Stúdentablaðið - 01.12.2009, Page 8
Hótæknifyrirtækið CLARA
CLARA er fyrirtæki sem spratt upp úr hugmynd
Gunnars Hólmsteins og félaga hans árið 2007.
Fyrirtækið sérhæfir sig í því að veita fyrirtækjum
hjálp í að skilja viðskiptavini sína betur með því
að fylgjast með umfjöllun um fyrirtækin á Netinu.
Þetta gefur eigendum fyrirtækja möguleika á
að fylgjast með allri umfjöllun um þau í öllum
miðlum og þannig skilja viðskiptavini sína betur.
Þannig hafa fyrirtækin möguleika á að bæta sig
samkvæmt því. „Það sem CLARA gerir er að hjálpa
fyrirtækjum að skilja viðskiptavinina sína betur.
Internetið er eini miðillinn sem er enn að stækka
og mörg fyrirtæki vita enn ekki hvernig á að tækla
Netið sem upplýsingarmiðil. CLARA sér um það
að skoða umfjöllun fyrirtækja á Netinu, nánast á
rauntíma," segir Gunnar. Spurður um það hvernig
fyrirtækið varð til segir Gunnar: „Fyrir um það bil
tveimur árum vorum við nokkrir með hugmynd
sem okkur þótti svo mögnuð að við þorðum ekki
að segja neinum frá því, við vorum svo hræddir um
að einhver myndi stela hugmyndinni af okkur. Á
endanum ákváðum við að tala um þessa hugmynd
okkar, að greina almenningsálitið á Netinu."
Þeir komust fljótt að því að það að tala um
Innovit stendur árlega fyrir Gullegginu,
frumkvöðlakeppni íslenskra háskólanema
og nýútskrifaðra. Keppnin er haldin að
fyrirmynd MIT-háskólans í Bandaríkjunum
og VentureCup á Norðurlöndunum.
Meginmarkmið keppninnar er að skapa
vettvang fyrir ungt athafnafólk til að
öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra
viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja.
Þannig er keppnin orðin gæðastimpill á
viðskiptahugmyndir og fyrir frumkvöðla
sem munu á næstu árum laða að enn
fleiri fjárfesta, skapa ný störf og verðmæti
fyrir íslenskt þjóðfélag.
Gunnar Hólmsteinn, einn af stofnendum
CLARA
□
a
Keppnin er frábært tækifæri fyrir frumkvöðla til
að koma hugmyndum sínum á framfæri og gera
úr þeim raunverulegar og markvissar áætlanir sem
miða að stofnun fyrirtækja. Samhliða keppninni er
þátttakendum I samstarfsháskólum Innovit boðið
upp á námskeið, ráðgjöf og aðstoð sérfræðinga, frá
mótun hugmyndar til áætlanagerðar og þjálfunar í
samskiptum við fjárfesta.
Þátttaka í frumkvöðlakeppni Innovit er skemmtileg
og krefjandi áskorun sem nýtist þátttakendum til
framtíðar. Sú reynsla og þekking sem þátttakendur
öðlast nýtist afar vel þegar út í atvinnulífið er
komið, hvort heldur sem er hjá nýstofnuðum
sprotafyrirtækjum eða stærstu fyrirtækjum landsins.
Frumkvöðlakeppni Innovit er þrískipt og byggist
fyrst á mótun viðskiptahugmynda, næst á gerð
viðskiptaáætlana og síðast á kynningu fyrir hópi
sérfræðinga og fjárfesta.
Keppnin í hnotskurn
Fyrir 20. janúar þurfa áhugasamir að vera búnir
að skila inn sinni hugmynd. Hugmyndin þarf ekki
að vera komin lengra en bara sem hugmynd á
servíettu. Útfærsla á hugmyndinni má í mesta lagi
vera á tveimur blaðsíðum þar sem hún er útskýrð I
stuttu máli.
Næstu sjö vikurnar, eða fram til 8. mars, fá
keppendur aðstoð við að breyta hugmyndum í
fullmótaðar viðskiptaáætlanir. Haldin verða sérstök
námskeið og vinnusmiðjur þar sem sérfræðingar úr
íslensku atvinnulífi aðstoða og halda fyrirlestra.
Þegar búið er að skila inn fullmótaðri
viðskiptaáætlun lesa um 50 sérfræðingar (
rýnihóp yfir áætlanirnar. Þetta eru fjárfestar,
framkvæmdastjórar og annað sérvalið fólk úr
íslensku atvinnulffí. Markmið þess er að veita öllum
hugmyndina gæti borið árangur. „Það var langt
frá því að vera slæmt að segja frá hugmyndinni
okkar, frekar var það hjálplegt að fá uppbyggilega
gagnrýni og athugasemdir um hver næstu skref
okkar ættu að vera," segir Gunnar. Tveimur árum
síðar er þessi hugmynd fimm ungra stráka við
Háskóla íslands orðin að fyrirtækinu CLARA.
En hvað segir Gunnar við fólk sem hefur hug á því
að reyna að láta hugmynd sínar verða að veruleika?
„Þetta er það erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann
gert. Ekki vaða út I hlutina og fara út í framkvæmdir
með hálfkláraða hugmynd. Síðast en ekki síst,
ekki vera hrædd við að segja öllum þeim frá
hugmyndinni sem nenna að hlusta."
Naomi Lea Grosman
viðskiptaáætlunum gagnrýni, einkunn og hvatningu
um næstu skref.
10 bestu áætlanirnar eru síðan paraðar saman með
öflugum ráðgjöfum þar sem þær eru endurbættar
eftir gagnrýni frá rýnihópnum. Þann 10. apríl eru
skýrslur um verkefnin síðan kynntar fyrir sérnefnd
dómara sem gefur þeim einkunn. Besta hugmyndin
fær 1,5 milljónir króna í peningum, annað sætið
500 þúsund krónur og þriðja sætið einnig. Einnig
eru ýmis þjónustu- og aukaverðlaun sem eru metin
á rúmlega tvær milljónir króna.
Samstarfsháskólar í keppninni eru HÍ, HR,
Háskólinn á Bifröst og Keilir. Nemendur sem eru
skráðir í þessa háskóla geta tekið þátt í keppninni,
öllum vinnusmiðjum og námskeiðum sér að
kostnaðarlausu. Aðrir geta sent inn hugmynd í
keppnina sér að kostnaðarlausu en þurfa að greiða
sérstaklega fyrir öll námskeið sem eru haldin, eða
um 48.000 krónur.
Allar frekari upplýsingar eru á www.gulleggið.is
Arangur hingað til
Gulleggið hefur verið haldið árlega frá árinu 2007.
Yfir 100 hugmyndir bárust í keppnina 2008 og
um 120 hugmyndir i ár. Um 50 fullmótuðum
viðskiptaáætlunum var skilað í ár. Velta fyrirtækja I
Innovit-hagkerfinu er samanlögð yfir 300 milljónir
íslenskra króna. Um 20 ný fyrirtæki hafa verið
stofnuð eftir þátttöku fólks í keppninni og yfir 100
störf hafa skapast hjá þeim fyrirtækjum.
Áslaug Baldursdóttir
8
STÚDENTABLAÐIÐ