Melkorka - 01.10.1950, Page 7

Melkorka - 01.10.1950, Page 7
Efnahagslegt jafnrétti Eftir Onnu SigurÖardóttur „Sömu réttindi — sömu skyldur" er kjör- orð og takmark kvenréttindabaráttunnar. Enn er þetta takmark allfjarri. Kosningarrétt og kjörgengi eða með öðr- nm orðum fullt pólitískt jafnrétti við karla hafa íslenzkar konur haft frá 1918 (1915 að takmörkuðu leyti). Einnig hafa þær nú yfirleitt sama rétt (en ekki möguleika) og karlar til náms og menntunar. Efnahagslegt jafnrétti er nú eitt aðalbar- áttumál kvenréttindahreyfingarinnar og beinist eðlilega í ýmsar áttir, sökunt þess hve víðtækt það er. „Sömu laun fyrir sömu vinnu“ hefur verið megintakmarkið. Þegar það er orðið að veruleika, sem brátt mun verða, ef marka má ákvæði nm það í sátt- mála Sameinuðu þjóðanna, hljóta gagngerð- ar breytingar á ýmsum lögum að verða óhjá- kvæmilegar, t. d. á tryggingalögunum, þar sem þau eru á margan liátt byggð á þeirri staðreynd, að konur og karlar búa við mjög ólík launakjör. Misréttið í launagreiðslun- um er tilfinnanlegast ekkjum og öðrum ein- stæðum mæðrum. En baráttan fyrir rétti þeirra og velferð er sá þáttur kvenréttinda- hreyfingarinnar hér á landi, sem beint og óbeint er lagt mest kapp á. Það mun með réttu verða talinn einn mesti sigur kvenréttindabaráttunnar, þegar takmarkinu „sörnu laun fyrir sömu vinnu“ er náð. En með því öðlast aðeins nokkur hluti kvenna fullt efnaliagslegt jafnrétti. A meðan móðurhlutverk og húsmóður- störf eru ekki talin fullgild störf frá þjóðfé- lagslegu sjónarmiði og hjúskaparréttur lijóna yl'ir tekjum og eignum er ekki óum- Anna Sigu röardóttir deilanlega eins, er fullt efnahagslegt jafn- rétti ekki búið giftum konum frá hendi lag- anna. Vanmat á störfum húsmæðra sanna bezt skattalögin, hjónabandslögin og trygg- ingalögin. Lögboðinn vinnudagur flestra stétta þessa lands er ekki meira en 8 stundir á sól- arhring, en flestallar húsmæðnr hafa lengri vinnudag og jafnvel helmingi lengri á stundum. Hver maður skal greiða skatt eftir tekjuárangri af starfi sínu eða verðgildi þess og það gera allir aðrir en húsfreyjur. Eru þá störf þeirra, sem annast börn og heimili, tilgangslaus og einskis virði í aug- um löggjafa þjóðarinnar? Er það vegna þess, að börn gefa engan arð eða afurðir? Eða er {rað vegna þess, að til er of stór hópur kvenna, sem er þeirrar skoðunar, „að konur í ríku þjóðfélagi eigi ekki að vinna“ og haga sér í samræmi við þá skoðun sína og MELKORKA 57

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.