Alþýðumaðurinn - 04.09.1970, Blaðsíða 8
1 AUGSYN
SKÓLAFÓLK! Yið eigum húsgögn, sem yðiir vantar. —
VERIÐ VELKOMINN
AUGSYN
SÍMf 2-16-90
Nýjungar í vöruflutning-
uffl ú! á landsbyggðina
NÝLEGA lenti á Akureyrar-
flugvelli flugvél frá flugfélaginu
Flugfragt h.f., kom hún frá
Þýzkalandi með farm af AEG
heimilistækjum, en fyrirtækið
Bræðurnir Ormsson í Reykja-
vík hefur umhoð fyrir þessum
vinsælu heimilistækjum. Farm-
ur flugvélarinnar var til þriggja
kaupfélaga, Kaupfélags Evfirð-
inga, Kaupfélags Héraðsbúa og
Kaupfélags Skagfirðinga. Flug-
vélin hafði viðkomu í Revkja-
vík. Þessi tilraun gafst mjög vel
— og er viðbúið að framhald
verði á þessum flutningum, eft-
ir þessa fyrstu jákvæðu reynslu
af þessum loftflutningum má
vænta að áframhald verði á
þeim.-- ■ • - ■
‘ Myiídina seih, með fylgir tók
Gunnlaugur P. Kristinsson á
Akureyrarflugvelli við komu
flugvélarinnar frá Flugfragt.
Vaxandi bær, sem á irikia framtíð fyrir sér
S "" ...
STUTTAR AM FRÉTTIR
ar læknamiðstöðvar, sem þar er
upp risin — og þjóna á ekki
einungis kaupstaðnum heldur
og líka sveitum sýslunnar. Veg-
legt félagsheimili er í smíðum
og hluti þess þegar tekin í
notkun menningarmiðstöð risin
— og síðast en ekki sízt skal
nefna hitaveituframkvæmdirn-
ar, er þar standa nú yfir. Ef
tíðarfar reynist hagstætt mun
verða lokið við hitavatnsleiðsl-
una til bæjarins fyrir miðjan
þennan mánuð. Leiðslan frá
Hveravöllum er 19 km. á lengd.
Þegar er byrjað í bænum að
grafa fyrir hitavatnslögnum —
og ef vetur setzt eigi að snemma
er það von Húsvíkinga að bær-
inn þeirra verði orðinn heitur
áður en árið kveður. Sérfræð-
ingar telja að bæjarbúar fái þar
til upphitunar 80 gráðu heitt
vatn í hús sín.
Vinna hefur verið geysimikil
á Húsavik í sumar — og hafa
konur eigi vílað það fyrir sér
að annast útskipun á kísilgúr,
svo að dæmi sé nefnt.
Þótt tóm gæfist ekki til að
taka marga menn tali í reisu
minni á þing jafnaðarmanna,
fannst mér liggja .í loftinu dugn
aður og framtakssemi Húsvík-
inga og trú á framtíðina muni
gera Húsavík að voldugri mið-
stöð hins víðfeðma og broshýra
Þingeyjarþings. Næstu fram-
kvæmdir, sem Húsvíkingar hafa
í huga eru brýnar hafnarfram-
kvæmdir — og munu þar ef-
laust verða að veruleika innan
langs tíma.
Að svo búnu vil ég fyrir hönd
aðkomumanna, er sóttu þing
jafnaðarmanna á Húsavík,
senda skoðanabræðrum og systr
um beztu þakkir fyrir rausnar-
(Framhald á blaðsíðu 5)
•ÁTXURINN Heyrt, spurt, séð
tg hlerað fellur niður í blaðinu
: dag, ekki fyrir það, að eigi
laii bréf borizt þættinum í
uniardái þess. Heldur af hinu,
-tð núverandi ritstjóri hefur eigi
>ynt þann manndóm að yfirlíta
tréfin eftir að liann kom í bæ-
nn — og vræri eigi óeðlilegt
íð hann fengi mörg skammar-
iáréf næstu daga.
1M
ALÞÝÐUM AÐ URINN
-- ’OOO-
40. árg. — Akureyri, föstudaginn 4. september 1970 — 20. tölublað
ORKIN
Nýtízkuleg verzlun við Ráðliústorg
FYRIR nokkru opnaði Jóhann
Ingimarsson fyrrverandi for-
stjóri Valbjarkar mjög skemmti
lega og jafnframt mjög geð-
þekka verzlun við Ráðhústorg
— og nefnist verzlunin „Orkin
hans Nóa.“ Verzlun Jóhanns
mun aðallega hafa húsgögn á
boðstólum og svo ýmsa listmuni
til heimilisprýði — og má þar
sjá marga fagra listmuni, er
gleður aðkomumenn — og auð-
vitað um ~IeíS "fi'e'isfar líáhs.
Oll er verzlunin einkar smekk-
leg og- í mörgu nýlunda hér í
bæ —og það er.líkt því að koma
inn á vinalegt heimili er litið er
inn í Örkina hans Nóa. Jafn-
framt verzlunarstörfum mun
Jóhann sem áður veita þeim
sem að garði bera tæknilega að-
stoð og.þjónustu varðandi hús-
gagnaýal, litaval, skipulag íbúða
(Framhald á blaðsíðu 4)
f— --11
Furðuleg ráðstöfun
Benzínafgreiðsla í íbúðarhverfi(!)
Mótmæli íbúanna hunzuð! (?)
MEIRIHLUTI bæjarráðs, tveir
fulltrúar íhaldsins og Ingólfur
Ái-nason, hafa samþykkt í bæjar
ráði umsókn olíufélags að á
hinni svonefndri Grísabólslóð
skuli upp rísa benzínsölustöð og
þvottaplan, þrátt fyrir andstöðu
meginþorra íbúa hverfisins, en
um 350 íbúar þessa hverfis
sendu mótmæli til bæjarráðs
varðandi ,. þessar fyrirhuguðu
framkvæmdir, en fyrrnefndur
meirihluti hefur óskir íbúanna
að engu.
Satt að segja virðist þennan
bæ vanta margt annað brýnna
en enn eina benzínsölu og þá
sjoppu í sambandi við hana.
Mun e. t. v. verða vikið nánar
að þessu máli síðar í blaðinu.
ÍJr hinni nýju verzlun KVA. Afgreiðslustúlkan, Inga Tryggva-
dóttir, liafði nóg að gera þá er tíðindamaður blaðsins staldraði þar
t'ið. Ljósmyndastofa Páls.
Kaupfélag Verkamanna-
opnar útibú í StekkjargerSi
KAUPFÉLAG VERKAMANNA
hefur nýverið opnað útibú að
Stekkjargerði 2, sem er á mót-
im gatnanna Stekkjargerði og
Akurgerði — og er þetta fyrsta
verzlunin í þessu fjölmenna
búðarhverfi. Þetta nýja útibú
Kaupfélags verkamanna er
mjög vistlegt — og sannkallaður
mfúsugestur íbúa hverfisins. í
rinni nýju verzlun verða auk
nauðsvnlegra nýlenduvara á
boðstólum flest allar landbún-
aðarvörur, mjólk og ýmsar kjöt
vörur og álegg. Einnig brauð,
fiskur, gosdrykkir og sælgætis-
vörur og fleira.
Eigi er að efa að hverfisbúar
kunni vel að meta þetta fr.am-
tak og þjónustu Kaupfélags
vei'kamanna.
ÓREGLULEG ÚTKOMA.
Eins og lesendur margir hafa
látið mig heyra með hressileg-
um skammarbréfum, hefur út-
gáfa blaðsins legið niðri í 2 mán
uði — og því miður verð ég að
upplýsa að útgáfa blaðsins mun
verða næsta óregluleg þennan
mánuð, eða þangað til að nefnd
sú er kjörin var á kjördæmis-
þingi jafnaðarmanna á Ilúsavík
hefur skilað áliti og niðurstöður
um framtíð blaðsins liggja fyrir.
Ég tel það ekki neitt launungar-
eða feimnismál að upplýsa, að
(Framhald á blaðsíðu 7)
.4 ÖÐRUM stöðum í blaðinu, er
sagt frá ánægjulegu þingi
íafnaðarmanna á Húsavík. Þótt
stutt væri stanzað í höfuðstað
foeirra Þingeyinga var augljóst
gestsauga að kaupstaðurinn er
í miklum uppgangi. Mikið
sjúkrahús risið af grunni, og er
vonandi að starfskraftar þess
verði jákvæðir liðsmenn þeirr-