Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 7
Inni í myndinni
f ■ 1
!íIat2i
Hugmyndir sem verða
að veruleika
Hvernig verða góðar hugmyndir að veruleika? Blaðamaður ræddi við Sesselju G. Vilhjálmsdóttur, sem ásamt Valgerði Halldórsdóttur
er að gefa út nýja íslenska borðspilið Heilaspuna, og Gunnar Hólmstein, sem er framkvæmdastjóri og einn stofnenda fyrirtækisins
CLARA, um það hvernig þau létu hugmyndir sínar verða að veruleika.
Heilspuni - spil fyrir skapandi islendinga
„Við höfum verið saman (spilaklúbbi lengi og erum
miklar spilakonur. Hugmyndin hefur setið lengi (
okkur en aldrei gefist tími til að framkvæma. Eftir
að ég kom heim úr skiptinámi vantaði mig eitthvert
verkefni og við ákváðum þá að kýla á þetta,"
segir Sesselja aðspurð um það hvernig þær fengu
hugmyndina að þessu spili. „Áður en borðspilið
varð til þurftum við að selja hugmyndina sem við
höfðum í kollinum. Eina leiðin til að gera það var að
vera nógu ákveðin í að selja hana og það gerðum
við hjólandi milli fyrirtækja ( byrjun sumars."
Að sögn Sesselju var tekið vel I hugmyndina.
„Næsta skrefið var að leggjast undir feld og semja
2500 spurningar. Það var ekki auðvelt verk," segir
Sesselja: „en þó skemmtilegt," bætir hún fljótt við.
„Allt ferlið, frá því að selja hugmyndina þangað
til borðspilið var orðið að veruleika, tók alls tvo og
hálfan mánuð," segir hún enn fremur. Útkoman
varð glæsilegt spil, Heilaspuni, sem er byggt á
íslenskri tungu, þjóðlífi, menningu og sögu. Hægt
er að sjá nánari upplýsingar um það á heimasíðunni
heilaspuni.is og einnig á Facebook-síðu spilsins,
facebook.com/heilaspuni.
Alíslenskt borðspil fyrir alla aldurshópa
Að sögn Sesselju hefur gengið vel að kynna spilið
og fólk tekur því almennt mjög vel. Forsala er í
fullum gangi á heimasíðunni þeirra og hefur gengið
mjög vel. Aðspurð hvernig þær hafi farið að því
að markaðssetja spilið segir Sesselja: „Eftir að við
STÚDENTABLAÐIÐ
leyfðum nokkrum aðilum að prófa spilið
hafa nokkurs konar snjóboltaáhrif farið af
stað og æ fleira fólk veit af þessu spili."
Spilið var kynnt ( Háskóla Islands þann 26.
nóvember en þá bauðst nemendum að
prófa spilið á Háskólatorgi. Sesselja segir
áhugann fyrir spilinu vera að miklu leyti
tilkominn vegna þess að fólk kann að meta
að þetta er alíslenskt spil. „Flest spilin sem
koma út núna fyrir jól eru af erlendum
uppruna. Heilaspuni er hins vegar algjörlega
íslenskt út í gegn," segir hún enn fremur.
„Þetta er skemmtilegt spil sem snýst um að
vera með skemmtilegar pælingar um íslensk
orð og orðatiltæki, bókmenntir og íslenska
sögu frekar en að vera með allt rétt. Þess
vegna hentar spilið öllum aldurshópum."
Fyrsta sendingin kom í verslanir síðustu
vikuna í nóvember en stefnt er að því að
allar helstu verslanir verði komnar með
spilið um miðjan desember. „Þetta spil
hefur alla burði til að verða sígilt vegna þess
hversu vandaður frágangurinn er og eðli
spurninganna er þannig að þær verða aldrei
úreltar," segir Sesselja. En hvaða ráð hefur
Sesselja fyrir þá sem eru með hugmynd
sem þá langar að koma í verk? „Það er
ómetanlegt að sjá hugmynd sína verða að
veruleika. Hættið að fresta hlutunum og
ráðist á hlutina með fullum krafti í dag en
ekki á morgun," segir hún.
Sesselja G. Vilhjálmsdóttir