Alþýðumaðurinn - 15.09.1966, Qupperneq 1
Opið öll kvöld til kl. 23 30. PB Skipuleís jum ferð- I Fyrir hópa og FRAMKÖLLUN — KOPIERING /V
WæwBm tóbaksbúðin |r api ■ ir endurgjaldslaust | einstaklinga PEDROMYNDIR Akureyri
lirckktigotu wm LÖND O G LEIBIR. Sími 12940 HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (98)11520
ALÞYÐUMAÐURINN
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 15. sept. 1966 — 32. tbl.
Málverkasýning Eggerls
hefst í Landsbankasalnum næstk. laugardag
'IT'INS og AM hefir áður getið kominn til bæjarins og hvetur
JU um, opnar Eggert Guð- Norðlendinga til að fjölmenna
mundsson málverkasýningu í á sýninguna, en hún
Landsbankasalnum 17. þ. m. En standa í vikutíma.
þetía er önnur sýning hans hér
mun
á Akureyri. Listamaðurinn
mun sýna 30 málverk og eru 25
þeirra til sölu.
AM býður listamanninn vel-
=s
| Fegurstu garðarnir
FEGRUNARFÉLAG Akureyr
ar hefir veitt eftirtöldum
viðurkenningu fyrir fegurstu
garðana í sumar:
< Rut Ingimarsdóttir og Gestur
Magnússon, Rauðumýri 20,
Freyja Eiríksdóttir og Garðar
Guðmundsson, Engimýri 2, og
Guðbjörg Árnadóttir og Ingólf-
ur Olafsson, Kringlumýri 11.
1 Formaður Fegrunarfélags Ak
uieyrar er Jón Kristjánsson.
NORÐLENZKT FRAMTAK
STÁLIÐN H.F. nefnist nýstofn
að fyrirtæki á Akureyri og
er þegar tekið til starfa. En
þetta er fyrsta fyriríæki sinnar
tegundar hér á íslandi. Stærsta
verkefni fyrirtækisins er málm
húðun með dufti úr nælon er
Rilsan-nælon 11 heitir, og er
hér um franska uppfinningu að
ræða. En danska fyrirtækið
Industrikemi A/S í Kaupmanna
höfn hefir söluumboð fyrir
þetta efni á íslandi.
Hér er vissulega um undra-
efni að ræða er stuðla mun að
framsækni norðlenzks iðnaðar.
Stáliðn h.f. hefir aðsetur í
Norðurgötu 55 og AM væntir
þess að Norðlendingar og aðrir
kynni sér og reyni framleiðslu
hins nýja fyrirtækis. Rilsan-
nælon kcrnur í stað galvan og
lökkunar og hefir mun meiri
styrkleika og er þó fyllilega sam
keppnisfært hvað verð snertir
við aðra húðun.
Nýtt iðn|yriftæki, fyrsta sinnar tegundar á Is-
landi, er tekið til starfa á Akureyri
Danskir sérfræðingar hafa
leiðbeint eigendum með upp-
setningu tækja og fyrstu fram-'
leiðslu.
Eigendur Stáliðnar h.f. eru
Níels Erlingsson, sem jafnframt
er framkvæmdastjóri fyrirtækis
ins, Alfreð Möller, Guðmundur
Magnússon, Kári Hermannsson
og Valbjörk li.f.
AM óskar hinu nýja fyrir-
tæki allra heilla í framtíðinni
og þakkar eigendum þess fyrir
framtakið.
FEugvaElargerð við Raufarhöfn
Raufarhöfn 13. sept. G. Á. Þ.
LÍTIÐ sem ekkert hefir borizt
af síld hirigað um lengri
tíma eða allt frá septemberbyrj
un. Aðkomufólk er farið eða er
á förum.
Unnið hiefir verið að flugvall-
argerð hér í sumar og hefur
Eigendur Stáliðnar h.f. ásamt fulltrúum Industrikemi A/S. Talið frá vinstri: GuðmUndur Magn-
ússon, Niels Erlingsson framkvæmdastjóri, Helge Jensen landsréttarlögmaður, Adam A. Ochlenslaer
forstjóri, Alfreð MöIIer, Jóhann Ingimarsson og Kári Hermannsson. (Ljósmynd: Niels Hansson).
verkið gengið mjög vel og mun
völlurinn senn tekinn í notkun,
en hann er í ca. 4 km. fjarlægð
frá þorpinu. Styttist því leið
þorpsbúa óneitanlega mjög mik
ið á flugvöll, eða um rúma 50
km., en eins og kunnugt er hef-
ir þurft að fara til Kópaskers
til þess að komast í flugvél. Eru
Raufarhafnarbúar ánægðir yfir
hinni bættu þjónustu er nýi
flugvöllurinn skapar þeim.
AKUREYRINGAR
M'
Þetta er síðasti dagur
keppninnar. Sundlaugin er
opin til 23 í kvöíd. Sigrið
fyrir Akureyri og ísland.
Forsíðuleiðari AM — Og hann í
fnllkominni alvörn
|>LAÐ íhaldsins á Akur-
eyri, íslendingur, hef
ir í 2 síðustu tölubl. sín-
um gefið til greina, að
íhaldið hefði orðið nokk-
um áhuga fyrir bæjarmál
um í Aukreyrarkaupstað
og er með nokkur hnífil-
yrði í garð jafnaðar-
manna í því sambandi.
AM óskar íhaldinu til
hamingju með það að því
hefir nú loksins aukizt
kjarkur með haustdögum
eftir kosningaósigur sinn
í vor, og það er kannski
mannlcgt þá er gremjan
er, að ná flugi yfir Súlu-
tind eða Moldhaugnáháls
þó að reynt sé af nokkurri
kokhreysti að spýta mó-
rauðu á andstæðinga á
meðan hleypt er í axlir.
En AM vill í fullri vin-
semd rifja upp hver við-
brögð „stóru flokkanna“
eftir kosningar í vor voru
og leyfir sér fyrst að birta
bréf það er Alþýðuflokk-
uiinn skrifaði Sjálfstæðis-
flokk og Framsóknarflokk
að afloknum kosningum.
Bréfið var svohljóðandi:
„Að samþykkt trúnað-
arráðs Alþýðuflokksfélag-
anna á Akureyri á fundi
þess í gær, 23. maí, óskum
við bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokksins viðræðna
við bæjarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins um mynd-
un ábyrgs, samstæðs
meirihluta í bæjarstjóm
Akureyrar að baki núver-
andi bæjarsljóra á kjör-
tímabili því, sem hafið er.
Samkomulag þetta
verði reist á fastmóatðri
áætlun um framkvænrdir
bæjarins næstu ár og sam-
vinnu um nefndaskipan
og val forseta.
Af hálfu okkar hafa
fjórir efstu merin á tram-
boðslista Al|rýðuí!okksins
við nýafstaðið bæjarstjórn
arkjör verið valdir til þess
ara viðræðna.
Með von um skjót og
jákvæð svör.
Virðingarfyllst.
Akureyri, 24/5. 1966“.
í leiðara AM 23. tbl.
útgefnu 9. júní eru birtar
staðreyndir um viðbrögð
borgaraflokkanna beggja
varðandi bréf jafnaðar-
manna, og hvorki Dagur
eða fslendingur sáu
ástæðu til þess í sumar, að
slá því fram að þar væri
réttu máli hallað. f leið-
aranum stóð m. a.:
„Munnlegt svar Sjálf-
stæðis var þannig, að það
sæi ekki ástæðu til við-
ræðna, nema svar Fram-
sóknar væri jákvætt. Svar
Framsóknar var synjun á
(Framhald á blaðsíðu 2)
Bæjarstjóri svarar „Bæjaribúa44, sjá Ms. 5