Melkorka - 01.10.1950, Page 10

Melkorka - 01.10.1950, Page 10
sína og þau börn, sem hún eignast með síð- ari manni sínum. Eftir andlátið er konan óvéfengjanlega jafn rétthá manni sínum hvað eignir snert- ir. Eignir myndast Jjó sjaldan án tekna, og ef konunni er aðeins reiknaður óverule°ur o hluti af tekjum heimilisins og sami frádrátt- ur og manninum vegna framfærslu harn- anna eru litlar líkur til þess, að eignir geti myndazt af hennar tekjuhluta, livað þá svo að jafnar verði mannsins. Sem dæmi má nefna lijón með átta börn: Laun og aukatekjur mannsins eru ...... kr. 30.000,00 Fjölskyldubætur v/5 barna 300 kr. -)- vxsit. — (á II. verðlagssv.) m/vísit. 300 — 900 kr. — 4.500,00 Fæðingarstyrkur ....................... — 600,00 Heildartekjur heimilisins kr. 35.100,00 Skv. lyrrgreindum tillögum á að reikna konunni til tekna 600 kr. á mán. (200 kr. -|- vísit.)........................ — 7.200,00 Nettótekjur mannsins á framtali kr. 27.900,00 Eiginn persónufrádráttur...... 2.700,00 Persónufrádráttur vegna 8 barna að hálfu (utan Rvk. 600 kr -|- vísit. 300 eða 1800 kr. á barn) 7.200,00 - 9.900,00 Skattskyldar tekjur mannsins kr. 18.000,00 Nú er eftir að athuga, hvernig konunni reiðir af með sínar tekjur. Hún hefur fætt átta börn og hefur því mikið starf með höndum. Venjulega eru störf Jreirra, sem mikið hlutverk er falið, metin að miklu. En í þessu dæmi eru konunni aðeins ætlaðar 7.200,00 og frádráttur vegna barnanna að hennar liluta reiknast kr. 7.200,00. Þá er ekkert eftir fyrir hennar eigin persónufrá- drætti, kr. 2.700,00. Útkoman til skatta- álagningar er þá þannig: Tekjur konunnar kr. 2.700,00 Tekjur mannsins -þ kr. 18.000,00 Af þessu dæmi er augljóst, að tillögurnar um að giftri konu, sem vinnur að heimilis- störfum á eigin heimili, skuli talin til skatts- og útsvarsálagningar ákveðin upphæð af heildartekjum lieimilisins (hjá lágtekju- fólki getur upphæðin orðið mun hærri en sú, sem eftir er og falla skal í mannsins hlut) geta ekki staðizt í framkvæmd, að minnsta kosti ekki, ef takmarkið á að vera að vinna að efnahagslegu jafnrétti. Hitt er svo annað mál, á hvern liátt fund- ið verður viðunanlegt mat á störfunum á heimilunum, hvort taka eigi til greina barnafjölda og aldur þeii'ra, stöðu eigin- mannsins í þjóðfélaginu, íbúðarstærð, um- svif og gestagang á heimilinu, tíma- og orku- framlag til lieimilisstarfanna, vinnuafköst til beinna hagsbóta fyrir heimilið (tóvinna, fatasaumur o. 11., sbr. reglugerð um tekju- og eignarskatt) eða eftir frjálsu mati innan vissra takmarka. Hér er umræðuefni fyrir konur (og karla raunar líka), sem krefst umhugsunar og úr- lausnar. Enn er eitt atriði, sem rétt er að vekja sérstaka athygli á og krefjast skjóti'ar leið- réttingar. Það er óréttlæti, sem á sér stað a. m. k. í framkvæmdum skattalaganna í garð ógiftra mæðra og fráskilinna kvenna með börn á framfæri. Frádráttur vegna barna er ekki dreginn frá tekjum móðurinnar heldur tekjum föðursins, sem aðeins framfærir barnið eða börnin með lögákveðinni með- lagsgreiðslu. Vitanlega ber foreldrum frá- drátturinn að jöfnum hluta, enda hafa kon- ur lagt fram kröfur um Jiað, eins og áður er sagt frá. Eins og nú er, fær ógift móðir hærri skatt en faðir barnsins, liafi Jiau sömu laun fyrir störf sín. Til tekna reiknast stúlkunni ekki aðeins laun hennar heldur og meðlagið með barninu og fæðingarstyrkurinn árið, sem barnið fæðist. Frádrátt vegna barnsins fær hún ekki. Hann fellur allur í föðurins hlut og lækkar skattskyklar tekjur hans um 1800 kr. (600 -j- vísit. utan Rvk.), sem er sama upphæð og barnsmeðlagið á II. verðlags- svæði. Sé rétt að telja meðlag föðurins tekj- ur móðurinni til handa, ætti engu síður að reikna föðurnum til tekna Jiað, sem móðir- in leggur barriinu af mörkum í Vinnu og peningum, þar eð framfærsluskyldan er jöfn 60 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.