Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 28

Stúdentablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 28
Fjórar góðar kreppuuppskriftir Þar sem nemendur við Háskóla íslands hafa almennt ekki mikið á milli handanna nú um stundir voru nokkrir háskólanemar fengnir til að deila með okkur góðum en ódýrum mataruppskriftum með þeirri von að þær komi að góðum notum. Beikonbuff með ofnristuðu rótargrænmeti (fyrir 1-2) Beikonbuff 250 g hakk (gott að kaupa meira magn á tilboði og frysta) '/2 beikon bréf 1-2 msk rasp eða brauðteningar 1 -2 msk vatn /2 llítill laukur (geymið hinn helminginn í poka í ísskáp fyrir annan rétt) 1 egg 1-2 tsk sinnep (mér finnst dijon-sinnep best) Ferskar eða þurrkaðar kryddjurtir (er með steinselju í jurtagarðinum mínum) Salt og svartur pipar Svo má alveg bæta við hverju sem manni dettur í hug eða er til í ísskápnum. Ég hef prófað parmesanost, capers, furuhnetur, sólþurrkaða tómata, ólífur og fleira. Meðlæti Kartöflur (magnið fer eftir stærð kartaflanna og því hversu mikið maður ætlar að borða) Rótargrænmeti (ef maður vill, ég hef notað sellerírót, annars líka gulrætur, rófur eða steinseljurót) 6 hvítlauksgeirar olla timjan (eða þurrkaðar kryddjurtir sem eru til á heimilinu, t.d. rósmarín, oregano, basilíka) salt Sósa (ef maður vill) /2 dós sýrður rjómi (má nota AB-mjólk eða hreina jógurt ef það er til á heimilinu, ég bæti líka 1 msk af majónesi út í) Kryddjurtir eftir smekk (ég átti ferska salvíu ( ísskápnum en þurr virkar líka) Aðferð 1. Hitið ofninn í 200°C. 2. Skrælið kartöflur og rótargrænmeti og skerið í báta/bita. Dreifið á bökunarpappír á ofnplötu. Dreifið heilum afhýddum hvítlauksgeirum einnig yfir plötuna. 3. Hellið olíu jafnt yfir og kryddið með timjani og salti. Setjið svo inn í ofn í 45-60 mínútur eða þangað til kartöflurnar hafa fengið fallegan lit (gott er að hræra í þeim eftir u.þ.b. 30 mínútur). 4. Setjið vatnið og raspið (skál. Saltið og piprið vel. Raspið dregur í sig vökvann. 5. Á meðan beðið er afhýðið og fínsaxið laukinn. Bætið út (skálina og blandið. 6. Klippið eða skerið beikonið smátt. Flnsaxið steinselju ef hún er notuð. 7. Bætið hakki, beikoni, sinnepi, eggi og steinselju (og fleiru sem maður vill) út í skálina. 8. Blandið vel. Skiptið í fjóra jafn stóra hluta og búið til buff. 9. Steikjið í olíu á pönnu á meðalhita í 5-10 mínútur á hvorri hlið eða þar til kominn er litur á buffin og kjötsafinn sem lekur út er orðinn tær. 10. Á meðan buffin steikjast er gott að búa til sósu og salat ef maður vill hafa svoleiðis með. 11. Kryddjurtir geta oft verið dýrar úti í búð en hægt er að kaupa mikið magn ódýrt I Tiger fyrir þá sem nota mikið eins og ég. Afganginn er gott að hita sem hádegismat daginn eftir. Kokkur: Sophie Jensen, annars árs doktorsnemi ( lyfjafræði STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.