Melkorka - 01.10.1950, Síða 8

Melkorka - 01.10.1950, Síða 8
eru því í bókstaflegri merkingu ómagar á framfæri eiginmanna sinna. Þessar konur hafa alla tíð verið beint og óbeint mesti Þrándur í Götu kvenréttindabaráttunnar. Þetta á raunar frekar við erlendis en hér, en jafnréttisbarátta kvenna er alþjóðamálefni. Fyrir nokkrum árum komu hér fram kröfur urn að skattleggja hjón sitt í hvoru lagi, ef konan héfur tekjur af sjálfstæðri at- vinnu, þar eð samsköttun, eins og hún er framkvæmd, er sérstaklega ósanngjörn í garð þeirra hjóna, sem bæði vinna að öflun pen- inga til framfærslu heimilis síns. Skattalögin ofmeta tekjur þeirra kvenna, sem vinna utan heimilis, fram úr öllu hófi með því að bæta þeim við tekjur eigin- manna þeirra og skattleggja þær eftir hærri skattstiga en ella, en hinsvegar leyfa lögin aðeins frádrátt vegna heimilisstjórnar (ráðs- konu) og er sú upphæð hin sama og per- sónufrádráttur eiginkonu (900 kr. -þ vísi- tala). Að vísu eru samkvæmt reglugerð meiri ívilnanir veittar, sé eftir þeim gengið, en lítið mun gert að því að veita upplýsing- ar um þær og ekki ávallt á sömu lund. Þegar konan vinnur úti og aðrir vinna störf húsmóðurinnar, fá störfin allt í einu verðgildi og stundum allliátt, og veitir þá konan öðrum aðilum auknar tekjur (þ. e. a. s. öðrum skattþegnum: föstum starfstúlk- um, þvottakonum, hreingerningafólki þvottahúsum, straustofum, saumastofum. barnaheimilum o. fl. o. fI.). Þessi útgjöld, að viðbættum sköttunum, nema oft svo miklu að raunverulega er lítill eða jafnvel enginn peningalegur hagur að utanheimilisstörfun- um, sem þær af einliverjum ástæðum kjósa frekar en heimilisstörfin (þau þeirra, sem hægt er að láta aðra vinna). Lausnin á þessu skattavandamáli er ekki sú, að veita giftum konum, sem peninga afla utan lieimilis, þau sérréttindi að vera sjálf- stæðir skattþegnar, af því að slík sérréttindi myndu fela í sér þann dóm að heimilisstörf- in séu einskisvirði, heldur verður að finna sanngjarnt mat á heimilisstörfunum, sem komi til frádráttar ef aðrir en konan vinnur þau, en hinsvegar heimilisstarfandi konu til tekna. Ef litið er á störf sveitakvenna er augijóst, að mörg þeirra rnega með réttu teljast störf utan beimilis. Störf við heyskap, mjaltir, mjólkurvinnslu, tóskap, þjónustu og mat- reiðslu vegna starfsfólks rniða öll beinlínis að þeirri tekjuöflun búsins, sem lögin meta til verðs. Hlutur liúsfreyjunnar er oft, ef vel er að gáð, engu minni en bóndans og kemur þó umönnun barna að auki. Hví þá að telja tekjur búsins bóndans eins? Það er jafn ósanngjarnt og samsköttun lijóna, þá er kon- an vinnur launuð störf utan heimilis. Bráðlega komu enn fram nýjar kröfur um breytingar á skattalögunum, þannig að reikna giftum heimilisstarfandi konum til tekna 200 kr. -þ vísitölu á mánuði af heild- artekjurn heimilisins þ. e. a. s. kr. 7.200,00 á ári með vísitölu 300. Hætt er við og enda eðlilegt, að konur kunni því yfirleitt illa, að störf allra kvenna, er ekki liafa störfum utan heimilis að sinna, verði metin eins eða öllu Iieldur, að öllum þessum konum sé ætluð sama upphæð til tekjuframtals án alls tillits til þess, livaða peningaráð þær hafa. Þær, sem búa við auð og allsnægtir, munu vart sætta sig við, að tekjur þeirra séu lögákveðnar þær sömu og þeiiæa, er þröngan fjárhag hafa. Þær, sem verða að haga heimí 1 islífi sínu og starfi í samræmi við jrjóðfélagsstöðu eiginmanna sinna, munu ekki kunna við að störl' þeirra séu metin og tekjur þeirra ákveðnar jafnar og þeirra, sem verða eða vilja sníða sér þröngan stakk í starfi og lifnaðarháttum. Þessar nýju breytingatillögur veita því heldur ekki viðunandi lausn. Tekjur eru ekki að jafnaði í réttu hlut- falli við mannkosti, gáfur, starfsþrek eða vinnuafköst. Launalög ríkisins eiga að vera viðleitni í þá átt, en vitanlega meta þau störf manna mjög mismunandi til launa og væri því óeðlilegt að gera kröfur til þess. að tekjur eiginkvenna manna með mismun- 58 MELKORKA

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.