Stúdentablaðið - 01.12.2009, Qupperneq 20
Transgender-dagar
í Háskóla íslands
Á dögunum voru haldnir svokallaðir Transgender-dagar í Háskóla íslands. Um var að ræða samstarfsverkefni Q - félags hinsegin
stúdenta og Trans íslands. Af því tilefni voru m.a. haldnar þrjár málstofur um málefni transgender-fólks á íslandi. Blaðamaður tyllti
sér niður með Sesselju Maríu Mortensen, formanni Q, og ræddi við hana um félagið og málefni trans-fólks á fslandi.
Félag hinsegin stúdenta hefur starfað frá árinu 1998
og á því tiltölulega stutta sögu innan Háskólans. Á
heimaslðu samtakanna, queer.is, kemur fram að
allir séu velkomnir I samtökin, hvort sem þeir eru
samkynhneigðir, tvíkynhneigðir, trans eða óöruggir
með kynhneigð sína. Félagið er fyrir alla þá sem
láta sig málefni þessara hópa varða. Fólk sem er að
stíga sín fyrstu skref, er komið út úr skápnum eða
langar að vita meira ætti að hafa samband þar sem
félaginu er ætlað að vera óþvingaður vettvangur til
að hitta og kynnast fólki á sama reki.
Mikilvæg starfsemi
„Það hefur alltaf verið þéttur hópur viðloðandi
félagið síðan það hóf starfsemi en sá hópur
stækkar vissulega og minnkar samhliða því hve
mikil starfsemi er í gangi innan samtakanna hverju
sinni. Við í stjórninni stefnum að því að hafa ýmsar
uppákomur í vetur auk þess sem við höfum regluleg
Q-kvöld einu sinni I viku þar sem fólk getur hist og
spjallað og gert eitthvað skemmtilegt saman," segir
Sesselja sem er full bjartsýni fyrir næstu önn.
Það er mjög mikilvægt að félag sem þetta sé
starfsrækt innan háskólasamfélagsins. Félagið sér
um fræðslu um málefni hinsegin stúdenta og þetta
er nauðsynlegur vettvangur fyrir þessa hópa þar
sem fólk á svipuðu reki með svipuð áhugamál getur
hist og skemmt sér saman," segir Sesselja og bætir
við: „Þó svo að staða samkynhneigðra sé tiltölulega
góð innan skólans er alltaf mikilvægt að halda uppi
umræðu um þessi málefni."
Hvað þýðir transgender?
Margir vita ekki hvað felst (orðinu „transgender"
og kom það þersýnilega í Ijós við vinnslu
greinarinnar. Sesselja segir að hugtakið nái í raun
yfir alla þá sem eru i óhefðbundinni stöðu með kyn
sitt. „Þetta geta verið einstaklingar sem vilja fara
í kynleiðréttingu eða lifa í öðru kynhlutverki með
því að klæða sig upp, en hugtakið tekur líka til
svokallaðra intersex-einstaklinga sem hugsanlega
hafa fæðst bæði með kynfæri karls og konu eða
hafa óljós kynfæri," segir Sesselja.
Aðspurð um stöðu transgender-fólks innan
Háskólans segir Sesselja að þar sem þetta sé ekki
stór hópur vilji flestir einfaldlega falla inn í fjöldann
og komi því ekki sérstaklega fram til að berjast fyrir
sínum rétti. Hún treystir sér ekki til þess að tjá sig
fyrir þeirra hönd um það hvort að þeir upplifi mikla
fordóma innan veggja skólans.
Sem fyrr segir voru haldnar á dögunum þrjár
málstofur um málefni transgender-fólks. „Markiðið
með málstofunum var að varpa Ijósi á stöðu trans-
fólks í íslensku samfélagi og vekja athygli á trans-
málefnum í tilefni af Alþjóðlegum minningardegi
transgender-fólks (Transgender day of
remeþrance)," segir Sesselja. Dagurinn hefur verið
haldinn hátfðlegur I ýmsum löndum síðastliðin ár til
minningar um þá sem látið hafa lífið vegna fordóma
í garð trans-fólks. Samkvæmt heimasíðu sem unnin
var í tilefni dagsins hafa (ár verið skráð 95 dauðsföll
sem rekja má til þessara fordóma. Gera má ráð fyrir
að fjölmörg slík tilfelli hafi ekki verið skráð.
„Það er mjög mikilvægt að félag
sem þetta sé starfsrækt innan
háskólasamfélagsins. Félagið sér
um fræðslu um málefni hinsegin
stúdenta og þetta er nauðsynlegur
vettvangur fyrir þessa hópa þar
sem fólk á svipuðu reki með svipuð
áhugamál getur hist og skemmt sér
saman."
„Málstofur sem þessar eru mjög mikilvægar, bæði
til þess opna umræðuna um málefni trans-fólks og
einnig til þess að gefa fólki kost á að ræða þessi
mál og spyrja spurninga," segir Sesselja og bætir
við að Transgender-dagarnir hafi gengið vonum
framar. Segist hún vera sérstaklega ánægð með
síðustu málstofuna sem var tileinkuð orðanotkun
og því hvernig við tölum um transgender á íslensku.
„(slenskunemar og ýmsir fræðimenn mættu á
fundinn, sem var vel sóttur, og fólk vildi greinilega
vita hvernig bæri að nota þessi hugtök og augljóst
að fólk hefur áhuga á þvi hvernig eigi að ræða þessi
málefni af virðingu,"segir Sesselja enn fremur.
Að lokum bætir Sesselja því við að mikill áhugi sé
innan félagsins á því að fylgja þessu verkefni eftir
og félagsmenn langi jafnvel að halda sams konar
atburð að ári.
Til aö afla sér frekari upplýsinga um starf
Q - félags hinsegin stúdenta má fara á
heimasíðu þess, www.queer.is , senda félaginu
tölvupóst á netfangið gay@hi.is eða gerast
vinur á Fésbókinni.
Ásdís Auðunsdóttir
STÚDENTABLAÐIÐ