Melkorka - 01.10.1950, Síða 5

Melkorka - 01.10.1950, Síða 5
MELKORKA TÍMARIT KVENNA Ritstjórn: Nanna Ólafsdóttir, Skcggjagötu 1, Reykjavik, simi 3156 • Svafa Þórleifsdóttir, Hjallaveg 14, Reykjavik, simi 6685 Þóra Vigfúsdóttir, Þingholtsstreeti 27, Rcykjavik, simi 5199 Útgefandi: Mál og menning Hvers vegna frið? Eftir Nönnu Ólafsdóttur Það má segja að nútímamaðurinn eigi í vök að verjast á flestum sviðum. Aðeins nokkur hluti fólks ltefur í sig og á, — og er ekkert nýtt. Stór hópur stjórnmálamanna veraldarinnar fær ekki rúmað annað í lieil- anum en stríð og þegnarnir þar af leiðandi ekki annað en stríðsótta, lamandi kvíða fyr- ir framtíðinni og þeim þjáningum, sem hún kann að bera í skauti sínu. lilöð og útvarp þeyta áróðrinum fyrir ákveðnum stjórn- málaskoðunum og gegn öðrurn yfir fólk, og með svo miklu offorsi og óheiðarleika að það lítur út fyrir að undirrót óskapanna sé skelkur við ósigur þrátt fyrir alft. Hugtaka- ruglingur er mikil tízka. Hvítt er svart. Svart er livítt. Og svona óendanlega. Hæst ber hin óðu óhljóð mannhaturs, þjóðrembings, á- sælni: Áróðurinn fyrir stríði, undir yfir- skyni dyggðarinnar. Mannskepnan kastast milli öfganna og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Hún veit þó nreð sjálfri sér, að frið kýs hún. Hún man óljóst kvikmyndir, sem sýndu máttvana friðarvini tala til skynseminnar. Hún minnist að enginn vildi hfusta fyrr en reynslan hafði neytt skynsemina til yfirveg- unar. Með slíkum lærdómum brýnir mann- kindin sig eftir hvert fall, til þess að verða ekki fótaskortur á sarna blettinum aftur. Almenningur vill frið, urn ]>að efast eng- inn, enda ekki í þeim hópi sem vill eða get- ur grætt fé á eynrd og böli náungans. Hann má sjálfur greiða mest í þann sjóð týndra lífa, eyðilagðra heimila og framtíðarmögu- leika, sem alltaf eru afleiðingar stríðs, hvort sem um sigraðan eða sigurvegara er að ræða. En spurningin er: Hvernig fær hann frið? Hingað til hefur hann engu ráðið um stríð eða frið. Gengið sem dæmdur til vígvall- anna og þeir sem eftir lifðu fundið að stríð- ið hafði ekki verið lausn á neinu vandamáli. Fjölmennasta hreyfing, senr vakin hefur verið í heiminum, er friðarhreyfing nútím- ans. Um helmingur mannkynsins tekur þátt í henni. Þar er verið að vekja fólkið til and- ófs, að það beiti sér sameiginlega gegn hinni gömlu aðferð, stríði, en reyni að finna lausn vandamála með friðsamlegu móti. Sú frið- arbarátta, sem nú stendur yfir í heiminum er tilraun til að sanna fólkinu mátt liinna mörgu og smáu þegar jreir leggjast á eitt. Ef mistekst að fá almenning tif virkrar þátt- töku verður ekki við því gert og almúginn MELKORKA 55

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.