Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 5

Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 5
19. maí 1935 D V Ö L 5 Tignarsvipur hans rann fagur- lega saman við hempusvört fötin, úrkeðjuna, og kúluna framan á maganum. Framkoman var mót- uð annarlegum fjálgleik. Þeir heilsuðust. Bjössi gamli steinþagði á eftir kveðjunni, og tvísteig sem áður. Það kom fát á hann, þegar prest- ur spurði um erindið. Hann stamaði, snýtti sér og loks byrjaði hann: „Ja, ég kom svona til yðar í i'áðaleysi, prestur minn. Ranka mín er lasin, ég ætlaði að vita hvort ekki væri hægt að fá lækn- ishjálp á morgun?" ,,Er það nokkuð alvarlegt?" spurði prestur hæglátlega. Mál- íómur hans var mjúkur og við- feldinn, en þar leyndi sér ekki tónn valdsins. „Eigurn við ekki að láta það bíða, og vita hvort henni batnar ekki?“ „Ja, það veit ég ekki. Hún kastar upp því litla, sem fer inn fyrir varir hennar. Öðru hvoru fær hún óþolandi kvalaköst, og stundum gengur blóð upp úr henni“, sagði Bjössi vandræða- lega, og fitlaði við húfuna eins og feiminn drengur. Það er mikið slæmt, mikið slæmt“, tvítók prestur og fór að ganga um gólf. „Einu isinui þekkti ég konu, sem hafði svip- aða veiki eftir lýsingu þinni að dæma; henni var ráðlagt að drekka mikið af soðnu vatni, og borða ofurlítinn smekk af sund- mögum og henni bráðbatnaði. — Ættum við ekki að reyna þetta Björn minn og sjá svo hverju fram vindur?“ „Getur verið. Ef til vill“, taut- aði Bjössi áhyggjufullur, og tví- steig enn hraðara en áður. Ber- sýnilega kom hann sér ekki að því, að halda talinu áfram. En prestur leysti hann úr vandan- u!m: „Var það nokkuð annað, Björn minn góður?“ sama vinsemdin, dýpri hlýja. Tómthúss-Bjössi gjörðist djarfari og var hressi- legri í tali. „Ja, þar sem þér eruð nú aðal- maðúrinn í hreppsnefndinni, langaði mig til að spyrja yður, hvort við gætum ekki fengið eitt- hvað matarkyns fyrir hátíðina; það sem við fengum um' nýárið er gjörsamlega búið, það var heldur ekki svo mikið. Við höfum ekkert núna, prestur minn, ekk- ert“. „Það var ekki svo mikið, sagð- ir þú“, endurtók prestur ofurlítið kuldalega. „Allra sízt hefði ég búizt við svona vanþakklæti frá þér. — Það var all® ekki svo lít- ið, sem þið fenguð, og kalla vel gert að vera búin með það allt. Svei mér vel gert. — Ég hefi ekkert vald til að láta ykkur hafa mat nú, nema þá með leyfi hinna hreppsnefndarmannanna“. Ilann þagnaði, en gekk um gólfið eins og hann væri í mikl- um vanda staddur.

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.