Melkorka - 01.10.1950, Page 9

Melkorka - 01.10.1950, Page 9
andi tekjur séu að lögum ákveðnar þær sömu. Á flestum heimilum þessa lands mun öll Jjölskyldan, móðir, faðir og börn, njóta tekna heimilisins lilutfallslega jafnt miðað við þarfir, og eins þar, sem konan Jtefur lítil fjárráð. Þess vegna ættu konur ekki að revna að fá þessum hlutföllum raskað með lögum, þannig að tekjur kvenna, sem eingöngu vinna á heimilum sínum skulu vera þær sömu, hvort sem tekjur heimilisins eru mikl- ar eða litlar, en á hijin bóginn og í samræmi við síðari iiluta kjörorðs kvenréttindabar- áttunnar „sömu réttindi — sömu skyldur“ ætlast til skv. áðurnefndum tillögum, að lögákveðið verði „séu börn eða aðrir að- standendur á framfæri hjóna, skal frádrátt- arupphæð slíkra einstaklinga skipt að jöfnu milli þeirra. Þegar um óskilgetin börn er að ræða, skal frádráttarupphæð þessari einnig skipt að jöfnu milli beggja foreldra". Sömu réttindi og sömu skyldur hjóna í milli er óhugsandi, ef aðeins á að reikna konunni lítinn hluta af heildartekjum lieimilisins t. d. 14 hluta, en manninum B^. Sömu réttindi fást ekki og sömu skyldur er ekki liægt að uppfylla, ef lögákveðið er að tekjur heimilisins tilheyri hjónunum í mis- munandi mæli. Tekjur heimila, þar sem konan vinnur ekki utan heimilis, eru fólgn- ar í peningaöflun mannsins og vinnu kon- unnar á lieimilinu. Framlag konunnar, vinna hennar, verður að metast til peninga á einhvern Jiátt. Þegar fundizt Jtefur viðunanlegt mat á heimilisstörfunum, verður málið tiltöfulega auðvelt að öðru leyti en því, að nýr skatt- stigi er óhjákvœmilegur. Framlag konunn- ar, vinna hennar metin til verðs, leggst þá við laun mannsins og aðrar peningatekjur heimilisins t. d. fjölskyldubætur og fæðing- arstyrk og síðan skiptist lieildarupphæðin í tvennt og er þannig skattlögð, þar eð tvær starfandi persónur eiga hlut að máli. Frá- dráttarupphæðir skiptast vitaskuld jafnt. Hins vegar er kannski ekki þörf á, nema jregar sérstaklega stendur á (en það er nú ef til vill of oft) og óskað er eftir, að hafa skatt- inn í tvennu lagi til innheimtu, því að tekj- ur og gjöld flestra heimila, þar sem ríkir sátt og samlyndi, fara í gegnum sarna sjóð- inn. Heimilið er eitt, en faðirinn og móðir- in eru tveir einstaklingar, sem verja starfs- orku sinni í þágu þess, hvor á sinn hátt. Þegar nýr skattstigi hefur verið gerður og fenginn er sanngjarn persónu- og fjölskyldu- frádráttur (a. m. k. miðaður við fullgilt fæði og mannsæmandi húsnæði) og ákveðnai hafa verið uppliæðir, sem reikna beri fyrii heimilisstörf, er þá komi til frádráttar að nokkru eða öllu leyti, er konan vinnur að hag heimilisins með öðrum störfum, laun- uðum eða ólaunuðum (við búskap o. fl.), þá ættu þær konur, sem sérstaklega hafa orð- ið fyrir barðinu á samsköttuninni, að hafa fengið hlut sinn réttan. Þá á samsköttunin ekki lengur að vera hindrun fyrir þær konur, senr liafa þörf, löngun og möguleika til jress að stunda launuð störf utan heimilis. Þá þurfa eigin- menn þessarra kvenna ekki lengur að kvarta yfir ómagahálsinum á þeim eða ræða um skilnað, annað hvort raunverulegan eða svo- nefndan skattaskilnað, sem kvað vera til í nágrannalöndunum. Þá ættu konur, senr vinna úti, en vilja gjarna hætta því, að geta gert j>að án þeirra miklu fjárhagserfiðleika, sem því nú fylgir vegna ofurþunga tvö- faldra skatta, sem greiðast eiga löngu eftir á. Ein veigamikil rök fyrir því, að sjálfsagt er að lrjónum beri sami réttur til tekna (og eigna) heimilisins og að þær séu skattlagðar sem tekjur (og eignir á sama hátt) tveggja aðila, eru þau, að erfðalögin gera engan greinarmun á konu og karli. Skipting dán- arbús fer fram á sama hátt, livort sem mað- urinn eða konan fellur frá. Barn, sem kon- an eða maðurinn á utan lijónabandsins, hlýtur sama erfðahluta og hjónabandsbörn- in eftir foreldri sitt. Þannig liljóta t. d. börn fátækrar ekkju, sem í öðru lijónabandi kemst í góðar álnir, sama arf eftir móður melkorka 59

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.