Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 12

Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 12
12 D V Ö L 19. maí 1935 Einnig hefir verið bent á það, og um það deilt, hvort lávarða- deildin eða efrimálstofan teljist húsi þessu, sem andstæðu ellefta húss. Eldri stjörnuspekingar halda því einnig fram, að sendi- herrar teljist húsi þessú. Sjöttahús: — Heilbrigði almennings og sjúkleiki. Landher og sjóher. Þjónar allir og þjón- ustufólk, starfandi bæði hjá ein- staklingum og í opinberri þjón- ustu. Verkamenn og vinnuþiggj- endur yfir höfuð. S j ö u n d a h ú s: — Utanrík- ismál, samband við aðrar þjóðir, hvort það er gott eða óheillavæn- legt, stjórnmálalegs eðlis og við- skipta. Giftingar, hjónaskilnaðir, konur. Áttunda hús: — Dauðsföll og hverskonar menn muni deyja. Fjárhagssamband við aðrar þjóð- ir. Leyndarráðið. Níunda hús: — Siglingar, sjóferðir og löng ferðalög, eink- um í sambandi við ferðamenn og verzlun. Sæsímar og loftskeyti. Tníarbrögð, kirkjur og kenni- menn. Dómstólar og dómarar. Háskólar og prófessorar. Heim- speki og vísindastörf og bókaút- gáfur í sambandi við fræði- mennsku. T í u n d a h ú s: — Konungur- inn eða forseti, stjórnin og valdsmenn yfir höfuð. — Kon- ungsættin, hátt settir menn og frægir. Verzlun þjóðarinnar. Álit þjóðarinnar, lánstraust og áhrif. Ellefta hús: — Löggjafar- þingið, einkum neðri málstofan. Bæja, og sveitastjórnir. — Vinir þjóðarinnar. Löggjöfin. Tólfta hús: — Betrunar- hús, hegningarhús, sakamál, njósnir, leyndir óvinir þjóðarinn- ar heima og heiman. Spítalar, hæli, letigarðar, vinnuhæli og góðgerðastarfsemi. Leynifélög og dultrúarfélög. — i Námsgreinarnar. Stjörnuspekin skiftist í eftir- taldar námsgreinir eða viðfangs- efni. Leggja sumir stund á þær allar, en aðrir ef til vill aðeins á eina þeirra. 1. Stjörnuspár, er varða ein- staklinga og lýsing á þeim. 2. Fyrirspurnir um ýms atriði og atvik. 3. Þjóðstjórnarspeki. 4. Lækningastjörnuspeki. 5. Veðurathuganastjörnuspeki. 6. Stjörnuspekí, er fjallar um hið mnra og sálræna líf manna (Esoterisk Astrologi). 7. Dulræn stjörnuspeki (Okkult Astrologi). Frumnámið, að læra að leggja eða gera stundsjá, er nauðsyn- legur undanfari þess að skilyrði fyrir því að geta fengizt við hin verkefnin og er undirstöðuatriði þeirra allra. Einnig er nauðsyn- lega að hafa kynnst allrækilega fyrstu námsgreininni að kunna aðferðina að því að lesa almenna stundsjá og lýsa henni eftir þeim

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.