Dvöl - 09.06.1935, Blaðsíða 20

Dvöl - 09.06.1935, Blaðsíða 20
It> D V O L. 9. júni 19155 gaf þeim annan vínbelg, en við slíkar birgðir drukku þeir svo, að þeir urðu ósjálfbjarga og svefn- höfgi kom yfir þá, svo þeir sofnuðu brátt. Eigandi vínsins beið nú þar til dimmt var orðið af nóttu, þá tók hann lík bróður síns, en áður en hann færi, þá skar hann allt skegg hægra meg- in af andlitum hermannanna, þeim til háðungar. Hann fór því næst heim með lík bróður síns. Þegar konungur heyrði, að lík- inu hefði verið stolið, varð hann ákaflega gramur. Hann ákvað að ná í mann þann, er hefði leikið sig svona grátt, hvað sem það kostaði, og greip því til þess ör- þrifaráðs (svo sagði presturinn) sem ég get varla trúað. Hann tilkynnti, að hann myndi gefa dóttur sína þeim manni, sem gæti sagt henni bezta sögu um það snjallasta og versta bragð, sem hann hefði gert sjálfur. Ef einhver svaraði þessu tilboði með því að segja henni söguna um hinn bíræfna þjóf, þá átti hún að grípa hann. Kóngsdóttir samþykkti þetta, en þjófurinn, sem skildi, hvað bak við lá af hálfu kóngs, fékk nú sterka löngun að verða honum meiri í slægð og kænsku. Þess vegna gjörði hann það, sem ihér fer á eftir: Hann fékk sér annan arminn af nýdánum míanni og bjó hann þannig út undir klæðum sér, að svo leit út fyrir að það væri hans eigin handleggur og hönd. Þvínæst gekk hann til kóngsdótt- ur. Þegar hún lagði fyrir hann eins og aðra hinar ákveðnu spurningar, þá svaraði hann, að ]>að ljótasta sem hann hefði nokkru sinni gjört væri það að hafa tekið höfuðið af bróður sín- um, þegar hann var fastur í gildru kóngsins í fjárhirzlunni, en það snjallasta hefði verið að fylla varðmennina og ná líkinu. Þegar hann sagði þetta greip kóngsdóttirin í hann, en þar eð hann hafði haldið fram hinni lausu hönd, greip hún í hana, en þjófurinn tók sprettinn út úr dyrum og var brátt horfinn út í kvöldmyrkrið. Þegar konungur heyrði þessar fréttir, um heppni þjófsins, varð hann forviða af skarpleik og dirfsku þessa manns, sendi sendi- boða til allra borga í ríki sínu, sem auglýstu náðun fyrir þjófinn og loforð um mikil verðlaun ef hann kæmi og gæfi sig fram. Þjófurinn greip tækifærið og gekk djarflega fyrir konung, en Rhampsinitus dáðist að honum1, og leit á hann sem mestan þegna sinna, og gaf ihonum dóttur sína cg mælti: „Egyptar eru ágætari öllum öðrum þjóðum að vizku og þessi maður er fremri öllum öðrum Egyptum". Prcntsm. Acta.

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.