Stúdentablaðið

Volume

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Page 6

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Page 6
Stúdentar sameinast á Stúdentadeginum Stúdentadagurinn á sér langa sögu en stúdentar við Háskóla íslands gera sér kannski ekki allir grein fyrir því af hverju hann er haldinn hátíðlegur ár hvert. Að sögn Hildar Björnsdóttur, formanns Stúdentaráðs, er tilgangur dagsins fyrst og fremst að efla samkennd meðal stúdenta. Innan háskólans eru fjölmargar sjálfstætt starfandi einingar, Stúdentaráð og nemendafélög til dæmis, og því mikilvægt að hafa dag sem þennan til að Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands ávarpar gesti. minna stúdenta og samfélagið á að kjarni Háskólans og auðlindin sem þar býr eru stúdentarnir sem stunda þar nám. Ásamt því að vera tilefni fyrir stúdenta til að sameinast er þetta einnig mjög góður vettvangur til að vekja athygli á málefnum sem þá varðar. Þennan dag koma forseti (slands og rektor Háskólans saman til að taka þátt í degi stúdenta ásamt fleiri góðum gestum og því tilvalið fyrir stúdenta að láta í sér heyra. Upplyfting í nöturlegum hversdagsleik desembermánaðar Desembermánuður er oft þungbær fyrir þá sem stunda háskólanám. Á sama tima og dagurinn styttist og kólnar f veðri standa stúdentar frammi fyrir prófatörn. Fyrir flesta stúdenta er desember einn þyngsti mánuður skólaársins vegna vinnuálags og komandi jólatarnar. Vegna þessa er gott að Stúdentadagurinn skuli vera haldinn 1. desember þegar mikilvægt er að blása aðeins lífi í háskólasamfélagið. Stúdentar hafa þá möguleika á að líta aðeins upp úr skólabókunum, hvfla hugann frá próflestri og halda þennan dag hátíðlegan með samnemendum sínum sem flestir eru í sömu sporum. Mikilvægt er fyrir stúdenta að minna sig á það að þó svo að próftímabilið sé strembið og kvíðvænlegt þá eru stúdentar hluti af heild og standa ekki einir. Mikill tónlistardagur í ár Hátíðin hófst klukkan tíu f hátíðarsal Aðalbyggingar Háskólans. Þar var Kristfn Ingólfsdóttir, rektor Háskóla (slands, gestur og Guðrún Sóley Gestsdóttir flutti ávarp. Eins og venja er eftir ávarp rektors á þessum degi gengu stúdentar að leiði Jóns Sigurðssonar og lögðu þar þlómakrans. Um hádegisbil var komið að ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands, á Háskólatorginu. Þá tók Háskólakórinn lagið undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar í anddyri Aðalbyggingarinnar og söngkonan Ragnheiður Gröndal hélt tónleika á Háskólatorgi mörgum áheyrendum til mikillar ánægju. Má hæglega gefa sér það að tónlistarunnendur hafi glaðst mikið á þessum degi stúdenta. Dagskráin var líkt og fyrri ár með mjög hátíðlegu yfirbragði og stóð sannarlega undir væntingum. Ragheiður Gröndal flytur lag. Naomi Lea Grosman 6 STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.