjum hennar.
stúdentar vcrið duglegir við að nýta sér
þennan valkost. A þessu skólaári verða a.m.k.
103 íslenskir háskólancmar erlendis og þar af
koma rúmlega 4 af hverjum 5 úr Háskólanum.
Fjöldinn er þó mjög mismunandi cftir deildum.
Langflestir styrkþegar korna úr heimspekideild
og munar þar mest um þýsku og frönsku en nú
munu vera fleiri þriðja árs frönskunemar í
Montpellicr en hér heima. Að tungumála-
skorunum frátöldum er heimspckiskor virkust
en þaðan koma sjö til átta af alls 45 styrkþegum
úr heimspekidcild. Nemendur dreifast á ellefú
Evrópulönd en vinsælust eru Þýskaland, Ítalía,
Frakkland, Spánn og Brctland.
Þóttfaka háð frumkvæði kennara
Að sögn Þóru er misræmið milli deilda ekki
endilega vegna þess að erfitt sé að samhæfa
námsgreinar milli landa: „Þátttaka deilda hefur
aðallega fariö eftir frumkvæði einstakra kennara.
Auövitaö liggja sumar greinar betur við
stúdentaskiptum en aðrar, s.s. tungumálin. I
öðrum greinum, t.d. heimspeki, cr beinlínis
hægt að benda á einn kennara þar, Mikael
Karlsson, scm heftir verið „primus motor”. Það
er ekkert nauðsynlega mismunandi
námsfyrirkomulag milli landa sem hindrar,
heldur miklu frekar skortur á frumkvæði.
Stúdentar geta leikið stórt hlutverk með því að
þrýsta á og finna lciðir til samstarfs við erlenda
háskóla. Þannig hafa í nokkrum dcildum
kennarar fengið nemendur til að aðstoða við
undirbúning þess.”
Kristín Marta Hákonardóttir er utanríkisfúlltrúi
félags umhverfis- og byggingarverkfræöinema:
„Erasmus-áætlunin er ekki mjög vcl kynnt
innan vcrkfræðinnar og ég veit ekki til að við
séum þátttakendur í ncinu samstarfsneti. Það
h a f a
samt nokkrir
getað komist út
sem fríhlaupar. Verkfræðinemar hafa aftur á
móti mikið nýtt sér Nordplus en ég held ef við
förum ekki að koma okkur inn í Erasmus þá
verði sífellt erfiðara að komast til annarra landa
en Norðurlandanna. Það má eflaust að nokkru
kenna um framtaksleysi hjá okkur en það sem
háir þessu örugglcga líka er að netin þurfa
umsjónarmenn og kennarar þurfa að hafa tíma
og áhuga til að standa í þessu.”
Ætla má að þróun samevrópsks ciningakcrfis
(Europcan Credit Transfcr System — ECTS)
sem þegar er komið í notkun sums staðar muni
auðvelda námsmat milli landa og þannig
minnka hræðslu kennara við að leyfa
nemendum sínum að læra erlendis. Sagnfræði-
skor hcfur í nokkur ár tekið þátt í
tilraunaverkefni með ECTS og mun hafa tekist
vel til. Háskólaráð heftir nýlega samþykkt að
stefna beri að því að taka upp ECTS í þeim
deildum sem taka þátt í Erasmus-samstarfinu.
Ekki veröur hjá því litið að það er talsverður
viðskiptahalli á Erasmus-áætluninni hér á
landi en mun fleiri íslendingar hafa farið út
en útlendingar komið hingað. Erlendum
Veröld Sókratesar
Sókrates: Samstarfsáætlun ESB í rnennta-
málum, frá fyrsta skólastigi upp á háskóla-
stigið. Markmiðin eru m.a. að efla tungu-
málakunnáttu, samstarf menntastofnana og
fjölþjóðasamskipti á öllum skólastigum.
Erasmus: Sókrates á háskólastigi. Evrópskt
stúdenta- og kcnnaraskiptakerfi. Gerir stúd-
cntum kleift að stunda nám við crlcnda
háskóla og fá það mctið að ftillu við eigin
skóla. Háskólinn þátttakandi síðan 1992.
Nordpius: Norræn samstarfsáætlun í
menntamálum. Háskóli Islands þátttakandi
ffá upphafi árið 1988.
ECTS: Samevrt>pska einingakerfið.
Tilgangur þess er að auðvelda námsmat milli
háskóla.Stefnt er að því að taka upp kerfið í
Háskóla íslands á næstu árum.
Frihlaupi: Ncmandi sem fær styrk til að fara
utan til náms á cigin vegum, án skipulagðs
samstarfs í neti.
skiptinemum hefúr þó farið fjölgandi og
fjölgaði þeim um rúman helming frá síðasta
skólaári. Þeir eru nú urn 25 og von er á
fleirum á næstu önn. Flestir eru í lögfræði,
heimspeki og íslensku fy'rir erlenda stúdenta.
Að sögn Þóru er það þó ekki vegna
áhugaleysis sem svo fáir koma. „Það er ekki
erfitt að fá nemendur hingað og raunar er
mikil ásókn í það. Vandamálið er að við
þurfúm að hafa eitthvað í höndunum til aö
bjóða erlendum nemendum svo að þeir geti
komið hingað án þess að læra íslensku fyrst.
Til i læmis er lagadeild nýfarin að bjóða upp á
eins misseris nám sem fer fram á ensku og
það streyma hingað laganemar. Það vantar
herslumuninn í mjög mörgum deildum. En
það er engin spurning að innan einhverra
ára verður þetta komið í fúllan gang. Eg
held að þetta sé ekki spurning um að
nemendur vilji ekki koma. Um leið og
við bjóðum upp á eitthvað þá kemur
fólkið.“
Jónas Þór Guðmundsson er kennslu-
stjóri í lagadeild. „I haust vorum við að
byrja með námskeið ætlað erlendum
nemendum. Boðið er upp á fyórar
sjálfstæðar kennslugreinar - hafrétt,
alþjóðlegan refsirétt, réttarsögu og
Evrópurétt - og öll kennsla fer ffam á
ensku. Þetta er ein önn og er metin til
15 eininga, eða 30 ECTS eininga. Við
höfum fengið góð viðbrögð og
nemendur virðast vera jákvæðir. Við
munum líklega halda áfram með
námskeiðin en tíminn leiðir í ljós hvort
aukið veröur við þau.“
Fyrstu skrefin í gestrisninni
Stúdentaráö er að stíga sín fy'rstu skref í
gestrisni við erlenda nerna. Kamilla Rún
Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri Stúdenta-
ráðs. „Við byrjuðum á því í haust að senda
bréf þeirn sem farið hafa út á vegum
Erasmusar og biðja þá um að aðstoða þá
útiendinga sem hingað koma. Við fengurn
ekki rnikil viðbrögð við því en það þarf svo
sem ekki endilega að vera vegna áhuga-
leysis.“ Kamilla segir að margir erlendir stúd-
entar, ekki aðeins Erasmus-nemar, komi á
skrifstofu Stúdentaráðs í leit að aðstoð.
Meðal þess sem þeir k\-arta ytir er að eiga
erfitt með að komast að félagslífinu í deild-
unum. „Við höfúm áhuga á því að koma upp
tengiliðakerfi til að koma údendingunum í
betra samband við háskólalífið og vonum við
að það verði kornið í gagnið eftir áramót.“
En það eru ekki aðeins nemendur sem koma
og fara á vegum Erasmusar. Þóra telur líka
mikilvægt að hingað komi kennarar.
„Stúdentaskiptin eru mikilvæg en það er líka
nauðsynlegt að þeir sem heima sitja njóti
góðs af Erasmus. Það gerum viö með því að
fa hingað kennara." Ekki eru til tölur \'fir
fjölda gistikennara hér nú en Þóra segir
heimspekiskor t.d. hafa verið mjög virka,
fengið um 10 gistikennara hingaö á síðustu
tveimur árurn og líka sent út kennara.
Þóra segir að umsóknarferlið muni ekki
breytast með tilkomu Sókratesar. „Mögu-
leikar stúdenta á þátttöku í Erasmusi munu
standa og falla með því að skorir og deildir
Háskólans standi sig vel í því að skipuleggja
sitt Evrópusamstarf. Það mun einnig skipta
nemendur rnáli að það stendur til að bjóða
upp á að þeir fari oftar utan án þess að vera á
styrk en fá samt með alla fyrirgreiðslu: vera
skráöur heima, borga skólagjöld heima, fá
aðstoö með húsnæði og námsmat milli landa.
Við höfúm takmarkað fé og miðað við
úthlutunarreglur okkar núna getum við
styrkt 100 nemendur á ári. En það eru rniklu
fleiri sem vilja fara.“
Svartsýnn á breytingarnar
Mikael M. Karlsson, lcktor í beimspcki, hcfur aajjnrýnt brcytinjjar á Erasmus-á&tluninni
með tilkomu Sókrates-áxtlnnar ESB. Hann telur bana illa til þess fallna að lajja jjallana á
Erasmus-áœtluninni.
Nokkur gagnrýni hefúr komið fram hjá
kennurum Háskólans á hið nýja
skipulag með tilkomu Sókrates-
áætlunarinnar. A kynningarráðstefnu
Sókratesar tók m.a. til máis Mikael M.
Karlsson, lektor í heimspeki. Hann segist
vera svartsýnn á breytingarnar: “Garnla
Erasmus-áætlunin var byggö á
persónulegum samskiptum fræðimanna og
hugsjónamanna og ef hún verður sett í
hendur annarra er mikil hætta að hún detti
upp fyrir. Hér er mjög gott fólk á
Alþjóðaskrifstofunni en ef möppudýrin í
samstarfsskólum okkar eru ekki hjálpsöm,
þá er það samstarf úr sögunni,” sagöi hann.
“Sókrates-áætiunin er tilraun til að laga
gallana á Erasmus, sem eru, í fyrsta lagi, að
háskólar veita kennurum sem sjá um áætl-
unina engan stuðning, og í öðru lagi, að
innan háskólanna hefúr ekki veriö mótuð
nein stefna í alþjóðasamstarfi. Það hefði hins
vegar aö mínu mati verið hægt að laga þessa
galla án þess að breyta kerfinu eins mikið
eins og verið er að gera. Það verður fljótt að
koma á daginn efSókiates virkar ekki og við
erum núna að leita að einhverju í staðinn ef
það klikkar. Það eru t.d. miklir möguleikar í
Nordplus-áætluninni. Annars hefur
heimspekiskor alltaf tekið þátt í alþjóðlegu
samstarfi, og þótt Erasmus gufi upp veröum
við ekki strand. Eg er þess vegna ekki með
sérstakar áhyggjur fyrir hönd heimspek-
innar. Það er leiöinlegt að breyta kerfi sem
virkar í aðalatriðum. Eg efast unr að það
takist að drepa Erasmus en ég er rnjög efins
um gildi breytinganna,” sagði Mikael M.
Karlsson á kynningarráðstefnunni.