Alþýðumaðurinn - 15.09.1966, Blaðsíða 2
N
l|>róllasíAa A.M.
...................................miiiiiiiiiiimm..
RITSTJÓRI: ER-Í MA NN GUNNLAUGSSON
IIIIIMIIMMIIIMIIIIIIIMIIIIIMIIMIIIIIIIIIIIIMIIII 11IIIIIIII11IIIIIMMMIM»mlMIIII11IIII1111IIIK'1111111IIII1111II11III1111111MMIII11II MMIIIIIIIII111III11MIIIII11IIMIIIIIIIIIIIII11111III11II11111»
Stefán Eirikfson 02 íþróttirnar
i :í*y O 1
Forsíðuleiðari AM
EKKI get ég látið hjá líða að
„stinga niður penna“ þótt
ég viti að það er tilgangslaust
verk. Vanþekking Stefáns
Eiríkssonar á íþróttamálum
skiptir hann engu máli, og það
sem verra er, liann finnur ekk-
ert til þess, svo notuð séu hans
eigin orð, úi' grein hans í síð-
asta tölublaði AM. En samt sem
áður nokkui' orð.
Ég vil upplýsa Stefán um, að
ég er hvorki „ráðsmaður“ eða
stjórnarmeðlimur í ÍBA.
Enn ber Stefán höfðinu við
steininn og ræðir innkomu á
íþróttavöllinn hér. Ef til vill
hefur Stefán lesið grein mína,
til hans, tvisvar, ég mundi
leggja til að hann læsi hana
einu sinni enn, þá (vonandi)
mundi hann sjá að átt er við
innkomu á leiki I. deildar ís-
landsmótsins. Þeir leikir eru
fimm, sem fram fara hér á Ak-
úreyri. En Stefán er jafnvel
heima í þessum málum, sem
öðrum og stendur eflaust i
þeirri meiningu að allur að-
gangseyrir að öllum kappleikj-
um, sem fram fara á íþrótta-
vellinum á Akureyri sé sendur
suður til Reykjavíkur til móta-
nefndar KSÍ, og að knattspyrnu
ráð Akureyrar sjái um fram-
kvæmd allra kappleikja sum-
arsins.
Stúkan á íþróttavellinum hér
tekur 600 manns í sæti þegar
fullskipuð er, þar er hæst verð
á aðgangseyri kr. 50 og svo ég
reikni þetta nú fyrir Stefán þá
er hægt að fá brúttóhagnað af
fimm leikjum ef eingöngu er
setið í stúku kr. 150.000.00. En
þetta getur Stefán kynnt sér
ennþá betur í reikningum vall-
arins, ÍBA og sérráða þess, sem
ég veit ekki betur en að séu
opnir öllum bæjarbúum sem
áhuga hafa á.
Ef Stefán Eiríksson þekkti
lög og reglur ÍBA og íþrótta-
íélaga mundi hann komast að
raun um að árásir hans (svo ég
noti það orð) á ÍBA snúast við
og verða árásir á forystumenn
Knattspyrnufélags Akureyrar
og íþróttafélagsins Þórs. Til
þess að gera Stefáni þetta enn
ljósara skal birt hér úr nýút-
komnum fræðslubæklingi frá
Iþróttasambandi íslands eftir-
farandi:
Aðalhlutverk íþróttafélaga er:
1. Að gefa félögum sínum kost
’" á' fþróttakennslu, þjálfun og
: keppni.
2. Að gefa félögum sínum kost
á örvandi samvistum og fé-
lagsskap.
Ennfremur:
Styrkur hvers íþróttafélags
er meira fólgin í forystumönn-
um þess en keppendum eða fé-
lagsmönnum.
Stefán talar um að bæjarfé-
lagið þurfi að úthluta KA og
Þór athafnasvæðum „ef þáu
heimtu .aftur sjálfstæði sitt“.
Bæjarfélagið hefur þegar út-
hlutað KA félagssvæði hér ofan
við Mýrarveg og Þór félags-
svæði í Glerárhverfi neðan
Hörgárbrautar.
Mér skilst á grein Stefáns að
„margir eldri félagar Þórs og
KA“ séu að hugsa um stofnun
nýs íþróttafélags. Væntanlega
verður Stefán Eiríksson þar
„ráðsmaður“. Fær þá æskulýð-
ur bæjarins að njóta forystu
hans, og ef að líkum lætur verð
ur það starf hans ekki lakara,
en skrif hans í Alþýðumannin-
um undanfarið.
Þekking eða vanþekking
Stefáns á þessum málum skipta
hann engu máli og hann finnur
ekkert til þess, því tel ég til-
gangslaust að halda þessum
skrifum áfram og ræði þessi
mál ekki frekar við Stefán
Eiríksson, með þökk fyrir birt-
inguna.
Jens Sumarliðason.
Eflirmáli AM og Sfefáns
JjAR sem AM kemur ekki út í næstu viku, fannst AM heiðarlegt
að kunngjöra Stefáni Eiríkssyni það, og þá jafnframt að komið
væri fram svar við svari hans er birtast myndi í næsta blaði. Af
kynnum mínum af Jens Sumarliðasyni veit AM að hann telur
blaðið ekki hafa farið óheiðarlega að. Að frumkvæði ritstjóra AM
svaraði Stefán Eiríksson spurningu blaðsins í uppliafi og því finnst
AM það sjálfsagt að hann hafi orðið að síðustu. AM vill í lokin
þakka Stefáni Eiríkssyni, Jens Sumarliðasyni, já og einnig Svavari
Ottesen þótt hann skrifaði í Dag, fyrir innlegg þeirra í þetta mál.
AM telur að deilt hafi verið alldrengilega þó nokkurs skaphita hafi
gætt. Lýkur hér með AM umræðum um þetta mál að sinni. En hér
kemur eftirmáli Stefáns Eiríkssonar.
Athugasemd
RITSTJÓRI Alþýðumannsins
bauð mér að lesa þessi skrif
áður en blaðið fór í prentun, ef
ég vildi svara þeim einhverju.
Þessu er fljót svarað.
Ég spurði um úrræði ÍBA á
vandamáli sem ég tel hafa til
orðið við tilkomu þess banda-
lags, hins vegar hef ég hvergi
spurt um lög eða reglur eins
eða neins félags. Ég hef ekki
heldur óskað umræðna um
þekkingu, vanþekkingu eða yfir
leitt gáfnafar eins eða neins.
Hins vegar hef ég við lestur
skrifa Jens öðlast persónulega
skoðun á hans eigin gáfnafari
og þekkingu, en sé ekki að það
komi umræðum um íþróttamál
við og skal lofa honum að minn
ast ekki á staðreyndir í þeim
efnum við neinn. Við vitum
þetta væntanlega tveir einir.
Ætli ég sleppi ekki einnig
frekari umræðum um innkomu
á íþróttavöllinn. Kanntu annars
söguna um gyðinginn og pró-
senturnar, Jens.
Ég hóf þessar umræður vegna
þess að vandann verður að
leysa á komandi vetri og ég sé
enga ástæðu til að standa í
persónulegu skítkasti við einn
eða neinn þó ég hafi bent á
ákveðin mistök manna sem eru
í þjónustu almennings.
Ég hef sett fram mínar tillög-
ur til úrbóta og vona að þær
verði teknar til athugunar.
Vandamálið í sambandi við
íþróttirnar er óleyst, en ég vona
að forystumenn ÍBA og íþrótta
félaganna taki þetta stóra vanda
mál bæjarbúa til athugunar og
eigi þá einhver betri ráð til úr-
bóta en þessi sjálfskipaði blaða
fulltrúi þeirra.
Stefán Eiríksson.
(Framhald af blaðsíðu 1).
samstarfi nefndra þriggja
flokka, en leitaði eftir
stuðningi Alþýðuflokks-
ins við forsetaefni sín í
bæjarstjóm.
Hluti Framsóknar vildi
hins vegar ákveðið mynda
meirihluta með Alþýðu-
bandalagi og kjósa nýjan
bæjarstjóra. Til að hindra
þá þróun mála bauð Al-
þýðuflokkurinn Frain-
sókn að kjósa með henni
Jakob Frínrannsson sem
forseta bæjarstjórnar og
varaforsetann einnig úr
hennar hópi, enda styddi
Framsókn Magnús E.
Guðjónsson áfram sem
bæjarstjóra um næstu 4
ár. Fimm dögum eftir
þetta boð barst svar Fram
sóknar jákvætt.
Að þessu svari fengnu
innti Alþýðuflokkurinn
Sjálfstæði eftir því, hvort
það vildi hafa samstarf
við hann um nefndakjör,
þar sein slíkt gat verið
ávinningur fyrir báða
aðila, þó ekki fyrir Sjálf-
stæði nema hætta væri
Sjálfstæði hafnaði allri
samvinnu við Alþýðu-
flokkinn um nefnda-
kjör, og mun hafa treyst
því, að Alþýðuflokkurinn
beitti sig ekki harðræðum
í þessum málum, hvað og
ekki varð, því að hver
flokkur gekk einn til
nefndakjörs, eftir að Al-
þýðuflokkurinn liafði í
byrjun fyrsta bæjarstjórn
arfundar óskað eftir alls-
herjarsamkomulagi um
kjör 4 manna nefndar,
þannig að liver flokkur
fengi þar einn fulltrúa.
Bæði Sjálfstæði og Frant-
sókn neitaði“.
Treysti íslendingúr sér
að hrekja ofanritað, ef
svo reynist verður það
ekki af skynsemi gert
lieldur fremur sönnun
þess að ólund þeirra frá
í vor hefur ekki náð flugi
yfir Súlutind ennþá. Fáir
munu ásaka jafnaðar-
menn fyrir það, þar sem
kannað var eftir viðbrögð
„stóru“ flokkanna að eng
inn grundvöllur var fyrir
hendi um myndun ábyrgs
meirihluta þótt bæjarfull
trúar jafnaðarmanna
styddu Framsóknarntann
í forsæti bæjarstjórnar,
með því skilyrði að Fram
sóknarmenn kysu Magn-
tis E. Guðjónsson áfram
sem bæjarstjóra, að vísu
annan mann en Fram-
sóknarmenn höfðu á odd-
inum. Stuðningur jafnað-
amanna við Magnús bæj-
arstjóra mun eigi vera
víttur af kjósendum Sól-
nes, Jóns og Árna, því
það sönnuðu þeir sjálfir
við bæjarstjórakjör.
Skjóta má því hér inn í
að Dagur útgefinn síðasta
laugardag hallar líka
réttu máli, og er hér
nokkur samstaða milli
borgaraflokkanna um að
sniðganga sannleikann.
Dagur talar um að jafnað
arntenn hefðu boðið upp
á samvinnu um ntálefna-
samning en ekki fram-
kvæmdaáætlun. AM bið-
ur ritstjóra Dags að hressa
upp á minnið og lesa ofan
ritað bréf jafnaðarmanna
og sjá sannleikann. Það
þýðir hvorki fyrir Dag
eða Islending að reyna að
hvíþvo flokka sína, að
hér er enn enginn sam-
stæður meirihluti á bak
við bæjarstjóra okkar.
Mikill ineiiihluti Akur-
eyringa mun þakka jafn-
aðannönnum fremúr en
áfellast þá fyrir það að
liafa stlíðlað að því að
Magnús E. Guðjónsson
var endurkjörinn bæjar-
stjóri. Akureyringar vita
einnig að þáð var fýla
íhalds og hollusta Fram-
sóknar við stjórnarand-
stöðu Eysteins er komu í
veg fyrir að myndaður var
ábyrgur meirihluti innan
bæjarstjórnar Akureyrar.
En „stóru“ flokkarnir
eiga enn völina, nefnd er
sjarfandi innan bæjar-
stjórnarinnar, er semja
skal framkvæmdaáætlun
fyrir Akureyrarkaupstað,
og þar mun sannreynt í
annað sinn hver vilji
„stóru“ flokkanna er til
að gára lygnuna. En vill
Islendingur annars svara
því hve hátt stórstreymið
sté út frá bæjarfulltrúum
íhaldsins á fyrsta fundi ný
kjörinnar bæjarstjórnar í
vor? Jú, enn á íhaldið völ
ina og víst skal bíða enn
um sinn, ef ske kynni að
hressandi svali kynni að
blása af Sólneshæðum
svona rétt fyrir veturnæt-
ur.