Dvöl - 09.06.1935, Blaðsíða 10

Dvöl - 09.06.1935, Blaðsíða 10
6 D V í næstu fjöjjur ár gaf hún honum alla þá peninga, sem hún gat dregið saman, og lét hann þá samvizkusamlega í vasa sinn, gegn svo og svo mörgum kossum til hennar í staðinn. Einu sinni voru hað þrjátíu skildingar, einu sinni tveir frankar, einu sinni tólf skildingar (þá grét hún af sorg, vanmegnun og niðurlægingu, því árið hafði verið óhagstætt) og 1 síðasta skiptið voru það fimm frankar, — stór kringlóttur pen- ingur, sem kom honum til að hrópa upp af fögnuði. Hann var orðinn hennar eina umhugsunarefni, og hann beið komu hennar með nokkurskonar óþolinmæði. Hann hljóp á móti henni, þegar hann sá hana, svo að hún fékk hjartslátt af gleði. Svo hvarf hann. Þeir höfðu sent hann í skóla, eftir því sem hún gróf upp eftir krókaleiðum. Þá reyndi hún með ýmsum ráð- um að fá foreldra sína til þess að breyta ferðum sínum, og fara þar um á helgum. Þetta tókst henni fyrst eftir að heilt ár var liðið. Tvö ár höfðu liðið þannig síðan hún sá hann og hann var svo breyttur, hár, fallegur og tignarlegur í skykkjunni sinni með gylltum hnöppum, svo hún gat varla þekkt hann. Hann lézt ekki þekkja hana og gekk snúð- ugt fram' hjá henni. í tvo daga grét hún, en eftir það tók hún að líða andlegar þjáningar hvíldar- laust. Á hverju ári kom hún á Ö L 9. júní 1935 þessar stöðvar og gekk fram hjá honum án þess að þora að heilsa honum, en hann lét ekki svo lítið að renna augum til hennar. Hún elskaði hann hóflaust. ,.Læknir“, sagði hún við mig. „Mér gazt ekki að neinum öðrum manni, og í raun og veru var enginn annar maður til í mínum augum“. Foreldrar hennar voru nú dánir, en hún hélt áfram starfi þeirra. Hún hafði tvo hunda í staðinn fyrir einn, tvo hræðilega hunda, sem enginn hefði þorað að egna upp. Dag nokkurn er hún var á leið til þorpsins, þar sem eftirlæti hennar var, þá sá hún ur.ga konu koma út úr búð Chonquels, var sú leidd af ástmegi hennar. Þetta var konan hans; þau voru gift. Það sama kvöld kastaði hún sér í tjörnina á ráðhússtorginu. Drykkjumaður einn, er varð ráf- að þar um, dró hana upp og bar hana til lyfjabúðarinnar. Sonur Chouquets kom ofan af loftinu í morgunkufli til að veita henni hjálp, og án þess að þekkja hana að því er virtist, losaði hann um íöt hennar, neri hana og sagði svo hranalega: „Þér eruð vitlaus- ar. Þér megið ekki haga yður svona eins og fífl“. Þetta nægði til að lækna hana. Hann hafði talað til hennar. Það gjörði hana ánægða í langan tíma. Hann vildi engin laun þiggja fyrir að

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.