Dvöl - 20.10.1935, Blaðsíða 2

Dvöl - 20.10.1935, Blaðsíða 2
2 D V 20. október 1935 Kýmnisögur. Vinnuveitandinn: Iíafið þér nokkur meðmæli? Umsækjandinn: Já, ég held nú það, hér eru meðmæli frá þeim, sem ég var síðast hjá. Þau hljóða þannig; Herra John Jones var hjá okkur við vinnu í eina vikú, og við erum alveg ánægðir með það. Árni kaupmaður hafði boðið inn til sín umboðsmanni heildverzlun- ar er hann skipti við. A meðan þeir bíða eftir góðgerðunum vill Árni leiða málið að bindismálum, — en hann var góðtemplari —og segir: — Á mitt borð kemur aldrei dropi af áfengi — Ég segi alveg sama fyrir mig, svarar umboðsmaðurinn. Ef mér býðst áfengi, þá gæti ég þess vandlega að láta ekki einn dropa fara til spillis af hinum ágæta drykk. Bíleigandinn: Ég þarf að kaupa fernar öflugar lamir, því ég þarf að 1 afa gaflana á bílskúrn- um mínum á hjörum. Járnvörukaupmaðurin n: Hvað á það að þýða? B í 1 e i g a n d i n n : Jú, konan mín getur ekki alltaf stöðvað bíl- inn þegar hún ekur inn í skúrinn. P r ú i n (er að ráða til sín vinnu- konu): Treystið þér yður til að búa til mat handa gestum? Vi n n u k.: Já, frú, á hvorn Ö L veginn sem er. Frúin: Hvað eigið þér við? Vinnuk.: Ég á við það, að haga matnum eftir því, hvoit þér viljið að gcstir ir komi aftur til yðar eða ekki. Faðirinn: Hvernig dirfist j»ér að biðja um hörd dóttur minnar á meðan þér hafið svona lág Lun? Biðilinn: Jú, ég skal segja yður, að ég vildi ekki sleppa nú- verandi starfi mínu, fyrr en ég væri viss um samþykki yðar. Kyndarinn: Hvernig stóð á því að þú skyldir vera að kyssa kærustuna mína í myrkrinu í gær- kvöldi? Ilásetinn: Já, ég skil nú eiginlega ekkert í því sjálfur, eft- ir að ég er búinn að sjá hana í björtu. Seljandinn: n,g er búinn að eiga þennan bíl í heilt ár, og er ekki enn farinn að borga einn ein- asta eyri fyrir viðgerðir á honum. Kaupandinn: Já, mér var sagt það á viðgerðarverkstæðinu. Hr. Smith: Hvað myndir þú segja, Jack litli, ef ég giftist henni mömmu þinni og yrði pabbi þinn. Jack: Nei, því skuluð þér vara yður á, herra Smith. Prófessorinn: Eg skal segja yður, að þér getið ekki sofið í kennslustund hjá mér. Stúdentinn: Ég gæti það, ef þér töluðuð svolítið lægra.

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.