Stúdentablaðið - 01.12.2009, Side 22
Sólveig Ólafsdóttir og Gunnhildur Sveinsdóttir.
Annir hjá Rauða krossi
Islands fyrir hátíðarnar
íslandsdeild Rauða krossins er rekin af miklum krafti og hefur verið mörg síðastliðin ár. Starfinu er skipulega skipt niður í ólík svið
svo styrkur starfsfólks nýtist sem allra best. Stuðningur er í boði á hinum ýmsu sviðum en ekki er víst að landsmenn séu upplýstir um
þau úrræði sem þar eru í boði. Þegar styttist í jólin og fjöldi heimila finnur að sér þrengt vegna efnahagsástandsins er vert að fara yfir
starfsemi Rauða kross íslands.
Þann 5. mars síðastliðinn var Rauðakrosshúsið,
þjónustumiðstöð fyrir alla landsmenn, opnað að
Borgartúni 25 ( Reykjavík. Þar geta einstaklingar
og fjölskyldur leitað stuðnings við að takast á
við erfiðar aðstæður í þjófélaginu. Gunnhildur
Sveinsdóttir, verkefnastjóri Rauðakrosshússins, segir
einkunnarorð hússins vera samvinnu, stuðning
og sjálfboðna vinnu. í húsinu starfa sjálfboðaliðar
og starfsmenn Rauða krossins. Djáknar og prestar
þjóðkirkjunnar eru á staðnum ásamt fulltrúum frá
Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna.
Boðið er upp á námskeið af ýmsum toga og
einstaklingar og fjölskyldur geta sótt sér sálrænan
stuðning, ráðgjöf og leitað til sérfræðinga í
áfallahjálparteymi Rauða krossins um margvísleg
úrræði sem bjóðast í samfélaginu. Aðgangur
að tölvuveri, kaffistofu, aðstöðu fyrir börn,
námskeiðum og fyrirlestrum býðst fólki að
kostnaðarlausu. Fólki sem hefur misst atvinnuna
gefst tækifæri í Rauðakrosshúsinu til að halda
sér virku í samfélaginu og nýta krafta slna með
sjálfboðavinnu.
22 STÚDENTABLAÐIÐ
Dagleg starfsemi hússins er I höndum sjálfboðaliða
og sjá þeir um kaffihornið, krakkahornið, tölvuver
og skráningar (ráðgjöf hjá sérfræðingum. Sumir
halda fyrirlestra eða námskeið um áhugamál sín
eða fagsvið, aðrir sinna móttöku og ráðgjöf, enn
aðrir undirbúningi námskeiða og öðrum tilfallandi
verkefnum. Hátt í 100 sjálfboðaliðar hafa komið að
starfi hússins. Gunnhildur segir starfsemina miða
að því að gestir finni þar stuðning og samkennd.
„Stefnt er að því að hver sá sem I húsið kemur geti
hlúð að sjálfum sér," bætir hún við.
Frá því að Rauðakrosshúsið var opnað hafa
heimsóknirnar verið um 6000 talsins og þar
hafa konur verið I 60% tilvika. Aðsóknin fer
vaxandi og eru gestir um 250-300 ( hverri viku.
Rauðakrosshúsið er opið alla virka daga frá 12:00 til
17:00. Áhugasamir sjálfboðaliðar eru hvattirtil að
senda tölvupóst á
silja@redcross.is með upplýsingum um nafn,
netfang, símanúmer og reynslu eða hringja I Silju
Ingólfsdóttur I síma 898-1506.
Matvælaaðstoð stórefld í kringum hótíðarnar
Skiptifatamarkaður hóf göngu slna I byrjun
nóvember og er haldinn laugardaga og þriðjudaga
I Rauðakrosshúsinu. Til stendur að hann verði
starfræktur til jóla. „Settir eru upp básar þar sem
fólk getur lagt til heilleg föt sem börn þeirra eru
vaxin upp úr eða nota ekki af öðrum ástæðum
og tekið önnur sambærileg föt I staðinn," lýsir
Gunnhildur. Hún segir jafnframt að fyrir jólin verði
ýmislegt á dagskrá hússins. Jólakortaföndur, bridds,
gerð aðventukransa, jólalsgerð, brjóstsykurgerð,
kínverskur matur og margt fleira. Dagskráin er
aðgengileg á raudakrosshusid.is.
Matvælaaðstoð Rauða krossins veitir árlega
einstaklingum og fjölskyldum um allt land aðstoð
fyrir jólin. Að þessu sinni hefur matvælaaðstoðin
verið stórefld I samvinnu við samstarfsaðila vegna
aðstæðna I þjóðfélaginu. „Allar 50 deildir Rauða
krossins um allt land veita sérstaka jólaaðstoð
til þeirra sem á þurfa að halda," segir Sólveig
Ólafsdóttir, sviðsstjóri útbreiðslusviðs. Eins úthlutar
Rauði krossinn fötum til þeirra sem þurfa og um