Alþýðumaðurinn - 03.10.1969, Page 8
í augsýn: Skrifstofustólar, vélrifunarstólar á hjólum, frá 2575 kr.
AUGSYNHF.
SÍMI 2-16-90
Islenzkt leikár hjá Leiklélagi Akureyrar
Sýnir m. a. Gullna hliðið - Frkv.stjóri ráðinn
LEIKFÉLAG AKUREYRAR liefur sent frá sér fréttablað til kynn-
ingar á starfsskrá félagsins 19G9—70. Birtir AM liér á eftir fyrir-
hugaða starfsskrá félagsins.
Leiklistin í landinu hefur tek
ið miklum breytingum á liðnum
áratugum, og er nú svo komið
að leikhús höfuðstaðarins starfa
sem atvinnuleikhús. Það er því
einsýnt hvert stefna ber. Lærð-
ir leikarar verða að fá hér starfs
aðstöðu fyrr en seinna. Höfuð-
staður Norðurlands hlýtur að
leggja metnað sinn í að verða
samkeppnisfær á sem flestum
sviðum.
L. A. stígur nú fyrsta skrefið
á þessari braut, með ráðningu
leiklistarmenntaðs fram-
-kvæmdastjóra, og jafnframt er
verkefnum fjölgað að mun. Það
er von L. A., að leiklistarunn-
endur í bæ og byggð, sýni þess-
ari viðleitni félagsins áhuga og
geri því kleift að ná settu xnarki.
ÍSLENZKT IÆIKÁR.
íslenzkt leikár verður stefna
L. A. þetta starfsár. Verkefna-
ski-á vetrarins er ákveðin þessi:
Rjúkandi ráð.
Léttur söngvaleikur með tón-
list eftir Jón Múla Árnason. —
=000^
=s
ÞAKKIR
AM vill þakka þeim mörgu, er
fljótt og vel hafa greitt áskriftar
gjald AM, bæði hér á Akur-
eyri og út um allt land — og
blaðið er bj artsýnt á að í leið-
sveit AM fjölgi á degi hverjum
og áskriftargjöld berist frá fleir
um, en póstkröfur hafa verið
sendar til.
Lögreglan er í brennidepli, feg
urðarsamkeppni o. fl., o. fl. —
sem sagt, í'júkandi grín. Rjúk-
andi ráð verður frumsýnt í Sjálf
stæðishúsinu um miðjan októ-
ber. Leikstjóri er Arnar Jóns-
son.
Brönugrasið rauða
er fyrsta leikrit Jóns Dan sem
sýnt er á sviði, en hann er þeg-
ar kunnur af sögum sínum og
ljóðum. Brönugrasið er sér-
kennilegt leikrit, sem gerist
bæði í vöku og draumi, en ekki
er rétt að láta frekar uppi um
efni þess. Tónlistina semur
Magnús Blöndal Jóhannsson,
en leikstjóri er Sigmundur Örn
Arngrímsson. Frumsýning í
byrjun nóvember.
Gullna hliðið
eftir Davíð Stefánsson verður
sýnt í tilefni 75 ára fæðingar-
afmælis þjóðskáldsins, 21. janú-
ar n. k. Þrettán ár eru nú liðin
síðan þessi vinsæli sjónleikur
var síðast leikinn hér.
Dimmalimm
er fyrirhugað sem barnaleikrit
félagsins. Margir munu kannast
við sögu Guðmundar Thorsteins
sonar (Muggs) um Dimmalimm.
Frú Helga Egilson, sem sagan
var skrifuð um, hefur samið
leikritið um prinsessuna, sem
var svo „þæg og góð.“ Tónlistin
er eftir Atla Heimi Sveinsson.
Frumsýning er fyrirhuguð í
febrúar.
Síðasta verkefnið
ei’ alveg nýtt af nálinni. Þetta
er söngleikur Jónasar Árnason-
ar um Jörund hundadagakon-
ung og mun þeim söguþræði
ekki fylgt nema mjög lauslega.
Frumsýning er fyrirhuguð í
(Framhald á blaðsíðu 7)
39. árgangur — Akureyri, föstudaginn 3. okt. 1969 — 24. tölublað
Nýtt þ j ónustuf yrirtæki hér í bæ
Ný prentvél, fyrsta sinnar tegundar á Akureyri
UNDIRRITAÐUR fregnaði það fyrir nokkru að Hörður Svanbergs
son yfirprentari í POB hefði keypt og tekið í notkun sérstaka prent
vél sem er nýung í iðnaðarsögu Akureyrar. Fór ég þess því á leit
við Hörð að hann við tækifæri sýndi mér gripinn og varð hann
ljúflega við þeirri bón minni.
Sl. þriðjudagskvöld, þá er
sjónvarpið sýndi vetrarríki á
Suðurlandi, ekur Hörður mér
um auðar götur Akureyrar til
síns heima að Hamarsstíg 25,
en einmitt á heimili hans er hin
nýja prentvél til húsa. í kjallara
hússins lít ég vélina og vissu-
lega er hún ekkert mikil á velli
S
Lesendur -
S
SÖKUM óviðráðanlegra orsaka
mun Alþýðumaðu-rinn a. m. k.
ekki koma út í næstu viku. —
\\SV
S
Framkvæmdastjóraskipti við
Fiskiðjusamlag Húsavíkur
Húsavík 31. sept. G. H.
UM þessar mundir eiga sér stað
framkvæmdastjóraskipti hjá
Fiskiðjusamlaginu. Björn Ólafs
son, er gegnt hefur starfinu und
anfarin ár, hefur sagt starfinu
lausu — og mun innan skamms
taka við forstöðu fyrirtækis er
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga rekur í borginni Leeds á
Englandi. Við starfi Björns tek-
ur Tryggvi Finnsson fiskifræð-
ingur.
Afli rýr að undanförnu.
Afli hefur verið heldur tregur
að undanförnu og veldur vafa-
laust miklu um óhagstætt sjó-
veður. Vaktavinnu er lokið hjá
Fiskiðjusamlaginu að sinni.
Mun hún hafa gefizt vel, en nú
þegar skólar eru- byrjaðir hafa
húsmæður sem skiljanlegt er
naumari tíma til útivinnu — og
þar að auki bætist aflatregða
við.
Áætluðum framkvæmdum við
Garðarsbraut lokið.
Áætluðum framkvæmdum við
Garðarsbraut er áætlaðar voru
á þessu sumri, er þegar lokið.
Hér er nú alhvít jörð í kvöld,
hefur gengið á með hríðaréljum
í dag, en vonandi er þetta að-
eins kuldakast en eigi það að
veturinn sé strax seztur í garð.
- athugið!
Lesendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessu — og vonandi
hittumst við aftur þann 17. októ
ber næstkomandi.
En ef auðna verður AM óhlið
holl í þessu efni — treystir blað
ið á þolinmæði ykkar.
— og þar sem ég er mesti glóp-
ur á tæknisviði, hvort sem
prentvélar er um að ræða eða
á öðru sviði, bið ég Hörð að út-
skýra fyrir mér verksvið hinnar
nýju vélar.
Hverskonar nýung er hér um
að ræða Hörður?
Ég vil taka fram að hér er um
nýbreytni að ræða, sem er
óframkvæmanleg í öðrum prent
smiðjum bæjarins, með þá stað-
reynd í huga vil ég útiloka þá
skoðun, ef hún er fyrir hendi,
að hér sé um samkeppni að
ræða hvað varðar prentiðn í
bænum. Það sem þessi prentvél
hefur fram yfir aðrar er það að
hún getur framleitt mun skraut
legri miða — og auk þess prent
ar hún á sjálflímandi pappír
upp í 1—2 liti í einu og sker
stærðina á miðanum samtímis
og vefur framleiðslunni upp í
rúllur. Vélin getur prentað á
allt frá gull- og silfurpappír nið
X\\v
Ógæftir og aflatregða
Hrísey 2. okt. B. J.
NÚ ER hér hvít jörð í eyju. í
dag hafa gengið yfir hríðarél af
suðaustri.
Afli hefur verið tregur að
undanförnu. Færabátar hafa lítt
komizt á sjó vegna ógæfta og
afli dragnótabáta hefur verið
rýr að undanförnu, einnig Snæ-
fells. En frystihúsið á til nokk-
urt forðabúr af kola sem gripið
er til að skapa verðmæti úr —
á meðan aflatregðan stendur
yfir.
Allir í sláturgerð.
Þótt sauðfjáreign Hríseyinga
sé orðin hverfandi lítil, eru þó
flestar húsmæður í eyju nú
þessa dagana á kafi í sláturgerð
og fara Hríseyingar aðallega til
(Framfaald á blaðsíðu 7)
ur í hvítan eða mislitan pappír.
Þessi sjálflímandi pappír hefur
rutt sér mjög til rúms bæði er-
lendis og hérlendis hin síðustu
ár.
En framleiðslan Hörður, hver
er hún aðallega?
Hún er aðallega fólgin í vöru
merkingum alls konar. Eftir
landslögum munu framleiðend-
ur vera skyldugir að merkja sér
framleiðsluvörur sínar. Gefur
því auga leið að slík prentvél er
nauðsynleg í mesta iðnaðarbæ
landsins, sem Akureyri vissu-
lega er. Já, svo býr hún yfir
nýjungum á fleiri sviðum — og
Hörður rís snöggur á fætur —
og áður en ég veit af er hann
búinn að líma miða á jakka-
boðung minn — þar má lesa
Akureyrar Apótek 150 ára,
svona í fljótu hasti er mér um
og ó um þessa framtakssemi
Harðar, þótt ég sé eldri að ár-
um í útliti en fæðingarvottorð
segir til um er mér um og ó að
hafa álímdan á skásta jakka
mínum hálfrar annarrar aldar
stimpilmerki — en Hörður hef-
ur eflaust skynjað þankagang
minn — og þrífur brosandi
merkið af með snöggu handtaki
og strýk boðunginn — og mér
léttir, ekkert límklístur — og
sökum þess að ég er því miður
tortrygginn og efunargjarn í
eðli mínu tylli ég merkinu aft-
ur á límið er virkt sem áður,
en sem áður skilur ekkert eftir
sig — og eftir þá reynslu, er ég
hlaut þarna af tækni prentvél-
ar Harðar vænti ég þess að all
hvimleiðir títupi'jónar tilheyri
liðinni tíð til áfestingar hátíðar
merkja t. d. á afmælisdegi lýð-
veldis okkar og hátíðisdegi
verkalýðsins þann 1. maí svo
dæmi séu nefnd. Ég komst einn
(Framhald á blaðsíðu 3)
%
Norðlenzkt framtak í Hornafirði
SMYRLABJARGSÁRVIRKJUN VÍGÐ í DAG
NORÐURVERK h.f. á Akur-
eyri hefur staðið í virkjunar-
framkvænidum á Suð-Austur-
landi á þessu sumri, Smyrla-
bjargarárvirkjun, sem verður
orku og Ijósgjafi Austur-Skaft-
fellinga, þar á meðal miðstöðvar
héraðsins, Hafnar í Hornafirði.
Norðurverk hyggst í dag vígja
Smyrlabjargsárvirkjun, er veð-
urfar leyfir flug — og af tilcfni
þessa merka viðburðar í sögu
Norðurverks, hefur fyrirtækið
boðið akureyrskum blaðamönn
um. Blaðamaður AM í för þess-
ari og jafnframt ljósmyndari
verður Páll A. Pálsson.
Hörður við hina nýju prentvél sína.
Ljósmyndastofa Páls.