Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 7

Dvöl - 19.05.1935, Blaðsíða 7
19. maí 1935 D V Ö L 7 á eftir honum, og kallaði: „Ef þú villt fá einhverja glefsu, þá komdu aftur á morgun. Maður ætti að hafa frið á helgidögum". Svo glotti hann í kampinn og gekk inn. — En Tómthúss-Bjössi skálmaði hratt heimleiðis og vingsaði hand- leggjum. Annað veifið leit hann til baka, eins og hann byggist við að einhver kæmi á eftir sér. í skapi hans var svellandi gremja, en smátt og smátt rann mesti vígamóðui'inn af honum, og andlitsdrættir hans urðu slappir og þreytulegir. „Hann bauð mér ekki einu sinni inn, ekki einu sinni inn!‘‘ tautaði hann klökkvafullur. Það. var farið að skyggja. Skotlæðingurinn &á sami og áð- ur, og brimhljóðið yfirgnæfandi. Ranka gamla í Sjávarkoti hrökk við í bólinu, þegar Björn niaður hennar gekk inn. Hún sá strax á svip hans, að hann hafði farið erindisleysu. Hann kveikti steinþegjandi á eldavélinni, hitaði kaffiskólp, og færði konu sinni fullan bolla af þessu'm saðsama drykk, ásamt rúgbrauðssneið. Hún reis stynj- andi upp í rúminu og tók á móti þessu full af þakklæti. — Bjössi gamli settist á stólskrifli fyrir framan rúmið, og fól andlitið í höndum. „Ætlar þú ekki að fá þér neitt?“ spurði konan lágmælt. „Ég“, sagði hann harðlega, „ég þarf ekki neitt. Líður þér nokk- uð betur en í morgun?“ „Ænei. Ég er hrædd um að héðan af verði hver dagurinn síðastur hjá mér“. Hann kipptist til, þegar hún sagði þetta. Eins og í leiðslu tók hann í báðar hendur hennar, og lu’ýsti þær fast. Fornar glæður geta blossað uþp þegar minnst varir. Þessar glæður þrengdu fram kristallstærum dropum, sem laumuðust niður hrukkóttai kinnarnar, einn af öðrum. „Vildi séra Tómas ekkert lið- sinna okkur?“ spui'ði Ranka gamla allt í einu. Hún var óstyrk í máli. „Prestsf jandinn!“ hreytti Tómthúss-Bjössi út úr sér, ill- hryssingslega. „Nei! Það var nú eitthvað annað! Hann var reynd- ar svo náðarfullur að lokum, að segja mér að koma á morgun, ef ég vildi fá eitthvað í kjaftinn". Hann þagnar skyndilega við lang- dregna stunu í konunni. Hún engdist sundur og' saman af kvölum. Fölgráa, magra andlitið afmyndaðist af þjáningu og varð eins og hrukkótt, gult bók- fell, sem er að sviðna á kulnandi glóðurn. Þegar kastið stóð sem hæst, laut hún fram yfir rúmstokkinn og kastaði upp kaffisullinu og rúgbrauðinu, svo kúgaðist hún og kúgaðist og' að loknm spjó hún dálitlu af grænleitu galli. Henni

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.