Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 13

Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 13
19. maí 1935 D V Ö L 13 leiðbeiningum, sem um það eru gefnar í handbókum, sem samdar hafa verið í því augnamiði. Þegar því takmarki er nokkurn- veginn náð, má taka til við hinar námsgreinarnar, sem eru að meira eða minna leyti sérstæðar. V eðurathuganir. V eðurathuganastjörnuspeki er að ýmsu leyti sérstæðasta náms- greinin og eru nocaðai við rann- sökn hennar séistæðar aðferðir, ólíkar þei'", sem tiotaðar eru í hinum námsgreinunum. Er þar t. d. enginn munur gerður á því, sem nefnt er góðar eða slæmar afstöður, heldur ein- göngu miðað við það, hve sterk- ar þær eru og er þeim skipt í flokka eftir því. Samstæður (konjunktionir), jafnstæður (de- klimationsparallellar), andstæður (oppositionir) eru sterkuStu af- stöðurnar. 120, 90 og 60 stiga horn eru næst þeim í styrkleika, 150, 135, 45 og 30 stiga horn eru ennþá veikari. En 144, 72 og 36 stiga horn eru áhrifaminnst. Af- stöður plánetanna til Sólar eru áhrifaríkastar, þá afstöður plá- netanna hverrar til annarar, en afstöðurnr til Tunglsins veikast- ar í áhrifum. Áhrif plánetanna á veðurfarið telja þeir, sem það hafa athugað, að sé eins og hér segir: M e r k ú r er vindplánetan og koma venjulega stormar á eftir sterkum afstöðum annara pláneta til hans. V e n u s er mildur og fram- leiðir regn, frá suddarigningu til stórrigninga, eftir því hve afstöð- ur til hans eru sterkar. M a r z framleiðir hita og verða þrumur og eldingar stund- um afleiðingar af áhrifum hans. J ú p í t e r framleiðir hita að nokkru leyti, en þó æfinlega liæg- viðri og góðviðri. Sumir halda því fram, að liann standi í sani- bandi við norðlæga átt, einkum á Bretlandseyj um. S a t ú r n stendur í nánu sam- bandi við alla kælingu í sólkerf- inu. Þegar Neptún kemst í sam- stæðu við hann, aukast kulda- áhrif hans. Voru þeir í samstæðu 1881—82 og aftur 1917—18 og komu kuldavetrar miklir í bæði skiptin. Eru þeir í samstæðu á hverju 36 ára fresti. Ú r a n framleiðir kulda eins og Satúrn og geta vindar komið í sambandi við Ihann, en venjuleg- ast eru það sterkir stormsveiph’ og hvirfilvindar, sem koma nálega fyrirvaralaust. N e p t ú n er frekar mildur í áhrifum og fylgir suddaregn venjulega áhrifum hans og þokur. Til þess að stunda veðurfars- athuganir í sambandi við stjömu- speki og með hliðsjón af henni, verða menn að gera nákvæmar daglegar athuganir og bera sam'an veðurlag og plánetuafstöðurnar á hverjum degi. Á þann hátt má

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.