Stúdentablaðið - 01.12.2009, Page 10
Bræður og
b-hliðar
Á stjörnubjörtu vetrarkvöldi brá blaðamaður sér á fund við bræðurna
Sigurð og Guðmund Óskar Guðmundssyni. Báðir eru þeir músíkantar, spila
með tveimur vinsælustu hljómsveitum landsins, Hjálmum og Hjaltalín.
Nýverið komu út skífur með báðum sveitunum, IV nefnist fjórða plata
Hjálma en önnur plata Hjaltalíns, Terminal. Sigurður bardúsar í eldhúsinu,
hellir upp á kaffi og te og ber fram pönnukökur með sykri. Á meðan spjalla
ég við Guðmund sem er nýkominn úr hljómsveitartúr
þar sem landsbyggðin var sótt heim.
Hvernig lítur desembermánuður út hjá ykkur
tónlistarmönnunum, er brjálað að gera?
G: Já, það lítur nú út fyrir það, það er ekki alveg
búið að negla allt niður en það verður einhver
útgáfugleði hjá Borginni um miðjan desember,
svo erum við með tónleika, Sigríður Thorlacius og
heiðurspiltar, á Rósenberg 19. des. Hjaltalín og
Hjálmar verða svo sennilega sama kvöld á NASA.
Þar að auki verður eitthvað um önnur gigg sem
tengjast nýútkominni plötu okkar.
S: Ég verð að spila með Baggalút og Siggu. Svo
verð ég að spila með Agli Sæbjörnssyni á Listasafni
Reykjavíkur þann 17. des.
Hjálmar koma svo fram á nýársgleði á Glóðinni
í Keflavík þann 1. janúar.
Hlustið þið á tónlist hvor annars?
G: Við komumst ekki hjá þvl. Við erum alltaf að
prófa nýju lögin I græjunum heima. Ég hef til
dæmis þurft að hlusta á lögin hans Sigga síðustu ár,
alveg frá því að þau eru bara bassatrommur þangað
til að þau eru fullunnin. Það er fínt.
S: Það er stundum leiðinlegt.
Fáið þið stundum leið á lögunum ykkar sem
þið þurfið samt að taka á tónleikum?
G: Já...
S: Það kemur alltaf annað slagið fyrir. En ef lagið
er nógu gott og nógu skemmtilegt þá er þetta
bærilegt. Sum lög eins og til dæmis Bréfið og
Borgin geta alveg farið með mann.
G: Við erum alveg komin með upp I kok af Þú
komst við hjartað i mér. Við eiginlega getum ekki
spilað það lengur.
S: Já, nú eru Færeyingarnir komnir með það.
G: Þetta er náttúrulega öðruvísi týpa af lagi heldur
en við hefðum samið sjálf og svo er þetta ekki okkar
eign heldur lag sem við tókum.
Talið berst að nýrri plötu Friðriks Ómars og Jógvans
en hafa þeir félagar tekið hið alræmda lag upp á
arma sína og er lagið nú með færeyskum texta og
og eitt það vinsælasta hjá frændum vorum.
En hvernig gekk að túra um Island?
G: Það kom alveg fyrir að það voru ekki nema um
þrjátíu manns á tónleikum.
S: Það þjálfar mann rosalega mikið að spila á minni
stöðum fyrir fátt fólk vegna þess að þú verður að
standa og falla með því sem þú ert að gera. Þetta er
eins og að fara í sund, maður þarf að venja sig við
það að vera f vatni.
G: Við fengum líka rosalega gott „krád" þó að
það hafi ekkert verið margir alls staðar. Á Akureyri
fengum við gífurlega góðar viðtökur, eiginlega
bestu viðtökur sem við höfum nokkurn tíma fengið.
En svona heilt yfir séð þá voru þeir sem komu
virkilega að hlusta og þannig er okkar tónlist líka.
Við fúnkerum betur í þannig umhverfi heldur en á
NASA klukkan tvö á laugardagskvöldi.
Þjáist þið stundum af sviðskrekk?
S: Já.
G: Ég er reyndar bara bassaleikari, ég stend svona
aftarlega. En það hefur komið fyrir á síðustu
mánuðum þegar ég hef verið að spila með Siggu
Toll að Siggi hefur forfallast og þá hef ég þurft að
syngja dúettana með henni og þegar það gerist
verð ég massívt stressaður því að ég syng aldrei. Ég
söng mikið áður fyrr, til dæmis með Hjaltalín, en
síðustu árin hef ég alveg látið það eiga sig og læt
þá sem gera það vel bara sjá um það.
S: Þess má einnig geta að það er mjög erfitt að
syngja og spila á bassa, mun erfiðara en að syngja
og spila á gítar.
Talið berst að föður strákanna, Guðmundi
Sigurðssyni söngvara. Hann hefur oft komið og
tekið aukalag með sonum sínum á tónleikum.
Móðir bræðranna, Gróa Hreinsdóttir, er hins
vegar píanókennari. Strákarnir segjast hafa notið
tónlistarlegs uppeldis sem þó var ekki strangt
heldur einungis til þess að glæða áhuga þeirra á
tónlist. Það kom að því að Guðmundur þurfti að
velja á milli tónlistar og handbolta þegar róðurinn
var tekinn að þyngjast á báðum vígstöðvum. Móðir
hans hvatti hann þá til þess að velja tónlistina því að
hana grunaði að sonurinn myndi hafa meira yndi af
þvi að spila tónlist fyrir fólk frekar en að kasta bolta
til lengri tíma litið.
Gætuð þið einhvern tíma hugsað ykkur að
söðla um og semja sinfóníu eða söngleik?
S: Það er ekkert rosalega óllkt þvi sem við erum að
gera í dag, það eru bara aðrar verkaðferðir sem eiga
við. Lengdin er þá aðalmunurinn.
G: Efnið á nýju Hjaltalinplötunni er margt mjög
söngleikjalegt. Eftir að hafa samið þessa plötu
höfum við fundið fyrir einhvers konar löngun í
það að semja söngleik á endanum. Einhvers konar
grínsöngleik.
S: Söngleikjaformattið er einhvern veginn svolitið
glatað í eðli sinu. Það er einhvern veginn ekki hægt
að komast upp með að gera söngleik án þess að
hann verði svolítið hallærislegur.
G: Það er til mikið af frábærri söngleikjatónlist en
söngleikurinn sem slíkur er kannski ekki eitthvað
sem heillar. Ég get ekki sagt að ég horfi mikið á
söngleiki. Ég fór reyndar á Leg.
S: Reyndar horfðum við alveg yfirgengilega mikið á
Oliver Twist þegar við vorum yngri.
G: Já, við „óverdósuðum" bara í gamla daga.
Hjálmartóku upp nýju plötuna slna á Jamaíku.
Þeir höfðu þegar tekið upp nokkurn fjölda laga en
ákváðu að freista gæfunnar og eyddu tíu dögum á
hinni sólríku eyju þar sem þeir unnu I fimm daga og
eyddu restinni (afslöppun.
S: Okkur var ágætlega tekið, þeir sem unnu með
okkur í stúdíóinu höfðu gaman að okkur, flluðu
10 STÚDENTABLAÐIÐ