Alþýðumaðurinn - 18.11.1965, Qupperneq 6
'jíjíií.'k:
BIFYÉLAVIRK JA
+ j •
viljum við ráða nu þegar.
VÉLYIRKI kenrnr einnig til greina.
MÖL OG SANDUR H.F. - Sími 1-19-40
Auglýsing fil húsbyggjenda
Hinn 21. sept. sl. staðfesti Félagsmálaráðnneytið nýja
reglugerð um lánveitingar Hús'næðismálastjórnar.
Reglugerð Jiessi var síðan hirt í B-deild Stjórnartíð-
inda hinn 15. okt. sl. Nauðsynlegt er að vekja athygli
Jjeirra, sem hyggjast sækja um lán til Húsnæðismála-
stjórnar, á þvt að samkvæmt 14. gr. þeirrar reglugerð-
ar skal Húsnæðismálastjórn fylgja eftirfarandi reglum
varðandi stærð nýbygginga við úrskurð um lánshæfni
umsókna:
a) Fyrir fjölskyldu, sem telur 1—2 meðlimi, allt að
70 m2 hámarksstærð, netto.
b) Fyrir fjölskyldu, sem telur 3—5 manns, allt að
120 m2 hámarksstærð, netto.
c) Fyrir fjölskyldu, sem telur 6—8 manns, allt að
135 m2 hámarksstærð, netto.
d) Séu 9 manns eða fleiri í heimili, má bæta við hæfi-
legum fermetrafjölda fyrir hvern fjölskyldumeðlim
úr því með þeirri takmörkun liámarksstærðar, að
ekki verði lánað út á stærri íbúðir en 150 m2, netto.
Varðandi b-, c- og d-lið, sk'al þess sérstaklega gætt, að
herbergjafjöldi sé í sem mestu samræmi við fjólskyldu-
stærð. Öll fermetramál skulu miðuð við innanmál út-
veggja.
Þá skal einnig bent á, að sámkvæmtM2'fv‘gV'.> ’sömu
reglugerðar, skulu umsækjendur — á meðan eftir-
spurn eftir lánum hjá Húsnæðismálástjórn er ekki
fullnægt — sem svo er ástatt um, og lýst er í stafliðum
a til d hér á eftir, eigi fá lán:
a) Eiga eða hafa átt sl. 2 ár nothæfa og fullnægjandi
íbúð, þ. e. 12 m2 netto pr. fjölskyldumeðlim að inn-
anmáli herbergja og eldhúss.
b) Byggja stærri íbúðir en ákveðið er í 14. gr.
c) Byggja fleiri en eina íbúð.
d) Hafa góða lánsmöguleika annars staðar, t. d. sam-
bærileg eða betri en lán samkvæmt reglugerð þess-
ari veita, eða næg fjárráð, að dómi Húsnæðismála-
stjórnar, svo að þeir geti betur komið íbúð sinni í
nothæft ástand, án frekari lána, miðað við aðra
umsækjendur, er afgreiðslu bíða.
e) Fengið hafa hámarkslán á sl. 5 árum, nema sérstak-
ar ástæður séu fyrir hendi að dómi Húsnæðismála-
stjórnar.
Þetta tilkynnist yður
f % •« -f|
.. v ■/ vj ,íí J
,:rV- HÚSNÆBISMÁLASTOF?Í.UN RÍKISINS.
(ifl s*. ii. lf
-í—*
- Heyrt, spurt...
(Framhald af blaðsíðu 4).
herbergi og öðrum vistarverum
eins og vera ber á regluheimili.
En svo bar við að feðgin mjög
náskyld leigjandanum komu til
bæjarins og talaðist svo til á
milli leigjandans og þeirra að
þau kæmu í heimsókn um kvöld
ið sem þau og gerðu. Faðirinn
var svolítið við skál og auk þess
þreyttur eftir ferðalagið og hall
aði sér því útaf í rúm leigjand-
ans, en frændsystkinin höfðu
um margt að spjalla, því að
langt var síðan þau höfðu sézt
en er allliðið var á nóttina
reyndu þau að vekja gamla
manninn, en hann svaf sem fast
ast og urðu þau ásátt um að
leyfa honum að sofa til morguns
og fylgdi leigjandinn frændkonu
sinni þangað sem hún dvaldi.
Leigjandinn hafði séð að aldrei
þessu vant var herbergishurð
hjónanna þetta kvöld eigi lögð
að stöfum eins og venja var.
Og hér kemur eftirmáli sóma
konunnar er lá andvaka við hlið
bónda síns á meðan leigjandinn
stundaði „kvennafar“ í hýbýl-
um hennar. Er hún heýrði að
gengið var niður stigann fann
hún það vera skyldu sína við
guð og sannleikann að vita
vissu sína, og víst sá hún skötu-
hjúin ganga upp götuna í glamp
andi morgunsólinni og sjá nú
var kannski hið þráða tækifæri
hennar upprunnið að kíkka inn
í herbergi leigjandans, en hann
hafði aldréi fram að þessu
gleymt að læsa á eftir sér og
víst bænheyrir drottinn sína út-
völdu- herbergið var 'ólæst, en
„sannleikans“ vegna sá hún eigi
aldraða manninn er svaf Ijúfum
svefni það féll ekki inn í ramma
góðleika hennar. Er leigjand-
inn kom til baka sá hann að
hurð var fallin að stöfum á
hjónaherberginu. í sól sumar-
dagsins þurfti sómakonan nauð-
synlega sannleikans vegna að
skýra frænkum sínum og vin-
konum frá syndumspilltu líferni
leigjanda síns og eflaust hefir
hún sofið svefni hinna réttlátu
næstu nótt eftir að hafa gengið
þyrnum stráða braut sannleik-
ans að hætti Leitis-Gróu.
AMTSBÓKASAFNIÐ er op-
ið kl. 4—7 e. h. alla virka daga
nema laugardaga.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ er
framvegis opið almenningi á
laugardögum og sunnudögum
kl. 2—4 e. h.
VERZLIÐ í
SÉRVERZLUN
Það tryggir gæðin.
T óbaksbúðin
Brekkug. 5, sítni 1-28-20
Leðurvörur auglýsa:
Nýkomnir:
GÖTUSKÓR KVENNA
TELPNASKÓR nr. 27-35 og frá 35-41
UNGBARNASKÓR nr. 18-23
LEÐURVÖRUR H.F., Strandgölu 5, sími 12794
HUSGOGN VIÐ ALLRA HÆFI
GLÆSILEG SVEFN HERBERGISHÚSGÖGN
úr gullálmi, tekki og eik
SÓFASETT og SÓFABORÐ í úrvali
HÚSBÆNDASTÓLAR, nýjar gerðir
SVEFNSÓFAR og SVEFNBEKKIR, margar gerðir
Ath. NÝI einsmanns SVEFNSÓFINN okkar vekur
athygli. Hann er sérstaklega traustur og smekklegur
(Kostar aðeins kr. 6.240.00); \
Hjá okkur fáið þið allt í íbúðina . . .
Verið ekki of sein með sérstakar pantanir
í bólstruðu fyrir jólin.
ÚTIBÚIÐ Á AKUREYRI
Iðnaðarbankinn er stofnaður fyrir forgöngu iðnaðar-
manna og iðnrekenda.
Iðnaðarbankinn hefir að markmiði að efla
íslenzkan iðnað.
Iðnaðarbankinn annast öll innlend bankaviðskipti.
Iðnaðarbankinn opnar útibú á Akureyri laugardaginn
20. nóvember til stuðnings iðnaði bæjarins.
Iðnaðarbankinn væntir þess, að Akureyringar beini
viðskiptum sínum til hans og stuðli á þann liátt að
vexti og viðgangi iðnaðarins á Akureyri.
Afgreiðslutími útibúsins er:
Kl. 10-12 og 13.30-16.30.
Auk þess á föstudögum kl. 17—19.
Laugardaga kl. 10—12.
Símanúmer útibúsins verður 2-12-00 en er til
bráðabirgða 1-25-71
ÚTIBÚ IÐNAÐARBANKA ÍSLANÐS H.F.
OllSl.ACiÖrr 11 - AKVHEVRI
(Inngangur frá Glerárgötn)
■■• ■'«» « i. iíi ■: 'éií \ \ - ygPgf8™-*! ■|i;r"~i~T ‘ C”*?: