Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 6

Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 6
6 D V Ö L 19. maí 1935 Tómthúss-Bjössi var ekki ai- veg á því að gefast upp við svo búið. ,Við höfum sparað, eins mikið og okkur var mögulegt", sagði hann og það var ekki nándar- nærri eins mikil auðmýkt í rómh- um og áður. „Það var ekki mikið, sem við fengum, prestur sæll, það getið þér séð sjálfui', ef þú villt líta rétt á málið. Heldurðu kannske að tveir kindarskrokkar, hálfur mjölpoki, nokkrar saltgrásleppur, kartöfluóvera og kaffilús gangi aldrei til þúrðar? Og það máttu vita, að ekki væri ég kominn hingað til að knékrjúpa fyrir yð- ur, ef aðkallandi, brýn nauðsyn ræki mig ekki af stað, nauðugan viljugan. Og ekkert er hægara fyrir yð- ui' en að greiða fram úr þessurn vandræðum ?“ „Þú lítur einhliða á málið, Björn minn góður. Reyndu nú að setja þig í mín spor. — Sjáðu til. Iíreppurinn er fátækur og verður að spara af fremsta megni. Flest- ir, ef ekki allir gjaldendur hér, berjast í bökkum með að greiða útgjöld sín til álmennra þarfa. Þess vegna er það ofúr eðlilegr, að menn krefjist þess af mér, að ég sói ekki fé í óþarfa, það er að segja: ekki nema í það bráð- nauðsynlegasta. Mér er það alveg óskiljanlegt, að þið skuluð vera búin með allt, sem þið fenguð. — Það er ófyrirgefanlegt bruðl! Ég á ekki þá peninga, sem ég er settur yfir, og sjálfur hefi ég ekki nerna tæplega til hnífs og skeiðar ...“ Þegar hér var komið í lestrin- um rak Bjössi upp háan og stutt- an kuldahlátur. Hann var búinn að fá nóg af svo góðu. „Nei, þér hafið tæplega til hnífs og skeiðar“, sagði hann hæðnisfullur. „En hvað kemúr ]?að málinu við, að segja hrepp- inn fátækan? Það er ekki svo au.ðvelt að tyg'gja í mig blekking- ar. Spursmálið er aðeins hvort þið ætlið að sýna þá mannslund, að láta okkur fá eitthvað fyrir hátiðina ...“ „Varstu ekki að segja rétt áð- an, að konan kastaði öllu upp, sem færi inn fyrir varir hennar; svo ekki er það hún, sem þarfn- ast matar“, skaut prestur inn í og kýmdi ofurlítið út í annað munnvikið. — „Dragið þér dár að mér“, æpti Tómthúss-Bjössi æfareiður, þreif til húfunnar, sem hann var ný- búinn að leggja á stólinn í ein- hverju ráðaleysi, smellti henni á höfuðið og tróð henni niður fyrir eyru. „Ef þið drepið Ragnheiði með því að neita henni um lækn- ishjálp, og mig á eftir úr sulti, þá mun guðsdómur koma yfir ykkur fyr eða síðar. Og yfir þig líka, prestur minn!“ Að svo mæltu gekk hann út og skellti hurðinni á eftir sér. Séra Tómas rak höfuðið út í gættina

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.